Morgunblaðið - 18.01.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2014
Sjálfræðissviptingar, nauðung og valdbeiting í geðheilbrigðisþjónustu
Ráðstefna á vegum Geðhjálpar á Grand Hótel Reykjavík 23. janúar kl. 13
Fundarstjóri Hulda Dóra Styrmisdóttir aðjúnkt við viðskiptadeild HR
og fulltrúi í ráðgjafahópi Geðhjálpar
13.00 – 13.15 Sýn Geðhjálpar
Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar
13.15 – 13.45 Eigin reynsla
Ágústa Karla Ísleifsdóttir, Björn Hjálmarsson, Sveinn Rúnar Hauksson
13.45 – 14.00 Ákvörðun um sjálfræðissviptingu – reynsla ættingja
Fanney Halldórsdóttir, móðir
14.00 – 14.15 Aðkoma lögreglu að sjálfræðissviptingum
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins
14.15 – 14.45 Kaffihlé.
14.45 – 15.00 Sjálfræðissviptingar frá sjónarhóli geðlækna geðsviðs Landspítalans
Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir réttar- og öryggisdeildar geðsviðs Landspítalans
15.00 – 15.15 Sjálfræðissviptingar frá sjónarhóli félagsþjónstu Akureyrarbæjar
Ester Lára Magnúsdóttir, verkefnisstjóri
15.15 – 15.30 „Opið samtal“ í nálgun við sjúklinga í geðrofi
Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Geðheilsu - eftirfylgdar og Hugaraflskona
15.30 – 15.45 Í víðu samhengi
Héðinn Unnsteinsson ráðgjafi í geðheilbrigðismálum og fyrrum sérfræðingur hjá
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO)
15.45 – 16.15 Samantekt og pallborðsumræður með þátttöku fulltrúa frá Akureyrarbæ,
Landspítala, Geðhjálp og lögreglunni
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á ráðstefnuna með því að senda
tölvupóst með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda á gedhjalp@gedhjalp.is.
Aðgangseyrir kr. 1.500, frítt fyrir félaga í Geðhjálp.
Hægt er að skrá sig í félagið á www.gedhjalp.is. Árgjald er kr. 2.000 kr.
Fyrsta málþing Geðhjálpar 2014
HVERS VIRÐI ER FRELSIÐ?
Árni Páll Árnason, formaðurSamfylkingarinnar, staðfesti í
viðtali í Ríkisútvarpinu í gær-
morgun að viðræður um aðild að
Evrópusambandinu snerust um að-
lögun að regluverki þess á meðan
aðild væri und-
irbúin.
Viðurkenninginvar að vísu
óbein því að hann
sagði í viðtalinu að
fengist hefði „sam-
þykkt í aðildarviðræðunum að
ekki yrðu gerðar neinar óaft-
urkræfar breytingar í stofn-
anaaðlögun á aðildarumsókn-
arferlistímanum“.
Þetta er dæmigerður blekking-arorðaleikur sem einkennt
hefur málflutning aðildarsinna frá
því að hafist var handa við að
þvinga fram umsókn árið 2009. Nú
treystir Árni Páll sér ekki lengur
til að halda því fram að engin að-
lögun hafi átt sér stað og að þetta
hafi ekki verið aðlögunarvið-
ræður, en þá er breytt um
hugtakanotkun og farið að tala
um „óafturkræfa aðlögun“.
Hér hefur sem sagt aðeins far-ið fram afturkræf aðlögun
að mati formanns Samfylking-
arinnar og auðvitað má segja að
flest sé afturkræft vilji menn leika
orðaleiki.
Út af fyrir sig má segja að þaðsé afturkræft að breyta
stofnunum og reglum til að þjóna
umsóknarferlinu, en það breytir
engu um þá aðlögun sem fram
hefur farið.
En segja má að þetta sérstakaorðaval Árna Páls á und-
anhaldinu sé áminning um að þeg-
ar búið er að slíta viðræðunum er
full ástæða til að endurskoða hina
afturkræfu aðlögun.
