Morgunblaðið - 26.03.2014, Qupperneq 9
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2014
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Allar íbúðir í tveimur fjölbýlis-
húsum við Vindakór 2-4 og 6-8 í
Vatnsendahverfi í Kópavogi hafa
verið auglýstar til sölu. Ekki er um
nýbyggingu að ræða, en bygging-
arár húsanna er skráð 2007 sam-
kvæmt Fasteignamati ríksins. Þó
hefur aldrei verið búið í íbúðunum
því framkvæmdir við þær stöðv-
uðust um hríð, en hófust síðan aftur
fyrir nokkru.
Um er að ræða alls 54 íbúðir, þær
eru á bilinu þriggja til 5 herbergja
og stærð þeirra er frá um 120 m²
upp í um 195 m². Fasteignasalan
Miklaborg er ein þeirra fasteigna-
sala sem eru með íbúðirnar til sölu-
meðferðar.
„Húsin voru reist árið 2007. En
síðan kom hrunið og framkvæmdir
stöðvuðust,“ segir Atli S. Sigvarðs-
son, sölufulltrúi hjá Mikluborg.
„Þau stóðu uppsteypt um tíma, fyr-
ir nokkru var gerð úttekt á hús-
unum og í framhaldi af henni
ákveðið að fara af stað aftur.“
Að sögn Atla verða íbúðir í öðru
húsinu tilbúnar til afhendingar nú í
apríl, en nokkru síðar í hinu húsinu.
Hann hefur starfað við fasteigna-
sölu í um áratug og spurður að því
hvort algengt sé að heilu blokk-
irnar séu til sölu, segir hann að það
gerist af og til. Þá sé þó að öllu
jöfnu um nýbyggingar að ræða.
Enn nokkuð af lóðum í hverfinu
Vatnsendahverfið hefur stundum
verið tekið sem dæmi um þenslu í
nýbyggingum á árunum fyrir hrun,
en nokkuð var um það eftir banka-
hrunið haustið 2008 að lóðarhafar
skiluðu lóðum sínum og víða um
hverfið má sjá hálfkláruð hús.
Enn er talsvert af lausum lóðum í
Vatnsendahverfi. Samkvæmt vef-
síðu Kópavogsbæjar eru þar lausar
68 einbýlishúsalóðir og tvær lóðir
fyrir parhús.
Morgunblaðið/Þórður
Vindakór Önnur þeirra íbúðablokka sem eru til sölu í Kópavogi.
Tvær blokkir til
sölu í Kópavogi
54 íbúðir sem voru byggðar 2007
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar
á Facebook
BUXNADAGAR
-20% af öllum buxum
Þar sem bíltúrinn
borgar sig...
Duffy
5.990 kr
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
54% þolenda kynferðislegs
ofbeldis verða fyrir misnotkun
oftar en einu sinni.
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Þú minnkar um
eitt númer
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
Perfect fit
Vertu
vinur
á
Margir litir
Alþjóðasamtök flugvalla (Airports
Council International (ACI)) hafa
valið Keflavíkurflugvöll á heiðurs-
lista yfir bestu flugvelli í heimi – ACI
Director General’s Roll of Excel-
lence. Útnefningin nær til flugvalla
sem óslitið hafa sýnt frábæran ár-
angur í þjónustukönnunum samtak-
anna meðal flugfarþega frá árinu
2008, segir í tilkynningu frá Isavia.
Alls hefur 21 flugvöllur hlotið
þennan heiður frá árinu 2011 og í ár
bætast eftirtaldir sex alþjóðaflug-
vellir í hópinn: Keflavíkurflugvöllur,
Dubai-flugvöllur í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum, Kaíróflugvöll-
ur í Egyptalandi, Hyderabad Rajiv
Gandhi-flugvöllur á Indlandi, Taoyu-
an-flugvöllur á Taívan og Sangster-
flugvöllur á Jamaíku.
Þá kemur fram í tilkynningunni að
framkvæmdastjóri ACI segi áherslu
á að uppfylla síauknar væntingar
farþega skipta sköpum í samkeppn-
ishæfni alþjóðaflugvalla. Þessir sex
flugvellir hafi ítrekað sýnt að þar
ríkir mikill skilningur á áherslu far-
þega á góða þjónustu. „Þessi frábæri
árangur er fyrst og fremst að þakka
starfsfólki og samstarfsaðilum okkar
á Keflavíkurflugvelli og áherslu á sí-
fellt aukna þjónustu,“ er haft eftir
Birni Óla Haukssyni, forstjóra
Isavia, í tilkynningu.
Keflavíkurflugvöllur
á meðal þeirra bestu
Hundurinn
var ekki Sámur
Ranghermt var í myndatexta á bak-
síðu blaðsins í gær að Sámur, hund-
ur forsetahjónanna á Bessastöðum,
væri með Dorrit og björgunarsveit-
armanni á myndinni. Þar var á ferð
annar hundur sem tók þátt í leit-
aræfingu á Hólmavík. Beðist er vel-
virðingar á þessum leiðu mistökum,
um leið og birt er mynd af Sámi.
LEIÐRÉTT
Morgunblaðið/Kristinn