Morgunblaðið - 18.01.2014, Síða 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2014
Stuttar fréttir ...
● Olíufélagið Royal Dutch Shell gaf út
afkomuviðvörun í gærmorgun þar sem
segir að hagnaður á fjórða ársfjórðungi
2013 verði mun minni en væntingar
voru um. Gengi bréfa í Shell lækkuðu
um 1,5% í viðskiptum í gær.
Gert er ráð fyrir að hagnaður fyr-
irtækisins á fjórðungnum dragist sam-
an um 70% frá fyrra ári og nemi 2,2
milljörðum Bandaríkjadala. Samdrátt-
urinn skýrist af auknum kostnaði við ol-
íuleit, minni framleiðslu og minnkandi
eftirspurn.
Útlit fyrir að hagnaður
Shell minnki um 70%
Þrátt fyrir slök skil fyrirtækja á
lögbundnum lokaskiladegi 31. ágúst
ár hvert hafa skil ársreikninga batn-
að verulega á umliðnum árum og
skila ársreikningar sér mun fyrr til
ársreikningaskráar en áður. Á það
var nýlega bent í Tíund, tímariti
embætti ríkisskattstjóra, að ríflega
22% skilaskyldra félaga höfðu skilað
ársreikningi vegna 2012 fyrir 31.
ágúst sl. samanborið við um 17%
vegna ársreikninga 2008 og 2009.
thorsteinn@mbl.is
Geti stofnað fyrir-
tæki á netinu
Ríkisskattstjóri segir að skattframtalsgerð verði einfölduð
Morgunblaðið/Kristinn
Netvæðing Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að í framtíðinni
muni það aðeins taka einn sólarhring að stofna fyrirtæki.
Unnið er að breytingum sem miða
að því að einfalda það ferli sem þarf
að fara í gegnum til að stofna fyr-
irtæki en í framtíðinni verður hægt
að gera það að öllu leyti rafrænt.
Þetta kom fram í erindi Skúla Egg-
erts Þórðarsonar ríkisskattstjóra á
skattadegi Félags löggiltra endur-
skoðenda (FLE) á Grand Hóteli í
gærmorgun.
Á fundinum ræddi ríkisskattstjóri
þær ýmsu breytingar sem eru í
burðarliðnum hjá stofnunni en til
stendur að auðvelda fyrirtækjum og
einstaklingum skattaskil auk þess
sem boðleiðir verði styttar með auk-
inni notkun rafrænna skila.
Skúli sagði að þegar búið væri að
fylla út nauðsynlegar upplýsingar á
netinu, greiða stofngjald til ríkis-
sjóðs og undirrita skjölin rafrænt,
þá ætti það ekki að taka nema einn
sólarhring fyrir fólk að stofna fyr-
irtæki – alfarið í gegnum netið.
Á meðal annarra breytinga sem
Skúli kynnti á fundinum er einföld-
un á sendingu skattaframtala til
fjármálastofnana. Frá og með næst-
komandi hausti verður hægt að skila
rafrænt staðfestu afriti af skatta-
framtali til fjármálafyrirtækja í
gegnum vefsíðu ríkisskattstjóra.
Á næstu árum er ennfremur
stefnt að því að einfalda mjög alla
framtalsgerð þannig fylgiblöðum
fækki og þau sameinuð. Skúli segir
að meðal annars verði ekki lengur
gerð krafa um sérstakt eyðublað
vegna skattafrádráttar á grundvelli
ökutækjastyrks, heldur verði það
ferli einfaldað til muna.
Ríkisskattstjóri sagðist vonast
eftir því að skil á ársreikningum fyr-
irtækja haldi áfram að batna. Hefur
embætti ríkisskattstjóra lagt
áherslu á að bæta samskiptin við
endurskoðendur svo það gangi eftir.
Útlit er fyrir að
vísitala neyslu-
verðs muni lækka
nokkuð í janúar
og gæti tólf mán-
aða verðbólga
lækkað úr 4,2% í
3,3%, að mati IFS
greiningar. Aðrir
greinendur spá
því að verðbólgan
verði um 3,5% á
ársgrundvelli.
Í spá IFS greiningar er gert ráð
fyrir því að vísitala neysluverðs
lækki um 0,5% í janúar frá desem-
bermánuði. Líkt og jafnan í janúar
vega þar útsöluáhrif þyngst.
Greinendur Arion banka og Ís-
landsbanka spá því að vísitala
neysluverðs lækki um 0,3% og 0,4% í
janúarmánuði. Fram kemur í Mark-
aðspunktum Arion banka að lægri
verðbólga skýrist af minni áhrifum
af ýmsum gjaldskrárhækkunum um
liðin áramót en árið áður. Einnig
lækki aðrir liðir, svo sem eldsneyt-
isverð, sem ýtir undir hjöðnun verð-
bólgunnar.
Líkur eru á því að tólf mánaða
verðbólga verði í námunda við verð-
bólgmarkmið Seðlabankans – 2,5% –
á næstu mánuðum en IFS greining
spáir því að hún muni mælast 2,9% í
apríl.
Verðbólga
gæti lækk-
að í 3,3%
Verðlækkun Útsöl-
ur vega þungt.
Spá 0,3-0,5% verð-
lækkun í janúar
● Stoðir seldu í gær alla eignarhluti
sína í Tryggingamiðstöðinni (TM) fyrir
rúma 1,3 milljarða króna. Fyrir við-
skiptin átti félagið 5,54% hlut í TM.
Fram kemur í tilkynningu til Kaup-
hallarinnar að lágmarksgengið í hluta-
fjárútboðinu, sem fram fór í fyrradag,
hafi verið 31,50 krónur á hlut.
Samþykkt voru tilboð á bilinu 31,50
til 32,56 krónur á hluti og var vegið
meðalgengi samþykktra tilboða 31,86
krónur á hlut. Af samþykktum tilboðum
þurftu einungis fjárfestar sem buðu
31,50 krónur á hlut að sæta skerðingu.
Seldu 5,5% hlut sinn
í TM á 1,3 milljarða
Seldu allt Lágmarksgengið í
hlutafjárútboðinu var 31,5 krónur á hlut.
Morgunblaðið/Eggert