Morgunblaðið - 26.03.2014, Síða 11
engin önnur. Allt í einu fóru fjar-
skyldar frænkur að panta fyrir
fermingardrengi og gamlir vinir
vildu mynd af sér. Ég varð alveg
himinlifandi yfir viðbrögðunum og
táraðist af gleði við hvern þús-
undkallinn sem safnaðist.“Alma var
síðan hvött af vinum sínum til að
hækka verðið á myndunum sem hún
gerði. Þá gat hún líka keypt betri
penna og blöð til þess að teikna
myndirnar. „Svo kom að því að fólk
sem ég hafði aldrei hitt fór að panta
myndir. Einnig sendi Nýtt Líf mér
póst og vildi endilega fá mynd og
grein í blaðið.“ Stuttu síðar hafði
Elma Dögg Steingrímsdóttir, eig-
andi Gallerí Dusted, samband við
Ölmu og spurði hana hvort hún hefði
áhuga á að halda sýningu þar. Alma
segir að það hafi komið sér mikið á
óvart og hélt að þetta væri einhvers-
konar grín, „Það að litla sæta óör-
ugga krotið mitt sé að fá einkasýn-
ingu og opnun á Hönnunarmars er
eitthvað sem ég bjóst alls ekki við.“
Ásamt því að teikna eftir pöntunum
hefur Alma einnig verið að teikna
myndir af ýmsu þekktu fólki eins og
Tolstoy, Halldóri Laxness, Fridu
Kahlo og Sigmund Freud og verða
þær í aðalhlutverki á sýningunni.
„Þemað á sýningunni er fólk sem ég
lít upp sem ég lít á sem ímyndaða
vini mína. Myndirnar mínar af þeim
eru ólíkar myndum sem aðrir hafa
teiknað af þeim því mér finnst ég
vera teikna vini mína.“ Þegar Alma
er beðin um að lýsa myndunum seg-
irhún að þær séu litlar, krotaðar og
persónulegar.
Nú þar sem pantanirnar
streyma inn er Kroterí orðin ágætis
vinna fyrir Ölmu. „Ég er í tveimur
vinnum núna, og þarf bara aðeins að
skipuleggja mig. Þetta er samt svo
gaman að mér finnst orðið vinna
varla eiga við.“ segir Alma að lokum.
Sýningin „Kroterí“ verður
opnuð annað kvöld klukkan 20 í Gall-
erí Dusted, Pósthússtræti 13.
„Allt í einu fóru fjar-
skyldar frænkur að
panta fyrir fermingar-
drengi og gamlir vinir
vildu mynd af sér“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2014
jónsdóttir auk Kristians Guttesen
sem er umsjónarmaður þess. Þetta
eru allt reynslumiklir höfundar og
ættu nemendur ekki að verða
sviknir af kennslunni. Námskeiðið
er að mestu haldið í Fellaskóla en
stefnt er að því að hluti þess fari
fram á Skriðuklaustri í Fljótsdal.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi
eða Gunnarsstofnun standa fyrir
námskeiðahaldi á sviði ljóðagerðar
og ritlistar. Samkvæmt tilkynningu
er einn megintilgangur námskeiða
á borð við þetta að efla veg ljóð-
listar og smásagnagerðar á Austur-
landi. Byggist það á þeirri hug-
mynd, þrátt fyrir trú margra um að
listsköpun verði ekki kennd, að
hægt sé að efla fólk í ritlist með
leiðsögn og samskiptum við jafn-
ingja.
Námskeiðin hófust um seinustu
helgi en fara einnig fram núna um
helgina og helgina þar á eftir, 5. og
6. apríl. Alltaf er kennt í Fellaskóla
nema núna á laugardaginn þar sem
kennsla fer fram að Skriðuklaustri.
Kennt er frá kl. 9.30 til 15.30.
