Morgunblaðið - 03.12.2013, Page 2

Morgunblaðið - 03.12.2013, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013 2 BÍLAR H álfdán Sigurjónsson, rit- stjóri tímaritsins Mótor & sport hefur alla sína ökuþórstíð átt Ford Mustang. Sá fyrsti var ári yngri en hann sjálfur eða frá árinu 1965. „Þann bíl átti ég frá 1980 til 2009,“ segir Hálfdán um bílinn sem var blár Fastback. Sá bíll var seldur úr landi og er nú í uppgerð. „Ég fékk ökuskírteinið um há- degið á afmælisdaginn minn en prófið tók ég um morguninn. Pabbi keyrði mig niður á löggustöð í þessum bíl og þar tók ég við hon- um,“ segir Hálfdán um sautján ára afmælisdaginn sinn. Prófið fékk hann í apríl 1981 en um haustið 1980 var bíllinn keyptur. „Hann var þá klesstur og ég lagaði hann,“ segir Hálfdán sem man ekki eftir sér öðruvísi en með bíladellu. Hann keppti um nokkurra ára skeið í kvartmílu en Hálfdán hefur verið virkur félagi í Kvartmílu- klúbbnum í 33 ár. Af hverju Mustang? Það hlýtur að teljast óvenjulegt að eignast Ford Mustang sem sinn fyrsta bíl en ekki einhverja ódýra dós. Aðspurður hver ástæðan hafi verið segist hann alla tíð hafa haft dálæti á þesum bílum. „Manni fannst þetta alltaf vera flottur bíll og síðan þegar maður var á „útkikki“ eftir bílum þá bauðst þessi Mustang. Hann var keyptur og ég held ég haldi mig bara við Mustang,“ segir Hálfdán sem hefur átt þrjá slíka um ævina og hver veit nema þeir eigi eftir að verða fleiri. Næsti Mustang var gylltur hard- top Grande af árgerðinni 1971 og hefur sá bíll nú verið gerður upp. Á sama tíma átti hann rauðan Must- ang 429 Mach 1 Cobra af sömu ár- gerð og þann bíl á hann enn og notar þegar það á við. Verður að komast áfram Hálfdán hefur átt afar fáa kraft- lausa bíla. Hann átti Ford Torino 429 árgerð 1972 og er sá bíll á Eg- ilsstöðum í dag. En af kraftminni bílum hefur hann ekki haft af- skipti, og þó! „Jú, ég átti Volvo einu sinni. Það var 240 GL, sjálfskiptur. Það var sennilega eitt það máttlausasta og leiðinlegasta sem ég keyrt á æv- inni,“ segir Hálfdán og fussar við að rifja þetta upp. „Ég vil komast áfram,“ segir hann til útskýringar. Hann á örugglega ekki eftir að selja Mach 1 ótilneyddur og getur, eins og aðrir með bíladellu, lengi á sig bílum bætt og hefði ekkert á móti eins og einum Mustang til viðbótar. En það þýðir ekkert að halda Hálfdáni á snakki of lengi svona í byrjun mánaðar því hann er að leggja lokahönd á þrettánda tölu- blað tímaritsins Mótor & sport sem kemur út í vikunni. malin@mbl.is Hálfdán Sigurjónsson við Mustanginn sinn sem hann sá fyrst 1981, eignaðist 1987 og hefur dekrað við síðan á alla lund. Bíllinn er árgerð 1971 og einn fárra sem enn eru til af aðeins 533 sem framleiddir voru. Ford Mustang fastback fyrsti bíllinn Verið er að gera bílinn, Mustang fastback árgerð 1965, upp í Noregi núna en hann var seldur úr landi síðla árs 2009. Bíllinn var tjónaður þegar Hálfdán eignaðist hann en var kominn í gott stand skömmu síðar, í tæka tíð fyrir bílprófið árið 1981.Ford Mustang 429 Mach 1 Cobra tekur sig býsna vel út á brautinni. Fyrsti bíllinn hans Hálfdáns var þessi forláta fastback, árgerð 1965. Ökuþórinn | Hálfdán Sigurjónsson Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.