Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 16.01.2014, Qupperneq 22

Monitor - 16.01.2014, Qupperneq 22
Þegar stórmenni á borð við Martin Scorsese og Leonardo DiCaprio leiða saman hesta sína má oftar en ekki búast við flugeldasýningu. Nokkuð örugglega er hægt að fullyrða að nýj- asta afurð þeirra, The Wolf of Wall Street, hafi boðið upp á eina slíka. Sú staðreynd að hún sé byggð á sönnum atburðum ýtir einungis undir bilunina sem átti sér stað í fjármálaheiminum á þessum tíma og hefði maður haldið að peningamógúlar dagsins í dag hefðu lært eitthvað á framferði fyrirrennara sinna. Kvikmyndin segir frá Jordan Belfort sem alltaf hafði þann draum að verða verðbréfamiðl- ari en blautur á bakvið eyrun og með enga reynslu gengur honum illa í starfi þangað til hann stofnar sitt eigið fyrirtæki. Þar rís hann hratt til metorða og með því að kaupa og selja hluta- bréf sem voru á gráu svæði og ,,ekki beint lögleg“, eins og hann orðar það sjálfur, auðgast hann hratt og mikið. Á örfáum árum er hann svo orðinn moldríkur, með vænd- iskonur í hverju horni, neytandi eiturlyfja eins og þau sé Smarties-kúl- ur og gjörsamlega siðblindur. Nánast undantekningalaust stelur DiCaprio senunni og þó svo að mótleikarar hans á borð við Jonah Hill spili sín hlutverk lýtalaust þá komast þeir ekki með tærnar þar sem okkar maður hefur hælana. Þrátt fyrir að vera þrír tímar að lengd situr maður fastur við skjáinn allan tímann og leiðir Scorsese áhorfandann í rússíbanareið um spilltan og ógeðfelldan heim Wall Street þar sem greinilega er ekki allt með felldu. Mig grunar að með þessu nýjasta hlutverki sínu hreppi Leonardo hin langþráðu Óskarsverðlaun sem hann hefur svo lengi beðið eftir. Ég vona svo sannarlega að engum finnist þessi lífstíll heillandi og vonandi að kvikmyndin verði vakning fyrir þá sem stunda viðskipti af þessu tagi úti í hinum stóra heimi. Siðleysi og ómenning kvikmynd TheWolf ofWall STreeT Hjálmar karlsson Me, Myself and Mum (Les Garçons et Guillaume, à table!) er sjálfsævisaga leikarans Guillaume Gallienne sem fjallar m.a. um samskipti hans við móður sína, kynhneigð hans og aðdáun á konum. Myndin er í leikstjórn Guillaume Galli- enne, sem jafnframt fer með aðalhlutverk, og byggir á uppistands sýningu sinni sem frumsýnd var árið 2008. Hinn 41 árs Galli- enne leikur sjálfan sig allt frá barnæsku þar til hann verður vandræðalegur ungur maður. Gallienne skellir sér einnig í drag til þess að leika móður sína. Sýnir myndin jafnframt sérstakt samband sitt við stjórnsama móður sína sem ól hann upp frekar sem stúlku heldur en strák og ákvað að hann væri samkynhneigður áður en hann var viss sjálfur um kyn- hneigð sína. Hér er á ferðinni frumleg og tilfinningarík gamanmynd um sjálfsmyndarkreppu og óvissuástand. Me, Myself and Mum er ein af þeim kvikmyndum sem sýnd er á franskri kvikmyndahátíð í Háskólabíói sem hefst í Reykjavík á morgun og stendur til 30. janúar. skjámenning Frumsýning helgarinnar Me, Myself and Mum Hello, Benjamin ! Carter-rush Hour 2 22 monitor fimmtudagur 16. janúar 2014 aðalhlutverk: Guillaume Gallienne, André Marcon. leikstjórn: Guillaume Gallienne Talað mál: Franska Texti: Íslenskur sýningarstaður: Háskólabíó VilTu Vinna miða? facebook.com/monitorbladid Einn af stóru leikjunum sem koma út 29. janúar fyrir PlayStation 4-tölvuna er leikur- inn Knack, en hann er gerður af Mark Cerny sem er hálfgerður guð í leikjageiranum enda unnið að leikjum á borð við Sonic, Ratchet & Clank, Jak & Daxter, Resistance og fleirum. Í leiknum fara leikmenn í hlutverk Knack, en hann er kvikindi sem var búið til á rannsóknarstofu með því að safna saman hundr- uðum fornmuna og úr varð dularfullt dýr sem getur framkvæmt allskyns undarlega hluti. Það var líka ekki seinna vænna, því heimurinn stendur í stríði við Goblin-kvikindi og þarf Knack að leiða baráttu mannkynsins gegn þeim. Spilun Knack er nokkuð dæmigerð fyrir þrívíddar- platformleiki og minnir um margt á leiki á borð við Sonic, Ratchet, Jak & Daxter og fleiri, en leikmenn geta hoppað um, ráðist á óvini leiksins með bardaga- brögðum og notað sérstaka ofurkrafta Knack til að vinna á stærri hópum óvina. Frumlegheit Knack felast fyrst og fremst í því að hann getur stækkað og minnkað við ýmsar aðstæður, en þegar hann er hvað minnstur kemst hann í gegnum litlar holur og minni svæði, en svo getur hann stækkað svakalega og orðið á stærð við byggingar og nýtist það vel í bardögum við risavaxin vélmenni og skriðdreka. Grafíkin í Knack er í flottum teiknimynda- stíl, en grafíkin í Knack sjálfum er kannski mest fyrir augað, enda er kappinn samansettur úr fjölda lítilla hluta og kemur það vel út. Tónlist og talsetning leiksins er í góðu meðallagi, en það sem mér finnst vanta er að persónur hans séu meira spennandi, það vantar tilfinnanlega húmor og stuð í leikinn. Knack er alls ekki slæmur leikur, en hans helsti galli er að hann er mjög einsleitur og leikmenn eru alltaf að gera það sama og það verður mjög leiðinlegt til lengdar. Tegund: Platformleikur PeGi-merking: 7+ Útgefandi: Sony Computer dómar: 4 af 10 – Gamespot 5,9 af 10 – IGN.com 4 af 10 – Eurogamer.net knack Ólafur þÓr jÓelsson Tölvule ikur allt að gerast.. en samt ekki neitt..

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.