Námskeiðsgjald er 10.000 krónur
og er hægt að skrá sig með því að
senda tölvupóst á arnarsig@me.is.
Í seinni hluta mars og byrjun apríl
halda Félag ljóðaunnenda á Austur-
landi og Gunnarsstofnun námskeið
í ritlist með aðkomu Mennta-
skólans á Egilsstöðum og Rithöf-
undasambands Íslands. Þetta er
þriggja helga námskeið þar sem
farið verður í ljóðagerð, örsögur og
smásögur. Nemendur fá að spreyta
sig á þessum formum undir leið-
sögn og verður hverjum og einum
mætt þar sem hann er staddur.
Námskeiðið er því ætlað öllum sem
á annað borð hafa áhuga á að
prófa sig áfram í ritlist, óháð aldri
og getustigi.
Eitt af markmiðum námskeiðsins
er einmitt að stefna saman yngra
og eldra áhugafólki um ritlist með
það fyrir augum að þátttakendur
miðli hver til annars og styrkist
þannig í eigin sköpun. Veitt verður
innsýn í margs konar handbragð
ritlistar með það að leiðarljósi að
þátttakandinn finni sína eigin rödd.
Einnig stendur til að fjalla um
bókaútgáfu og leiðbeina þátttak-
endum um hvernig koma megi
verkum sínum á framfæri.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru
þau Ingunn Snædal, Skúli Björn
Gunnarsson og Sigríður Lára Sigur-
Ritlistarnámskeið heldur áfram um helgina
Morgunblaðið/Ómar
Ritlist Hluti námskeiðsins fer fram í Skriðuklaustri í Fljótsdal um helgina.
Nemendur spreyta sig á ljóða-
gerð, örsögum og smásögum
Sauðkindin, leiklistarfélag Mennta-
skólans í Kópavogi, frumsýnir
söngleikinn Börrlesk á morgun.
Sýningin er í anda myndarinnar
Burlesque og segir frá sveitastelp-
unni Ali sem flytur í stórborgina til
að láta drauma sína rætast.Hún
rekst á hinn fræga stað Burlesque
þar sem stemningin er í 50’s stíl
og dansararnir eggjandi. Þar byrjar
hún að vinna sem þjónn þrátt fyrir
að draumurinn sé að vera dansari.
Þar kynnist hún barþjóninum Jack
og komast þau að því að þau eiga
margt sameiginlegt. Leikstjórar
sýningarnar eru þau Júlíana Sara
Gunnarsdóttir og Ásgrímur Geir
Logason.
Áætlaðar eru sex sýningar eftir
frumsýninguna á morgun og kostar
2000 krónur fyrir MK-inga og börn
yngri en 12 ára en 2500 kr fyrir
aðra.
Sauðkindin setur upp Börrlesk
50’s stíll og eggjandi
dansar í MK
Frumsýning Sauðkindin, listafélag
MK, frumsýnir Börrlesk á morgun.
NýlegirMitsubishi Pajero á
rekstrarleigu til fyrirtækja
Laugavegi 174 | Sími 590 5040 - Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16
HEKLA býður nú fyrirtækjum nýlegar Mitsubishi Pajero bifreiðar í rekstrarleigu.
Í rekstrarleigu fá fyrirtæki nýlegar bifreiðar til umráða í 1 ár gegn föstumánaðar-
gjaldi. Leigutaki losnar við alla fjárbindingu og endursöluáhættu. Greitt er fast
mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans.
Dæmi:
Pajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 38.000 km, sjálfskiptur
Mitsubishi Pajero er knúinn 3,2 l dísilvél sem skilar
200 hestöflum. Meðal búnaðar bifreiðanna eru
leðurinnrétting, rafdrifin framsæti, aukasæti (7
manna), bakkmyndavél, xenon ljós, ný heilsársdekk
o.fl. (miðað við Instyle útfærslu).
Mánaðarlegt leigugjald:
136.041 kr.m/vsk