Morgunblaðið - 26.03.2014, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2014
Samkvæmt upplýsingum frá Lyfja-
stofnun er nikótín, þar með taldar
nikótínfyllingar í rafsígarettur,
skilgreint sem lyf. Um innflutning
og sölu á lyfjum gilda ákveðnar
reglur en öll lyf sem fara í sölu hér-
lendis þurfa að hafa markaðsleyfi
frá Lyfjastofnun. Hérlendis er
heimilt að selja rafsígaretturnar
sjálfar ásamt bragðvökva án nikó-
tíns en til að mega flytja inn og selja
rafsígarettur með nikótínvökva eða
fyllingar með nikótíni þarf mark-
aðsleyfi frá Lyfjastofnun.
Rafsígarettur sem innihalda nikó-
tín þurfa því að uppfylla sömu kröf-
ur um gæði, öryggi og verkun og
önnur lyf sem innihalda nikótín og
eru þegar á markaði hérlendis en
hægt er að fá nikótín í lyfjatyggi-
gúmmíi, munnúða, nefúða, munn-
sogstöflum, tungurótartöflum, inn-
öndunargufu og forðaplástrum.
Lyfjastofnun fær töluvert af fyr-
irspurnum um innflutning og sölu á
rafsígarettum að sögn Sigríðar
Ólafsdóttur, sviðsstjóra eftirlits-
sviðs hjá Lyfjastofnun. „Annar stað-
ar á Norðurlöndunum er staðan sú
sama og hérlendis og sala á nikótín-
fyllingum án markaðsleyfis er ekki
heimil þar. Í Bretlandi hefur sala á
rafsígarettum sem innihalda nikó-
tín verið leyfð í verslunum í nokkur
ár. Á síðasta ári tóku Bretar
ákvörðun um að herða reglurnar og
frá árinu 2016 skulu allar rafsíga-
rettur sem innihalda nikótín lúta
sömu reglum og lyf,“ segir Sigríður.
„Vegna þess að rafsígarettur
innihalda ekki tjöru eins og venju-
legar sígarettur telja margir að þær
séu skaðlausar. Í rafsígarettum
hafa fundist eiturefni sem geta
valdið notendum skaða og rann-
sóknir hafa ekki sýnt fram á skað-
leysi eftir langtímanotkun rafsíga-
retta sem innihalda nikótín,“ segir
Sigríður. Hún segir einnig að ef
nikótínfyllingar í rafsígarettur
verði leyfðar hér á landi þurfi að
huga að reglum um notkun þeirra
innanhúss. „Nikótín berst með út-
öndunarlofti frá þeim sem neyta
nikótíns í gegnum rafsígarettur til
þeirra sem nærri eru. Það kemur
ekki reykingalykt og því er almenn-
ingur varnarlaus gagnvart nikótín-
inu og veruleg hætta á óbeinni
neyslu niktótíns.“
Ekki taldar skaðlausarSVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Rafsígarettur hafa verið að ryðja sér
til rúms á Íslandi og sá hópur sem
kýs að reyna þær til að hætta að
reykja fer stækkandi. Að reykja raf-
sígarettu er kallað að gufa enda ekki
um reyk að ræða sem kemur úr þeim
heldur gufu, þær eru því stundum
kallaðar gufustautar.
„Við byrjuðum með vefverslunina
2009 og þá fannst öllum þetta skrítið
en síðustu tvö ár er búin að vera góð
sala,“ segir Gestur Hermannsson
sem er með vefverslunina Gaxa sem
selur rafsígarettur og búnað til að
brúka þær. Gestur segir allar gerðir
af fólki kaupa rafsígarettur sem eigi
það sameiginlegt að vera að sækjast
eftir því að hætta að reykja. „Þetta
er engin töfraformúla og hentar ekki
öllum en það heppnast hjá mörgum
að hætta. Ég veit ekki um neinn sem
fær sér rafsígarettu til að byrja að
reykja.“
Slökkt í rettunni
Erling Klingenberg myndlistar-
maður var kominn í að reykja allt að
tvo sígarettupakka á dag þegar hann
ákvað að prófa rafsígarettuna fyrir
um einu og hálfu ári, en önnur nikó-
tínlyf, eins og tyggjó og plástrar,
höfðu fram að því ekki dugað til að
slökkva í sígarettunni.
