Hafnarfjörður - Garðabær - 14.10.2011, Side 13
1314. OKTÓBER 2011
Íslandsmeistarar FH í handbolta unnu frækinn sigur 29-28 á belg-íska liðinu Initia Hasselt í EHF-
keppni karla í Belgíu síðastliðinn
sunnu dag. Ólafur Gústafsson var
atkvæðamestur FH-inga með 6
mörk.
Leikurinn var mjög kaflaskiptur og
voru FH-ingar tvisvar nánast búnir
að gera úti um leikinn en góðir kaflar
hjá Hasselt hleyptu þeim síðarnefndu
aftur inní leikinn.
Það má segja að lokamínútur
leiksins hafi ekki verið fyrir hjart-
veika þar sem gríðarleg spenna
var milli liðanna um það hvaða lið
myndi fara með sigur úr bítum.
En það voru FH-ingar sem höfðu
betur undir lokin. Stórskyttan og
markahæsti maður FH í leiknum,
Ólafur Gústafsson, fékk að líta rauða
spjaldið um miðbik síðara hálfleiks
fyrir þrjár brottvísanir. Seinni leik ur
liðanna verður í Kaplakrika næst-
komandi sunnudag.
Mörk FH: Ólafur Gústafsson 6,
Bald vin Þorsteinsson 5, Magnús
Óli Magnússon 4, Örn Bjarkason,
3, Halldór Guðjónsson 2, Ragnar
Jóhannsson 2, Þorkell Magnússon 2,
Ari Þorgeirsson 2, Atli Stein þórsson
2, Sigurður Ágústsson 1.
-/ÁÞS
ótrúlegur sigur Fh í belgíu
besti maður leiksins var Ólafur Gústafsson
Ólafur Gústafsson átti góðan leik í
Belgíu þrátt fyrir að hafa verið
vísað af velli.
smáhýsi rísa við
víkingastrÆti
Fjörugarðurinn hefur fengið
samþykki bæjarráðs fyrir stækkun
á lóð sinni við Víkingstræti og er
fyrir hugað að byggja þar 14-16 smá-
hýsi í víkingastíl. Jóhannes Viðar
Bjarna son eigandi Fjörugarðsins
segir í samtali við HAFNARFJÖRÐ
að bygging húsanna hefist innan
skamms og stefnt sé að því að húsin
verði tilbúin næsta vor.
„Þetta verður ný vídd í þjónustu
við ferðamenn, og ég sé fyrir mér
að í framtíðinni víki íþróttahúsið og
prentsmiðjan við Suðurgötu og hér
rísi lágreist byggð “ segir Jóhannes
og bætir því við að sumarið hafi
verið afar gott þar sem erlendum
ferðamönnum fjölgaði töluvert í
sumar.
-hþ
umhverFis- og
auðlindasteFna
mótuð
Stofnaður hefur verið starfshópur
vegum Umhverfis- og framkvæmda-
ráðs sem ætlað er að móta stefnu í
um hverfis- og auðlindamálum fyrir
Hafnarfjarðarbæ. Hópnum er ætlað
að leggja fram tímasetta áætlun
um framkvæmd stefnunnar fyrir 5.
nóvember.
Í nefndinni sitja Margrét Gauja
Magnúsdóttir formaður, Eyjólfur
Sæmunds son, Gestur Svavarsson,
Helga Ingólfsdóttir og Valdimar
Svav ars son. Umhverfisteymi bæjar-
ins starfar með nefndinni.
-hþ
síbrotamaður
dÆmdur til
Fangelsisvistar
36 ára gamall Hafnfirðingur var á
dögunum dæmdur til 6 mán aða
fangels isvistar fyrir ítrek uð innbrot í
heimahús og fyrir tæki. Afbrotin sem
maðurinn framdi voru innbrot á
heimili á Dreka völlum og í Vestur-
holti, þjófnað á fjórhjóli, inn brot
í tvo bíla, fíkniefna akstur og að
hafa ekki skilað bíl sem hann fékk
til reynsluaksturs á bílasölu. Sum
afbrotin framdi hann í félagi við
konu sem fædd er árið 1986.
Maðurinn sem fæddur er árið
1975 hefur áður verið dæmdur til
refsingar fyrir ýmis brot frá árinu
1994. Hann hefur verið vistaður
á Litla-Hrauni og tekur þar þátt í
meðferðarstarfi og var það metið
honum til refsilækkunar.
-hþ
sakamálum Fjölgar
við héraðsdóm
Sakamálum við Héraðsdóm
Reykjaness fjölgaði um 128 á fyrri
helmingi áranna 2010 og 2011 eða
um tæp 19 % úr 554 í 682.
Fjölgun var einnig í gjaldþrota-
skipta málum, úr 410 málum árið
2010 í 434 mál árið 2011. Fækkun
varð í einkamálum á sama tímabili;
árið 2010 voru málin 1902 en á
yfirstandandi ári voru þau 1253.
-hþ