Monitor - 16.01.2014, Side 3
Fyrir aFmælisunnendur
Í kvöld og á morgun mun Stúdenta-
kjallarinn fagna eins árs afmæli
sínu með heljarinnar afmælisveislu.
Í kvöld verða tónleikar með hljóm-
sveitunum
Tilbury og
Húsbandinu
en annað
kvöld munu
þeir Ari
Eldjárn,
Bergur Ebbi,
Eysteinn
Sigurðarson og Orri Eiríksson
fremja gott grín. Ókeypis er inn
á bæði kvöld, eins og í allar betri
afmælisveislur, og allir velkomnir.
Fyrir hugleiðendur
Nú eru hafnir á ný ókeypis
jógatímar í Hinu húsinu fyrir fólk
á aldrinum
16-25 ára.
Verða þeir
á hverjum
þriðjudegi kl.
17:00-18:30
næstu tvo
mánuðina.
Tímarnir
munu samanstanda af jógastöð-
um, öndunaræfingum, slökun og
hugleiðslu og er engin reynsla
nauðsynleg til að koma og prófa.
Fyrir kvikmyndaunnendur
Á morgun hefst hin árlega franska
kvikmyndahátíð í Háskólabíói
og stendur hún yfir í tvær vikur.
Hátíðin
verður sett
með sýningu
gaman-
myndarinn-
ar Eyjafjalla-
jökull sem
snýst um
afleiðingar
gossins í samnefndum jökli árið
2010. Jafnframt verða sýndar átta
aðrar franskar bíómyndir á sýning-
unni, þar á meðal tvær teiknimynd-
ir. Hægt er að kaupa sérstakan fimm
mynda afsláttarpassa í miðasölu
Háskólabíós á 3.900 kr.
Súkkulaðikökur eru ólöglegar
í Norður-Kóreu
fyrst&fremst 3fimmtudagur 16. janúar 2014 Monitor
b
la
ð
ið
í
t
ö
lu
M úrræði fyrir ein-
mana sálir í Japan
má finna á síðu 6.
4
vegglistaverk voru
skráð í Reykjavík
árið 2012.
sýning Mið-Íslands
var frumsýnd í
síðustu viku.
2.
Ég ætlaði að fá mér skammdegiskærustu,en það tekur því eiginlega ekki úr þessu,“
sagði ónefndur vinur minn nýlega í umræðum
um ástarlíf hans. Mér þykir hann full jákvæður
þar sem það er alltof langt eftir af vetrinum í
mínum huga. Ólíkt umræddum vini mínum
á ég hinsvegar heilsárskærasta sem kemur í
veg fyrir að ég gráti mig í koddann á kvöldin af
skammdegisþunglyndi með því að horfa með
mér á sjónvarpið og vaska reglulega upp.
Hugmyndin um skammdegiskærasta ermér þó alls ekki ókunnug og það sama má
eflaust segja um mjög marga unga Íslendinga.
Það er jú svo gaman að vera á lausu á sumrin,
detta í óvæntan sleik á útihátíð eða labba heim
með nýjum vini í miðnætursólinni. En þegar
það verður kalt er fátt notalegra en að eiga
einhvern að sem er til í að liggja með manni
undir teppi á föstudagskvöldi og troða sig út af
nammi yfir Friends.
Ég hef hinsvegar aldrei heyrt neinn við-urkenna löngun í skammdegiskærustu
jafn skammlaust og þennan vin min. Það má
eiginlega ekki viðurkenna að mann langi bara í
samband til styttri tíma enda þykir það gríðar-
lega ljótt gagnvart hinum aðilanum að lokka
viðkomandi í samband á fölskum forsendum.
Væri lífið ekki aðeins skemmtilegra ef þurf-
andi skammdegissambandsfíklar gætu bara
rætt væntingar sínar opinskátt og hjúfrað
sig svo saman í nokkra mánuði.
Við eigum víst öll að vera að leitaað ástinni (samt ekki) en það
er nokkuð ljóst að við erum ekki
öll að leita að heilsársdekkjum í
djobbið. Sumir vilja bara nagladekk
til að koma sér í gegnum versta
slabbið. Ég mæli með því að hugtak-
ið um skammdegiskæró verði fært í
orðabók því við vitum öll að það er
þörf viðbót við íslenska tungu.
