Barnablaðið - 15.02.2014, Side 7
BARNABLAÐIÐ 7
Drátthagi blýanturinn
Bananafrostpinnar
Hver kannast ekki við
að hafa velt fyrir sér
hversu hratt neglur
manns og hár vaxa?
Eflaust flestir. Í Banda-
ríkjunum hafa menn
gengið svo langt að
búa til vél sem mælir
þetta nákvæmlega, þ.e.
hversu hratt og mikið
neglur og hár mannsins
vaxa á hverjum tíma.
Kom í ljós að hvort
tveggja vex hraðar á
daginn en á næturnar,
þótt það sé aðeins
mismunandi eftir fólki.
Neglur vaxa reyndar
aðeins hægar en hár
en það vex að meðaltali
um 0,4 mm á dag eða
10-15 cm á ári.
Aðferð:
Það er auðvelt að búa til þessa ljúffengu bananapinna.
Munið bara að fá leyfi einhvers fullorðins áður en þið hefjist handa.
1. Afhýðið og skerið bananana í
tvennt. Stingið hreinni ísspýtu eða
hálfu bambusgrillspjóti í. Pakkið í
plastfilmu og frystið í 4 klst eða yfir
nótt.
2. Þegar bananarnir eru frosnir,
biðjið einhvern fullorðinn um að
hjálpa ykkur að bræða súkkulaði í
skál. Blandið kókosolíu og agave-
sírópi út í og hrærið vel.
3. Þegar súkkulaðið er bráðið leyfið
því að kólna í smástund. Hafið
kurlið tilbúið í skál til hliðar.
4. Dýfið bananapinnunum í
súkkulaðið (gott er að hafa það í
sósukönnu). Þekið banana næst
með kurlinu. Leggið síðan á
bökunarpappír.
5. Geymið súkkulaðibanana í frysti
þar til þeir eru borðaðir.
Gjörið þið svo vel!
Það sem þarf (gerir 6 pinna):
3 bananar
120 gr hjúpsúkkulaði
1 tsk kókosolía
1 tsk agave-síróp
Kurl til skrauts, t.d. kókosmjöl,
hnetur, Rice Crispies eða annað.
Hár og
neglur
VölundarhúsFalin mynd
Hjálpaðu skauta-
parinu að skauta í
verðlaunasæti.
Litaðu punktuðu reitina hér til að komast að því hvað er á myndinni?
Lausn aftast
Hvaða leið? Stafarugl
Hvaða leið
á Malli mús
að velja
hérna
til að ná í
ostahúsið?
Lausn aftast Lausn aftast
Einkunnarorð Ólympíuleikanna eru falin hér í stöfunum.
Sjáðu hvort þú sérð þau.
H
SH
R
T
Æ A
E
R
Ð
R
R
R
AK
A
R
A