Morgunblaðið - 24.01.2014, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2014
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Mannamót markaðsstofanna fór fram í gær þar sem
markaðsstofur landshlutanna kynntu hugmyndir sínar
fyrir aðilum í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Til-
gangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir
ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru í Reykjavík og
vinna með því að dreifingu ferðamanna um landið og
uppbyggingu heilsársferðaþjónustu.
Afþreyingu að finna í öllum landshlutum
Þetta var í fyrsta skipti sem slík kynning fer fram.
Fulltrúar um 160 fyrirtækja voru á ráðstefnunni sem
fram fór í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkur-
flugvelli.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að efla vetrar-
ferðamennsku undanfarin ár en einungis rúm 11% ferða-
manna sem koma til landsins á veturna heimsækja
landsbyggðina samanborið við um 42% á sumrin.
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri mark-
aðsstofu Norðurlands, segir að margs konar afþreyingu
sé að finna í öllum landshlutum. Norðurland og Vestfirð-
ir hafi lagt sig fram við að bjóða upp á góðar aðstæður til
skíðaiðkunar og vetrarævintýra, Suðurland hafi sínar
náttúruperlur, Austfirðingar leggi áherslu á mat og nær-
veru við heimamenn, en á Vesturlandi er sagnahefðin
höfð í heiðri. „Með þessu Mannamóti stefnum við að því
að ná betri samstarfsanda á milli aðila,“ segir Arnheiður.
Aðspurð segir Arnheiður að betri samgöngur yrðu
mikil búbót fyrir ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Að
öðru leyti sé ekkert að vanbúnaði til að taka við fleiri
ferðamönnum á veturna.
Kvarta undan svellinu
„Samgöngur, vegir og mokstur koma í veg fyrir að
við getum kynnt sumar af okkar náttúruperlum á vet-
urna,“ segir Arnheiður. Spurð hver séu aðalumkvört-
unarefni ferðamanna þá segir hún þá nefna svell. „Það er
aðalumkvörtunarefnið, en vetrarferðamenn eru almennt
opnari en þeir sem koma á sumrin. Þeir eru undirbúnari
fyrir breytingar sem geta komið upp,“ segir Arnheiður.
Mannamót til að efla
samstarfsandann
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlíðarfjall Ferðaþjónusta á Norðurlandi og á Vestfjörðum hefur lagt áherslu á vetrarskemmtun á borð við skíðaiðkun.
Aukið samstarf leiði fleiri ferðamenn út á land
Umhverfisstofnun hefur ákveðið að
bjóða út rekstur Vatnshellis í þjóð-
garðinum Snæfellsjökli. Ferða-
mönnum á Snæfellsnes hefur fjölgað
undanfarin ár, einkum utan háanna-
tíma og samhliða því hefur eftir-
spurn eftir hellaferðum aukist.
Vatnshellir var gerður aðgengi-
legur almenningi í þeim tilgangi að
vernda hann, kynna hella og hella-
vernd og um leið að hvetja fólk til
góðrar umgengni um hella og nátt-
úru landsins. Vatnshellir er hraun-
hellir í suðurhlíðum Purkhóla-
hrauns, upp af Malarrifi. Hraunið og
hellirinn eru talin vera um 5-8.000
ára gömul. Vatnshellir er um 200
metra langur og þar er hátt til lofts
og vítt til veggja
Í frétt frá Umhverfisstofnun segir
að markmið útboðsins sé meðal ann-
ars að tryggja að almenningur geti
notið heimsókna í Vatnshelli allan
ársins hring gegn hæfilegu gjaldi.
Útboðið hefur verið auglýst á vef
Ríkiskaupa og þangað á að beina
fyrirspurnum
Skipulagðar ferðir í Vatnshelli
hófust sumarið 2010 og var þá farið í
hluta hellisins, þrjá daga vikunnar.
Það sumar komu um 1.600 manns í
hellinn. Sumarið 2011 voru farnar
fimm ferðir á dag alla daga vik-
unnar. Um 5.400 manns heimsóttu
þá hellinn. Árið 2012 komu um 3.400
manns í hellinn. Þessi fyrstu þrjú ár
sá þjóðgarðurinn um reksturinn á
hellinum. Umhverfisstofnun ákvað
vorið 2013 að semja við einkaaðila
um að sjá um rekstur Vatnshellis í
tilraunaskyni. Sumarið 2013 komu
tæplega 8.000 manns í hellinn.
sisi@mbl.is
Vatnshellir verði
opinn allt árið
Umhverfis-
stofnun býður
út reksturinn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Vatnshellir Freistar ferðamanna.
Fallegar gjafir í öll barnaafmæli
Lækjargata 2a og Vesturgata 2a 101 Reykjavík. Opið frá 9 - 22 alla daga
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUMHÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900