„Ég var búinn að vera að fylgjast
með breskum vini mínum, sem var
enn meiri reykingamaður en ég, nota
rafsígarettur með góðum árangri.
Ég varð forvitinn og ákvað að prófa
og var enga stund að hætta að reykja
sígarettur,“ segir Erling.
Það eru skiptar skoðanir um raf-
sígarettuna en Erling segir að hann
þurfi ekki annað en að líta í eigin
barm eða á vini sína sem eru líka
komnir yfir í rafsígarettur til að sjá
þann góða árangur sem þær skila í
baráttunni við að hætta að reykja.
„Ég finn mikinn mun á mér eftir
þetta eina og hálfa ár, það er eins og
ég sé hættur að reykja og maður get-
ur ekki haft betri dómara en sjálfan
sig.“
Gagnsemi rafsígarettunnar við að
hætta að reykja byggist þó að mestu
leyti á nikótínvökva sem er notaður í
hana og reykingamaðurinn andar að
sér. Rafsígarettur má selja hvar sem
er hér á landi og vökva með bragði til
fyllingar á þær en ekki með nikótíni.
Nikótín fellur undir lyf og því mætti
aðeins selja nikótínvökvann í lausa-
sölu í apótekum, líkt og nikótín-
tyggjó og nikótínplástra. Enn hefur
enginn sótt um slíkt leyfi til Lyfja-
stofnunar. Gestur hjá Gaxa segir
mikið spurt um nikótínvökva í raf-
retturnar og telur að ef hann kæmi í
sölu hér á landi yrði margföldun í
notkun rafsígarettna á kostnað hefð-
bundinna reykinga. Heimilt er þó að
flytja nikótínvökva til landsins til
einkanota samkvæmt skilyrðum
reglugerðar um innflutning einstak-
linga á lyfjum til eigin nota.
„Til að byrja með þarftu sterkan
nikótínvökva, sérstaklega stórreyk-
ingamenn eins og ég var. En svo
lækkar þú nikótínmagnið smátt og
smátt, trappar þig niður og endar í
að „gufa“ bragðefni, hættir í nikótín-
vökvanum. Það er til umræðu í Evr-
ópusambandinu að takmarka nikó-
tínmagnið í vökvanum en það er ekki
gott að byrja í mjög lágum styrk því
þá er virknin svo lítil og minni líkur á
að manneskjan hætti að reykja síg-
arettur,“ segir Erling.
Tap tóbaksframleiðenda
„Nýjustu fréttir frá Bretlandi eru
þær að þeir telja að um 1,3 milljónir
manna séu búnar að skipta frá sígar-
ettum yfir í rafsígarettur. Það þýðir
mikið tap hjá tóbaksframleiðendum
en gríðarlegan sparnað í heilbrigð-
iskerfinu þegar fram líða stundir.
Sígarettuframleiðendur í Bandaríkj-
unum eru með lobbíista um allt til að
reyna að banna rafsígarettur, það
eru miklir peningar á bak við þetta
og því er þetta stríð. Það er líka
ákveðinn hroki að leyfa sölu á sígar-
ettum úti í búð en á sama tíma segja
nikótínvökva lyf sem aðeins megi
selja í apótekum. Ég hef mikla trú á
að rafsígarettur séu góð leið til að út-
rýma sígarettum og öllum þeirra
fylgikvillum,“ segir Erling.
Skiptar skoðanir um rafrettur
Sístækkandi hópur notar rafsígarettur hér á landi Þykir árangursrík leið til að hætta að reykja
hefðbundnar sígarettur Nikótínvökvi ekki leyfður í almennri sölu enda nikótín skilgreint sem lyf
Rafsígaretta Um er að ræða hylki sem inniheldur vökvalausn sem gufar
upp þegar hún hitnar fyrir tilstuðlan batterís. Gufan inniheldur ekki tjöru.