Árni Páll Árnason
Afturkræf aðlögun
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.1., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 5 skýjað
Nuuk -7 snjókoma
Þórshöfn 6 skúrir
Ósló -7 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 snjókoma
Stokkhólmur -3 skýjað
Helsinki -12 skýjað
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 7 skúrir
Dublin 6 skýjað
Glasgow 6 skýjað
London 7 léttskýjað
París 8 heiðskírt
Amsterdam 7 skúrir
Hamborg 7 skýjað
Berlín 7 heiðskírt
Vín 5 alskýjað
Moskva -15 heiðskírt
Algarve 12 skúrir
Madríd 8 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 skýjað
Róm 12 skúrir
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg -23 léttskýjað
Montreal -2 alskýjað
New York 3 léttskýjað
Chicago -10 alskýjað
Orlando 12 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:48 16:30
ÍSAFJÖRÐUR 11:17 16:10
SIGLUFJÖRÐUR 11:01 15:52
DJÚPIVOGUR 10:23 15:53
„Núna hafa komið fram upplýsingar
um að frískuldamarkið [sem nemur
50 milljörðum króna] henti einni
fjármálastofnun sérstaklega vel auk
þess sem talsverð tengsl eru á milli
ráðherra í ríkisstjórn og forsvars-
manna þessa banka,“ segir Guð-
mundur Steingrímsson, formaður
Bjartrar framtíðar, og vísar í máli
sínu til MP Banka og hækkunar á
skattleysismörkum bankaskatts sem
átti sér stað á milli annarrar og
þriðju umræðu á þingi.
Í ljósi þessara nýfengnu upplýs-
inga segist Guðmundur hafa ákveð-
ið, í samráði við Árna Pál Árnason,
formann Samfylkingarinnar, og
Steingrím J. Sigfússon, þingmann
Vinstri grænna, að óska eftir sér-
stökum fundi í efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis vegna málsins
en samkvæmd nefndardagskrá verð-
ur málið til umræðu næstkomandi
mánudag.
Aðspurður segir hann tengsl ráð-
herra í ríkisstjórn við stjórnendur
áðurnefndrar fjármálastofnunar
vera varhugaverð. „Meginreglan er
sú að það á að láta vita af öllum svona
tengslum,“ segir hann og bætir við
að slíkt hafi ekki verið gert í þessu
tilfelli og því vill hann að farið sé yfir
röksemdir ákvörðunarinnar og hvort
þær haldi vatni. „Eða hvort hér sé
um óeðlilega ákvarðanatöku að ræða
sem við, því miður, tókum þátt í.“
Farið verður yfir ákvörðunina
Frískuldamark bankaskatts verður til umræðu í þingnefnd eftir helgi Tals-
verð tengsl sögð vera milli ráðherra í ríkisstjórn og forsvarsmanna MP Banka
Þriggja daga
fundi strand-
ríkja um stjórn-
un makrílveiða í
Norðaustur-
Atlantshafi lauk
í London í gær.
Niðurstaða náð-
ist ekki á fund-
inum, en ákveðið
hefur verið að
aðilar komi á ný
saman á miðvikudag í næstu viku.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, kveðst vera minna bjart-
sýnn nú en hann var á
haustmánuðum en engu að síður
sé það mikilvægt að reyna til
þrautar að ná samkomulagi. Af-
staða Íslands byggir hér eftir sem
hingað til á því að nást verði sam-
komulag sem byggir á vísinda-
legum grunni bæði hvað varðar
hæfilegar veiðar úr stofninum og
sanngjarnri skiptingu aflahlutar
milli ríkjanna. Auk Íslands eru
Noregur, Færeyjar og Evrópu-
sambandið strandríki þegar fjallað
er um makrílveiðar.
Í næstu viku var ráðgert að
ræða stjórnun á veiðum á norsk-
íslenskri síld og kolmunna á fund-
um í London. Þeim fundum hefur
verið frestað vegna makrílfund-
arins. aij@mbl.is
Engin
niðurstaða á
makrílfundi
Makríllinn er eft-
irsóttur fiskur.