Morgunblaðið - 26.03.2014, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2014
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Barack Obama Bandaríkjaforseti
hyggst leggja fram tillögur um
breytingar á lögum sem eiga að
þrengja verulega rétt Þjóðarörygg-
isstofnunar landsins, NSA, til að
safna skipulega upplýsingum um
símanotkun borgaranna, að sögn
New York Times. Gögnin munu þá
verða varðveitt hjá símafyrirtækjun-
um en NSA mun þurfa nýja gerð
dómaraúrskurðar til að fá afhent af-
mörkuð gögn frá þeim.
Efasemdamenn segja að það fari
mjög eftir orðalagi nýju laganna
hvort um raun-
verulega breyt-
ingu verði að
ræða eða bara
fegraða mynd af
þeim gömlu. Ef til
vill ætli Obama
sér aðeins að
friða gagnrýn-
endur innan-
lands. „Lykil-
spurningarnar
eru hvort algerlega verður bundinn
endi á allsherjarsöfnunina og eftirlit
dómskerfisins verður nægilega öfl-
ugt,“ segir Zeke Johnson hjá Banda-
ríkjadeild mannréttindasamtakanna
Amnesty International.
Í væntanlegum tillögum forsetans
er sagt að gamla tilhögunin verði enn
við lýði í 90 daga. Yfirmenn njósna-
stofnana hafa sagt að þessi mikla
gagnasöfnun, sem miðar að því að
greina fjarskipti meintra hryðju-
verkamanna, sé nauðsynleg til að
tryggja öryggi borgaranna og ríkis-
ins. Ekki sé í reynd verið að hlera
boðskipti venjulegra borgara.
En mörgum talsmönnum persónu-
verndar og mannréttinda hefur of-
boðið hve víðtækar heimildir NSA
hefur til að safna gögnum og jafn-
framt hve dómarar hafa verið fúsir
til að veita hlerunarheimildir.
Vill skerða völd NSA
Obama ætlar að leggja fram tillögur um takmarkanir á gagnasöfnun
Efasemdir um að í reynd verði um mikið meira en fegrunaraðgerð að ræða
Hugsanleg málamiðlun
» Uppljóstranir Edwards
Snowdens, fyrrverandi verk-
taka hjá NSA, hafa sýnt að
umfang gagnasöfnunar var
mun víðtækara en almennt var
talið.
» Washington Post hefur eftir
áhrifamiklum þingmanni repú-
blikana, Mike Rogers, að unnið
sé að gerð tillögu um mála-
miðlun sem menn geti sæst á.
Barack
Obama
Enn er yfir 170
manns saknað
eftir aurskrið-
una miklu
skammt frá
Seattle í Wash-
ington-ríki. Vit-
að er að minnst
14 fórust. Björg-
unarmenn fundu
í gær fjögurra
ára dreng, Jacob
Spiller, á lífi inn-
an um brak í
skriðunni. Föður
hans og bróður er enn saknað.
Keðjusagir eru m.a. notaðar við
að komast í gegnum brak húsa á
svæðinu og ættingjar nota sumir
hverjir í örvæntingu hendurnar til
að grafa í von um að finna ástvini
sína á lífi.
Skriðan féll á bæinn Oso, um 90
kílómetrum norður af Seattle, á
laugardagsmorgun þegar flestir
íbúanna voru enn heima. Hún rann
yfir um 30 hús og sundraði flestum
þeirra algjörlega, mörg hús að auki
skemmdust. kjon@mbl.is
WASHINGTON-RÍKI
Barn fannst á lífi
í aurskriðunni
Leðju mokað í
Washington.
Vopnaðir menn gerðu í gær árás á
skrifstofur yfirkjörstjórnar í Kabúl,
höfuðborg Afganistans, einn þeirra
sprengdi sig. Hinir komust inn í
húsið en óljóst var um mannfall
þegar síðast fréttist.
Forsetakosningar fara fram í
landinu 5. apríl nk. en þá munu
Afganar velja arftaka Hamids
Karzais, núverandi forseta. Þetta
er ekki fyrsta árásin sem á sér stað
nú rétt fyrir kosningarnar. BBC
segir að talibanar ætli að sniðganga
kosningarnar og trufla þær. Þeir
álíta lýðræði stangast á við boðskap
íslams. kjon@mbl.is
AFGANISTAN
Árás á kjörstjórn
Utanríkisráð-
herra Rússlands,
Sergei Lavrov og
bráðabirgða-
stjórnarinnar í
Úkraínu, Andríi
Desístsía, hittust
í gær á bráða-
fundi í tengslum
við alþjóðafund
um kjarnorkumál í
Haag. Var þetta í
fyrsta sinn sem Rússar samþykkja
að hitta háttsettan fulltrúa Úkra-
ínu. Úkraínumenn óttast enn rúss-
neska innrás í austurhéruðin.
kjon@mbl.is
ÚKRAÍNA-RÚSSLAND
Fyrsti fundur
ráðherranna
Andríi
Desístsía
Rússneskir sjóliðar á þilfari Alexandrovets, kor-
vettu sem notuð er gegn kafbátum, skipið er á leið
til Sevastopol á Krímskaga. Þar er ein af stærstu
flotahöfnum Rússa. Búið er að innlima Krím í
Rússland, rúblan er orðin að gjaldmiðli héraðsins
og fljótlega verður fleira samræmt. Rússar hafa
auk þess rænt herskipum Úkraínumanna og á
mánudag ákvað stjórnin í Kíev að kalla heim alla
hermenn á skaganum.
Úkraínska þingið samþykkti í gærmorgun
lausnarbeiðni Ígors Tenjúks, aðmíráls og varn-
armálaráðherra. Hann hefur sætt gagnrýni fyrir
að hafa ekki beitt sér nægilega mikið til að verja
úkraínska hermenn á Krímskaga. Háttsettir liðs-
foringjar reyndu árangurslaust að fá fyrirmæli
frá Kíev um viðbrögð þegar ráðist var á bæki-
stöðvar þeirra. Margir úkraínskir hermenn í
Krím hafa síðustu daga annaðhvort gengið í lið
með rússneskum stjórnvöldum eða yfirgefið
svæðið.
Míkhaílo Kovaljov undirhershöfðingi er nýr
varnarmálaráðherra. Tenjúk er úr flokki ákafra
þjóðernissinna, Svoboda (Frelsi), en leiðtogi ann-
arra þjóðernissamtaka, Sashko Bílí, öðru nafni
Oleksander Músítsko, var skotinn í gær í vest-
urhluta landsins þegar hann reyndi að verjast
handtöku vegna þátttöku í skipulögðum glæpum.
AFP
Úkraínskir hermenn kallaðir heim frá Krím
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
ELDHÚSTÆKI