Morgunblaðið - 11.11.2013, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 11.11.2013, Qupperneq 40
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 315. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Finnst þær fallegastar 29 ára … 2. Óveður undir Hafnarfjalli 3. Van Persie tryggði United … 4. 24 ára flugvirki sem finnur … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Næstkomandi miðvikudagskvöld verður blásið til tökuljóðakvölds á Loft hosteli í Bankastræti 7 í tilefni af 206 ára afmæli Jónasar Hallgríms- sonar og degi íslenskrar tungu. Upp- lestur sjö skálda hefst kl. 20. Hvert þeirra les eitt ljóð eftir sig og annað að eigin vali eftir skáld, sem fallið er frá. Skáldin sem fram koma eru Ant- on Helgi Jónsson, Elías Knörr, Kári Tulinius, Kristín Eiríksdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Sigurlín Bjarney Gísladóttir og Þórdís Gísladóttir. Tökuljóðakvöld á Loft hosteli  Balletthópur frá Rússlandi, St. Petersburg Festi- val Ballet, sýnir Svanavatnið við tónlist tónskálds- ins Piotrs Tchai- kovskys í Eldborg í Hörpu annað kvöld og miðviku- dagskvöld. Til stóð að vera með tvær sýningar en þegar seldist upp á þær var þeirri þriðju bætt við á miðvikudag klukkan 17.00 og er enn hægt að fá miða á hana. St. Petersburg Festival Ballet samanstendur af fremstu listdöns- urum flokksins og dönsurum úr bestu dansflokkum sem viðhalda hefðum St. Pétursborgar-ballettsins. Uppselt á tvær sýn- ingar af þremur Á þriðjudag Norðvestan 13-20 m/s, en mun hægari V-til. Þurrt syðra, annars snjókoma eða él, einkum á NA-verðu landinu. Frem- ur hæg breytileg átt og úrkomulítið um kvöldið. Frost 0 til 8 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 10-23 m/s, hvassast við S- og SV-ströndina. Þurrt á NA-verðu landinu, annars rigning eða skúrir. Hiti 0 til 6 stig. Hvöss norðanátt og slydda/snjókoma NV-til í kvöld. VEÐUR Englandsmeistarar Manchest- er United fögnuðu sætum sigri á toppliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu á Old Trafford í gær. Það var gamli Arsenal- maðurinn Robin Van Persie sem skoraði eina mark leiks- ins með laglegu skallamarki. United fór með sigrinum upp í fimmta sæti deildarinnar en Arsenal trónir enn á toppnum, er tveimur stigum ofar Liver- pool. »7 Van Persie af- greiddi Arsenal Valur og Stjarnan gerðu jafntefli í toppslag Olís-deildar kvenna í hand- knattleik en liðin áttust við á Hlíð- arenda í hörkuleik það sem ekkert var gefið eftir. Bæði lið eru taplaus en Stjarnan trónir í topp- sætinu, er stigi á undan Val. »4 Jafntefli í toppslagnum á Hlíðarenda Landsliðsmennirnir Aron Einar Gunn- arsson og Emil Hallfreðsson fóru báðir meiddir af velli með liðum sín- um um helgina. Meiðslin reyndust þó sem betur fer ekki alvarleg og þeir koma báðir til landsins í dag en ís- lenska landsliðið kemur þá saman til undirbúnings fyrir leikina gegn Kró- ötum í umspili um sæti á HM. »1 Aron og Emil verða klárir í slaginn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ég er alltaf syngjandi, meira að segja í stærðfræðitímum í skól- anum,“ segir Íva Marín Adrichem, fimmtán ára upprennandi söng- stjarna, en hún tekur um þessar mundir þátt í flutningi á óperunni Carmen eftir George Bizet í Hörpu. Íva Marín hefur verið blind frá fæðingu en það hefur ekki aftrað henni frá að skara fram úr á ýmsum sviðum. Óhætt er að segja að tónlist og söngur eigi hug hennar allan og sjálf segist hún hafa sungið allt frá því hún fyrst man eftir sér. „Ég hef setið fjölmörg söng- námskeið en ég fór í klassískan söng þegar ég var þrettán ára,“ seg- ir Íva Marín en frá tólf ára aldri hefur hún verið í Gradualekór Langholtskirkju og eftir um tvær vikur lýkur hún grunnprófi í söng. Aðspurð segir Íva Marín æðislegt að syngja í kór. „Ég held samt að einsöngsnámið henti mér betur því ég er þekkt fyrir að vera háværa gellan.“ „Ég er óttaleg sviðsrotta“ Auk þess að njóta kennslu Þóru Björnsdóttur söngkennara hefur Íva Marín farið heldur óhefðbundna leið í söngnáminu en undanfarið hefur hún notast mjög við vefsíðuna YouTube. „Ef hún væri ekki til veit ég ekki hvar ég væri núna því þar læri ég að syngja lögin. Stundum læri ég samt eitthvað vitlaust og þá spyr kennarinn mig hvað ég sé eig- inlega búin að vera að hlusta á.“ Í fyrra tók Íva Marín þátt í flutn- ingi á La Bohème eftir Puccini og segir hún þá upplifun og þátt sinn í Carmen nú vera það skemmtileg- asta sem hún hafi gert til þessa. „Að fá að standa á sviði og láta öllum illum látum er æðislegt. Ég er óttaleg sviðsrotta og get verið mjög athygl- issjúk.“ Söngur er þó ekki eina áhugamál hennar því frá þriggja ára aldri hef- ur Íva Marín leikið á píanó. „Núna finnst mér samt skemmtilegra að syngja því ég var orðin pínulítið leið á píanóinu.“ Hún hefur þó ekki lagt píanóleikinn endanlega á hilluna því í vetur stefnir hún að því að ljúka miðprófi í píanóleik. Samhliða söngnáminu stundar Íva Marín nám í Garðaskóla í Garðabæ og hyggur á frekara nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Spurð hvað taki við að stúdentsprófi loknu segist hún stefna á söngnám erlendis. „Og halda bara áfram að standa mig vel.“ Nýtur þess að standa á sviði  Íva Marín tekur þátt í flutningi Carmen í Hörpu Morgunblaðið/Rósa Braga Listamaður Þrátt fyrir ungan aldur hefur hin fimmtán ára gamla Íva Marín Adrichem tekið þátt í flutningi tveggja óperuverka í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Í framtíðinni stefnir hún á frekara söngnám erlendis. Sólveig Halldórsdóttir, sem hefur umsjón með börnum á æfingum og sýningum á óperunni Carmen í Hörpu, segir barnakórinn sam- anstanda af alls tuttugu krökkum á aldrinum átta til fimmtán ára. „Við gerum miklar kröfur til þeirra enda er þetta stór og mikil sýning,“ segir Sólveig og bætir við að krakkarnir standi sig allir með sóma. „Þau hika ekki við að syngja af öllum lífs og sálar kröftum út í þetta risastóra rými.“ Sólveig hafði einnig umsjón með barnakórnum á sýningunni La Bohème og vann þá m.a. með Ívu Marín. Aðspurð segist hún vera mjög ánægð með frammi- stöðu söngkonunnar ungu. „Þetta er alveg ofboðslega flott stelpa sem lætur ekkert stoppa sig.“ „Lætur ekkert stoppa sig“ TUTTUGU KRAKKAR Í BARNAKÓRNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.