Morgunblaðið - 03.12.2013, Síða 6

Morgunblaðið - 03.12.2013, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013 6 BÍLAR Hópur Íslendinga tók upp á því ár vordögum að keppa í Bretlandi í einni stærstu rallycross-mótaröð í heimi, MSA British Rallycross Championship, en þetta hefur enginn Íslendingur reynt hingað til. Liðið sem heitir WOW Air Racing Team var skipað þeim Jóni Bjarna Hrólfssyni ökumanni, Borgari Ólafssyni liðsstjóra og bifvélavirkj- unum Arnari Sigurðssyni og Hlöð- veri Baldurssyni. Alls ferðaðist lið- ið átta sinnum til Bretlands og Belgíu að keppa þar sem það ferð- aðist milli keppna á þjónustubíl með 15 ára gamlan Subaru- keppnisbíl í eftirdragi. Þrátt fyrir að vera að keppa við mun nýrri og dýrari bíla náði liðið hreint ótrúleg- um árangri og skilaði sér í verð- launasæti og hefði náð þriðja sæti í mótaröðinni ef mótorinn í bílnum hefði ekki gefið sig í síðustu keppninni. „Þetta var eitt mesta svekkelsi sem við munum eftir á okkar mótorsportsferli,“ sagði Borgar liðsstjóri í samtali við Morgunblaðið. „En svona er bara rallycrossið, það er verið að pína allt mögulegt afl sem hægt er út úr þessum bílum svo það er alltaf hætta á þessu.“ Smíðuðu bíl og keyptu annan „Þetta byrjaði allt saman á því að 2012 smíðuðum við einn öfl- ugasta Subaru Impreza rallycross- bíl sem hér hefur verið og keppt- um á honum sumarið 2012 og urð- um Íslandsmeistarar í rallycross það árið,“ sagði Borgar um tilurð keppnisliðsins. „Þó að það hafi verið skemmtilegt tímabil, mikið áhorf og almenn gleði í okkar garð þá langaði okkur alltaf í eitthvað meira og horfðum alltaf aftur til keppninar í Bretlandi. Eftir miklar vangaveltur var ákveðið að keppn- istímabilið 2013 færum við til Bret- lands að keppa í bresku mótaröð- inni í rallycross, MSA British Rallycross Championship. Við byrjuðum strax að undirbúa bílinn, hittumst einu sinni í viku og unn- um í bílnum. Í desember sáum við þó að það væri of stuttur tími eftir til að klára að endurbyggja bílinn og var því farið í að finna annan bíl. Við keyptum annan Subaru Imp- reza, sérsmíðaðan rallycross-bíl sem var allur úr plasti með FIA- pappíra og allt klárt. Bílinn fluttum við heim og „íslenskuðum“ hann aðeins til, skiptum um drifrás og endurbættum hann aðeins. Sá bíll ásamt kerru og þjónustubíl fór svo til Bretlands í febrúar,“ sagði Borg- ar. Góður árangur vakti athygli Fyrsta keppni liðsins var á Lyd- den Hill 16.-17. mars og gekk hálfbrösuglega. „Við náðum þó mjög góðum tímum og stóðum okkur bara ótrúlega vel miðað við að vera ekki á réttum dekkjum.“ Mun betur gekk liðinu í annarri keppninni í Mallory Park 14. apríl. „Við náðum virkilega góðum tím- um í tímatökum enda komnir á notuð dekk sem stóru liðin voru hætt að nota, allt annað líf fyrir WOW Air Racing Team 2013: Náðu góðum árangri á 15 ára gömlum bíl „Þarna gekk okkur svakalega vel í æfingum og tímatökum og unnum einn riðilinn þar sem öll stóru nöfnin voru með. Þes menn til okkar að skoða hvað þarna væri í gangi. Þetta gat bara ekki staðist að eldgamall Subaru væri að vinna þessi stó Borgar Ólafsson og félagar í Team WOW Air urðu Íslandsmeistarar í rallý- cross árið 2012 og ákváðu að taka þátt í keppni í Bretlandi í kjölfarið. Í aðeins um klukkustundar fjarlægð frá Manhattan er eitt stærsta mót- orhjólasafn heimsins. Safnið heitir Motorcyclepedia sem er réttnefni enda safnið eins og hálfgerð al- fræðiorðabók um mótorhjól. Safnið er á 250 Lake Street í Newburgh og til að komast þangað er best að taka Metro North Hudson Line frá Grand Central-brautarstöðinni upp til Bea- con. Þaðan er hægt að ganga niður fyrir brautarstöðina að ánni og taka ferju yfir Hudson-ána yfir til Newb- urgh og þá er safnið aðeins fimm mínútur í burtu með leigubíl. Und- irritaður var á ferðinni um New York- ríki á dögunum og kom þar við. Safnið samstarf feðga Saga safnsins er nokkuð merkileg en það er aðeins tveggja ára gamalt í núverandi mynd. Á sjöunda áratugn- um voru tveir vinir, þeir Mike Corbin og Ted Doering, sem eyddu miklum tíma saman á og með mótorhjólum sínum. Corbin stofnaði fyrirtæki sem fór að framleiða sæti á mótorhjól og flest mótorhjólafólk þekkir í dag, en Ted Doering fór að gera auka hluti á Harley-hjól fyrir ört vaxandi markað heima fyrir. Áður en langt um leið var hann farinn að láta smíða fyrir sig mikið af hlutum í Taívan og fékk í framhaldinu viðurnefnið Taiwan Ted. Hann varð fljótt milljóner af þessu og til að halda í hjólaáhugann fór hann að safna mótorhjólum og hlutum þeim tengdum, aðallega í samstarfi við föður sinn Jerry Doering sem keppti á Indian-mótorhjólum upp úr seinna stríði. Ted safnaði Harley Dav- idson-hjólum og sérstaklega breytt- um hjólum en Jerry hóf að safna Indian-hjólum árið 1949. Safnið stækkaði fljótt og þurfti stóra skemmu til að geyma öll hjólin. Mik- ill fróðleikur Jerry um Indian-hjól skilaði sér í miklu safni slíkra hjóla og á safnið hverja einustu tegund og árgerð frá upphafi sem er einstakt, fyrir utan gott safn Indian-keppn- ishjóla. Við safnið hefur svo bæst fjöldinn allur af öðrum amerískum gerðum auk talsvert margra evr- ópskra og japanskra hjóla en uppi- staðan í safninu er hjól framleidd í Bandaríkjunum. Meðal þess sem áhugavert er að skoða á safninu er gott safn herhjóla og lögreglumót- orhjóla. Einnig er sérstök sýning á hjólum mótorhjólasmiðsins Indian Larry á safninu, auk keppnishjóla af ýmsum gerðum sem sýna vel sögu mótorhjólaíþrótta í Bandaríkjunum. Yfir 450 mótorhjól eru í safninu og vel þess virði fyrir þá sem hafa áhuga á hvers kyns mótorhjólum að heimsækja það. njall@mbl.is Mótorhjólasafnið í Newburgh: Yfir 450 mótorhjól til sýnis Harley Davidson keppnishjól frá 1911 tekur á móti gestum þegar þeir ganga inn á safnið í Newburgh. Indian keppnishjól sem Jerry Doer- ing keppti á er á sérstökum stalli. Morgunb

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.