Barnablaðið - 15.02.2014, Blaðsíða 6
Krakkakynning
Svíar horfa á Kalle Anka (Andrés Önd)
í sjónvarpinu á aðfangadag
BARNABLAÐIÐ6
Hvað stingur í stúf?
Lausn aftast.
Nafn: Vigfús Fródi Fujio Árnason
Aldur: 7 ára (8 ára í maí)
Ég á heima: Í Stokkhólmi, Svíþjóð
Fjölskyldan mín: Mamma, pabbi, Tómas (5
ára) og Emil (3 ára)
Skóli og bekkur: 1C í Västbergaskolan í
Stokkhólmi
Uppáhaldsnámsgreinar: Leikfimi
- Gympa heitir það á sænsku.
Áhugamálin mín eru:
Spila fótbolta, safna
fótboltakortum, leika
við vini mína, spila
spil, leika mér með
Beyblade og að
horfa á keppnir í
sjónvarpi eins og t.d.
Sveriges Mästerkock
sem er keppni í að elda
mat.
Uppáhaldsmaturinn minn hér er: Pítsa,
sænskar kjötbollur með sultu og kartöflumús
og líka spaghetti Bolognese.
Manstu eftir einhverjum sið sem er
öðruvísi í Svíþjóð en á Íslandi: Midsommar
(Jónsmessuhátíð) þar sem allir eru
með blómakransa og dansa í kringum
midsommarstöng og syngja sænsk lög og borða
kjötbollur og fleira.
En jólasið sem er öðruvísi? Svíar
horfa á Kalle Anka (Andrés Önd)
á aðfangadag.
Í sumar...: Í sumar æfði
ég fótbolta með Val á
Íslandi og með liðinu
Aspudden-Tellus í
Svíþjóð.
Uppáhalds í Svíþjóð:
Skemmtilegast er
að spila fótbolta með
vinum mínum í Svíþjóð.
Uppáhalds á Íslandi: Vera í heimsókn hjá
ömmu og afa og fara í pottinn með afa og fara
með dósir í endurvinnsluna og fá pening.
Eitthvað að lokum? Mig langar að skila kveðju
til Péturs Goða frænda míns og Elínar Helgu
frænku minnar og líka ömmu og afa og allra
sem þekkja mig á Íslandi.
Vigfús með vinum
Tengdu tölurnar
Smásaga
Tinna Malín, 7 ára vinkona blaðsins á Akureyri, sendi þessa
gamansögu, frá áramótunum. Takk fyrir Tinna:
Ég var að leika flugeld um daginn.
Þegar ég var búin að springa
sagði pabbi minn; „Það verður að
henda sprengjunni!“
Hann tók mig upp eins og dúkku
og ætlaði að henda mér í ruslið!!
Endir.
Takk fyrir,
Tinna, 7 ára.
Lausn aftast
Hver
skýtur
í mark?
Jóhann
Iðunn
Ólafur
Freyja
Jóhann, Iðunn,
Ólafur og Freyja
hafa öll gaman
af bogfimi. Sérð
þú hvert þeirra
náði að skjóta
hér í mark?