Morgunblaðið - 03.12.2013, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.12.2013, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013 BÍLAR Reynsluakstur Skoda Rapid Spaceback er rúmgóður og eyðslu- grannur, ásamt því að efnisval og búnaður er með ágætum. Isofix- festingar fyrir barnabílstól mættu þó vera betri. NÝTT Vefst fjarlægðin fyrir þér? Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is Í síðasta mánuði var stofnaður sérstakur Volvo-klúbbur. Heimasíða klúbbsins er www.volvo.is en hann er líka með Facebook-síðu og þar hafa rúmlega 200 manns skráð sig. Klúbburinn tók til starfa strax eft- ir stofnfund en stjórnina er skip- uð eins og hér segir: Ragnar Þór Reynisson er formaður klúbbsins, ritari er Hafsteinn Ingi Gunn- arsson, gjaldkeri er Oddur Pét- ursson, meðstjórnendur eru Magnús Rúnar Magnússon og Ingólfur Hafsteinsson. Það er ljóst að margir eiga nostalgískar minningar um ein- hverja gerð Volvo og er klúbb- urinn upplagður vettvangur til að efla tengsl milli áhugamanna um Volvo-bifreiðar, skipuleggja fundi og kynningar, hittast og sýna bíla félagsmanna. Í lýsingu á klúbbn- um segir að þegar fram líða stundir muni félagsmenn fara saman í lengri eða styttri ferðir og það má ímynda sér þá dýrð að sjá halarófu margra kynslóða Volvo-bifreiða á þjóðvegi 1. Arfleifð Volvo Reglur og samþykktir félagsins eru ekki flóknar en sennilega má segja að þær séu göfugar. Meðal annars kemur fram að tilgang- urinn sé að stuðla að því að arf- leifð Volvo-bifreiða varðveitist í hvívetna. Vefsiða klúbbsins er vönduð og fróðlegt að skoða hana. Það er ánægjulegt að fólk geti samein- ast í áhugamálum sínum og er um að gera að skrá sig í klúbbinn sem fyrst til að geta talist stofn- félagar. Meðfylgjandi myndir tók Vil- hjálmur Jón Gunnarsson á Volvo- safninu í Svíþjóð fyrir skemmstu. malin@mbl.is Volvo-klúbbur Íslands stofnaður Volvo Amazon ætti að vera Íslendingum vel kunnur, enda margir fluttir hingað á árum áður. Fátt jafnast á við vel uppgerða forna fáka á borð við þessar Volvo bifreiðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.