Ástarkveðjur
Anna Marsý
mOniTOr@mOniTOr.is
ritstjórar: Anna Marsibil Clausen
(annamarsy@monitor.is), Jón Ragnar
Jónsson (jonragnar@monitor.is) (Í fæð-
ingarorlofi) Framleiðslustjóri: Hilmar
Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Rósa María Árnadóttir,
Auður Albertsdóttir, Lísa Hafliðadóttir
(í fæðingarorlofi)
Forsíða: Árni Sæberg (saeberg@mbl.
is) umbrot: Monitorstaðir auglýsingar:
Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.
is) myndvinnsla: Ingólfur Guðmunds-
son Útgefandi: Árvakur Prentun:
Landsprent sími: 569 1136
ga Monitor Efst í huga Monitor Efst í huga Monitor Efs
Skammdegiskæró
mælir með...
www.facebook.com/monitorbladid
Vikan
á facebook
47
Atli Fannar
Bjarkason
Er séns að
þeir virkustu í
athugasemdum
hati listamanna-
launin svona mikið vegna þess
að þeir halda að Gói hafi hirt
pakkann eins og hann leggur
sig árið sem Hringekjan var á
dagskrá? 13. janúar kl. 19:47
„Hugmyndin hjá mér var upphaflega að hugsa
þetta eins og ég væri að semja tónlist fyrir
tölvuleikinn Hamlet en ekki leikritið,“ segir
tónskáldið Úlfur Eldjárn um sitt nýjasta verk.
Leikritið Hamlet með Ólafi Darra Ólafssyni í
titilhlutverkinu var frumsýnt í Borgarleikhús-
inu síðastliðinn laugardag en tónlist Úlfs gegnir
lykilhlutverki í sýningunni.„Mig langaði að búa
til hljóðheim sem væri í senn nútímalegur og
forneskjulegur og til þess notaði ég hljóðfæra-
samsetningu sem minnir mann á herlúðra,
trumbur og hirðtónlist fyrri alda,“ segir Úlfur
en inn í þessa hljóðfærasamsetningu blönduð-
ust síðan allskonar áhrif, m.a. frá teknótónlist
og ítalskri hryllingsmyndatónlist.
Hamlet verður seint flokkað sem léttmeti en
Úlfur tók sig engu að síður til og las leikgerðina
með upprunalega textann á ensku til hliðsjón-
ar áður en hann lagðist í tónsmíðina. „Það er
ótrúlega gefandi og hollt að brjótast í gegnum
þennan texta. Maður ætti helst að lesa einn
Shakespeare í hverjum mánuði“.
Hipsterinn Hamlet
Þrátt fyrir að fylgja þýðingu Helga Hálfdán-
arsonar að mestu leyti er reglulega laumað
að nútímaorðum á við „tagg“, „fokkings“ og
„twerk“ í Hamlet Borgarleikhúsins. Þar sem
Hamlet stendur í frakka með leðurermum
og úfið skegg er hann afar áþekkur ungum
mönnum sem oft sjást mæla göturnar í mið-
bænum. Það virðist ekki hafa reynst erfitt að
færa Hamlet til nútímalegs horfs enda bendir
Úlfur á að áhrif verksins séu allt í kringum
okkur,hvort sem það er í bíómyndum, tónlist
eða bókmenntum samtímans.
„Í grunninn fjallar Hamlet bara um ungan
mann sem er í uppreisn gegn samfélaginu. Þá
sögu er enn verið að segja á nýjan og nýjan hátt
og við eigum auðvelt með að lifa okkur inn í
hana,“ segir Úlfur og bætir því við að Cathcer
in the Rye, RebelWithout a Cause, StarWars og
101 Reykjavík séu allt afkomendur Hamlets.
Aðspurður um hvað framtíðin ber í skauti sér
segist Úlfur vera að leggja lokahönd á gagnvirkt
tónverk.
„Það heitir Strengjakvartett nr. ∞. Það virkar
þannig að fólk getur farið á netið og hlustað á
sína eigin útgáfu af verkinu í gegnum sérstakt
viðmót sem ég er að þróa með Halldóri bróður
mínum og Sigurði Oddssyni hönnuði. Svo er
ég líka að fara á fullt að klára nýju sólóplötuna
mína,“ segir Úlfur en hann spilaði nokkur lög af
plötunni á síðustu Airwaveshátíð sem annars
hafa ekki heyrst opinberlega, hvorki fyrr né
síðar. „Ég hlakka til að leyfa umheiminum að
heyra meira af því.“
Úlfur Eldjárn semur tónlistina í uppsetningu Borgarleikhússins á einu
ástsælasta verki leikskáldsins Williams Shakespeare, Hamlet.
teknótónlist fyrir
tölvuleikinn hamlet
M
yn
d/
Ró
sa
Br
ag
a
ár á Haukur
Harðarsson að
baki á RÚV.
3
Bubbi
Morthens
Handbolti er
sól. 12. janúar
kl. 15:37
Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir
heimildamynd
um konu sem
er 300 kíló, eða
heimildamynd
um hættulegustu fangelsi í
Rússlandi...erfitt val á Netflix og
leiðinlegt að Spiderman 2 er búin
að stöð 2 en hún byrjar nú aftur í
nótt...legg mig bara þangað til.
5. janúar kl. 18:02
ÚlFur eldjárn
Fyrstu sex: 030976
uppáhalds risaeðla: Sinocalliopteryx
lag á heilanum: Norway með Beach House
að vera eða ekki vera: Með miða á Hamlet?