AFP
Af þeim sem hætta að reykja er
hlutfall þeirra sem nota rafsíga-
rettur til þess ekki hærra en þeirra
sem nota aðrar aðferðir, þetta
kemur fram í bandarískri rannsókn
sem kynnt var í vikunni. AFP grein-
ir frá. Rannsóknin byggðist á svör-
um 940 reykingamanna, 88 þeirra
voru rafsígarettunotendur. Innan
árs höfðu 13% þeirra sem tóku
þátt í rannsókninni hætt að reykja.
Þeir sem notuðu rafsígarettur
voru ekki líklegri en hinir til að
vera hættir innan árs. Þá varð raf-
sígarettan oft viðbót við tóbaks-
reykingar í staðinn fyrir að draga
úr þeim.
Í grein sem birtist í Independent
13. september 2013 segir að raf-
sígarettur séu árangursríkari en
nikótínplástrar til að hjálpa fólki
að draga úr reykingum samkvæmt
rannsókn sem var gerð í Nýja-
Sjálandi. Í henni kemur fram að yf-
ir helmingur þeirra, sem fengu raf-
sígarettur, dró úr sígarettureyk-
ingum um a.m.k. 50% yfir sex
mánaða tímabil miðað við tvo
fimmtu í þeim hóp sem fékk nikó-
tínplástra. En jafn hluti af hóp-
unum hætti alveg að reykja, eða
einn af hverjum tuttugu.
Í dagblaðinu New York Times á
sunnudaginn birtist grein þar sem
segir að það vanti reglugerðir og
aðhald utan um sölu á nikótín-
vökva í Bandaríkjunum. Slys á
börnum sem hafi óvart innbyrt
vökvann hafi aukist mikið. Þá hafi
engar langtímarannsóknir komið
fram um hvort rafsígarettur eru
betri í að hjálpa fólki við að hætta
að reykja en t.d nikótíntyggjó eða
plástrar og engar rannsóknir sýni
langtímaáhrifin af því að anda að
sér nikótíngufu.
Eru til gagns eða ógagns?
ÝMISKONAR RANNSÓKNIR HAFA VERIÐ GERÐAR
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía GWalthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
„...veittu mér framúrskarandi
þjónustu í alla staði“
„Katrín heiti ég. Þau hjónin Binni og Sylvía sáu um
að selja húsið mitt sumarið 2013 og veittu mér
framúrskarandi þjónustu í alla staði. Haldið var
opið hús þar sem þau sáu um að bjóða fólkið
velkomið og fylgdu opna húsinu svo eftir
en það leiddi til sölu sem allir voru sáttir við.
Ég mæli hiklaust með þessum sætu hjónum“
820 8080
Hringdu núna og
pantaðu frítt söluverðmat
Hafið samband við Anders Ingemann Jensen í síma +45 4020 3238 og spjallið um óskir ykkar og væntingar.
Það mun vera möguleiki á að fá einkafund með EBK um byggingaráætlun, annað hvort 1., 2. eða 3. apríl.
Fundurinn verður haldinn á TOP CityLine Hotel Reykjavik Centrum. Nauðsynlegt er að panta fundartíma, annað
hvort gegnum netfangið aj@ebk.dk eða í síma +45 4020 3238. Anders talar dönsku og ensku.
EBK HUSE A/S hefur meira en 35 ára reynslu í uppsetningu á sumarhúsum, þar sem
dönsk hönnun og gæði eru í fyrrirúmi. EBK hús eru meðal hinna leiðandi á markaðinum
með 4 deildum í Danmörku og 3 í Þýskalandi. Við höfum líka margra ára reynslu í að
byggja á Íslandi, í Þýskalandi, Færeyjum, Svíþjóð og Noregi.
Við bjóðum danska hönnun til byggingar og innréttingar
- við höfum nú þegar byggt 50 hús á Íslandi.
EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse
Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk
14
13
7
Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús?
WWW.EBK.DK
DÖNSK HÖNNUN
OG ARKITEKTÚR