Hafnarfjörður - Garðabær - 14.10.2011, Page 14
14. OKTÓBER 201114
Björk Jakobsdóttir leikkona og leikstjóri stýrir nú upp setningu Leikfélags Hafnarfjarðar á Fúsa
froska gleypi, fjölskyldusýningu
sem hefur vakið mikla lukku en
sýningar verða að minnsta kosti
út októbermánuð. Aðalleikarar
sýningar innar eru ungir að árum
og sýna það og sanna að þeir standa
fyllilega undir þeirri ábyrgð sem
þeim er falin. Björk hefur starfað að
leiklistarmálum í Hafnarfirði um
áratugaskeið og hóf feril sinn hjá
Leikfélagi Hafnarfjarðar í leikritinu
Þið munið hann Jörund.
„Ég var dregin á eyrunum inní
Leikfélagið á sínum tíma og tók þar
þátt í mörgum sýningum og öðlaðist
þar góða reynslu. Þá var ég feimna
stelpan sem sat útí horni. Feimnin
rann svo af mér með reynslu og
menntun nú er ekki flóafriður fyrir
mér.“
„Leikfélag Hafnarfjarðar hefur
getið af sér marga frábæra listamenn
eins og Herdísi Þorvalds, Stefán
Karl, Stein Ármann, Vigdísi Gunn-
ars dóttur, og Gunnar Björn kvik-
myndaleikstjóra með meiru og ég
gæti haldið lengi áfram. Allt er þetta
fólk sem hóf ferilinn hjá Leik félagi
Hafnarfjarðar.
„Eiga eftir að verða
landþekktir leikarar“
Við eigum nú þegar sterkan hóp
hafnfirskra krakka á aldrinum
18–20 ára sem eiga framtíðina fyrir
sér í leikhúsi. Krakkar sem byrjuðu
í leiklistinni í unglingavinnunni
á sínum tíma og í unglingadeild
Leikfélags Hafnarfjarðar. Ég sé þar
einstaklinga sem eiga eftir að verða
landsþekktir leikarar, Ég get t.d
nefnt Elmar sem leikur titil hlut-
verkið í Fúsa froskagleypi, hann
minnir mig mikið á Stefán Karl,
alger náttúrutalent“ segir Björk og
heldur áfram. Mig langar mikið að
halda áfram að vinna með þess um
hæfileikakrökkum. Hver veit nema
við skellum af stað í Gaflara leik hús-
inu svokölluðu leik hús sports kvöld-
um í anda Who‘s line is it anyway
sem er vinsæll þáttur í sjón varpi.
Þetta er einskonar keppni í spuna og
gríni sem á rætur sínar að rekja til
upp uppistandsklúbba í Bret landi“
Björk hefur mikinn áhuga á upp-
byggingu leikhúslífs í Hafnar firði
sem og að leiklistin verði notuð
meira í grunnskólum „Ég sé gríðar-
legar breytingar á krökkum þegar
þau koma á leiklistarnámskeið hjá
mér og eru búin að fara aðeins í
gegnum sjálfstrausts-, jákvæðni- og
sam spilsæfingar. Það er eins og
feimnin leki bókstaflega af þeim
þegar þau yfirvinna hræðsluna við
höfnun. Það er svo miklu auðveldara
að koma með hugmyndir þegar þú
veist að það á enginn eftir að rang-
hvolfa augum og segja þér hvað þetta
sé glatað. Til að hægt sé að spinna
saman í leiklist er grundvallaratriði
að samþykkja tilboð annara. “
Gestum boðið uppá svið
Við höfum allt til að bera til að
búa til menningarsetur leiklistar í
Hafnarfirði. Við höfum húsnæði,
reynda fagmenn á öllum sviðum og
mér finnst að hér ætti að starfa öflugt
unglingaleikhús. Leikfélag Hafnar-
fjarðar hefur tekið mikinn kipp og er
að rísa upp á ný. Íþrótta félögin búa til
afreksfólk í íþróttum, leikhúsið á að
gera það sama varð andi leiklistina.“
Á sýningunni um Fúsa froska-
gleypi er sýningargestum boðið
uppá svið að sýningu lokinni, þeir
geta spjallað við leikarana, fengið
myndatöku af sér með þeim og
skoðað leyndardóma sviðsins og
leikmuni. Þetta hefur vakið mikla
lukku meðal yngri leikhúsgesta sem
lifa sig mikið inní leiksýninguna.
Gaflaraleikhúsið er atvinnuleikhús
og rekið af atvinnufólki þrátt fyrir að
Leikfélag Hafnarfjarðar hafi einnig
aðsetur í húsinu.
„ Ég er ein af stofnendum og
leik hússtjórum Gaflarleikhússins
ásamt Gunnari Helgasyni, Ágústu
Skúla dóttur og Gunnari Birni sem
eru öll snillingar á sínu svið að
ógleymdum Lárusi Vilhjálmssyni
fram kvæmdastjóra,
Hjá Göflurum eru fjölmörg
verk efni á döfinni. Í október
verður Anna Svava Knútsdóttir
með uppistand , Björk og Þórunn
Lárus dóttir ætla að frumsýna revíu-
upp stand í nóvember sem kallast
Perlur og vín og eftir áramótin
verður frumsýnd ný leikgerð eftir
ævintýrum Munchausen í leik-
stjórn Ágústu Skúladóttur. Svo er
hóp ur inn með leiklistarnámskeið
vetur og sumar og samstarf við
grunnskóla Hafnarfjarðar um menn-
ingarkennslu í unglinga deild um.
Vill sterkt og öflugt
samfélagsleikhús
„Þar á ég við leikhús með vönduð um
atvinnusýningum, sterku áhuga leik-
félagi og góðu menningar upp eldi
fyrir komandi kynslóðir. Gaflara-
leikhúsið á líka að þjóna Hafn firð-
ing um sem menningarsetur fyrir
allra handa uppákomur. Við höfum
verið með uppákomur eins og
leik sýningu barna á leikskólanum
Hjalla. Tónleika Lúðrasveitar
Hafnar fjarðar, tónleika með Polla-
pönki og margt fleira.“
„Sem sagt opið leikhús fyrir alla er
okkar markmið og þeir sem vilja fá
nánari upplýsingar eða panta miða
geta hringt í 565-5900“ segir Björk
Jakobsdóttir og svo er hún rokin af
stað á fyrstu æfingu á Perlur fyrir
Vín revíunni sem frumsýnd verður í
nóvember. -hþ
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda
alhliða loftverkfæraþjónusta
20%
Afsláttur
Af öllum loftverkfærum
Loftverkfæri - Helluhrauni 14 - 220 Hafnarf.
Opið frá 10:00 til 17:00 - Sími: 571-4100
www.loftverkfaeri.is
mikil gróska í leiklistar-
starFi í haFnarFirði
„Eigum að búa til afreksfólk í leiklist ekki síður en í íþróttum“
Leikfélag Hafnarfjarðar 75 ára. Eins og fram kemur í viðtali við Björk
Jakobsdóttur hér í blaðinu þá stigu margir leikarar sín fyrstu skref á sviði
hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar. Á þessari mynd sjást þau Sigurður Kristinsson,
einn af máttarstólpum LH um árabil og Herdís Þorvaldsdóttir sem hefur átt
farsælan feril sem atvinnuleikari. – Mynd: Leikfélag Hafnarfjarðar
Björk Jakobsdóttir