Morgunblaðið - 26.03.2014, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2014
Ínorsku uppvakningagrínhroll-vekjunni Død Snø, eða Dauð-ur snjór, frá árinu 2009, segiraf átta læknanemum sem
halda í páskafrí í norskum fjallakofa
og komast að því að nasistar ofsóttu
íbúa svæðisins rúmum sextíu árum
fyrr og rupluðu þar og rændu allt
þar til íbúar gerðu uppreisn undir
lok seinni heimsstyrjaldar. Flúði þá
foringi nasistahópsins, Herzog, til
fjalla ásamt herflokki sínum með
hluta af ránsfengnum og frusu þeir í
hel. Þennan nasistafjársjóð finna
læknanemarnir og vakna þá nasist-
arnir til lífsins og fara að brytja
nemana niður. Einn þeirra kemst þó
lífs af, Martin, eftir að hafa þurft að
saga af sér hægri framhandlegg og
drepa kærustuna sína með öxi.
Víkur þá sögunni að framhalds-
myndinni, Dauðum snjó 2, sem tekin
var upp að mestu á Íslandi, m.a. á
Eyrarbakka, í fyrra. Í byrjun mynd-
ar tekst Martin að flýja keyrandi
undan nasista-uppvakningunum
með foringjann Herzog hangandi ut-
an á bílnum. Sá missir handlegginn í
átökunum og verður hann eftir í
bílnum. Martin missir rænuna, veltir
bílnum og þegar hann kemst til með-
vitundar liggur hann handjárnaður
við sjúkrarúm á spítala og búið að
græða á hann handlegg nasistans,
hægri handlegg djöfulsins. Hand-
leggurinn tekur völdin af Martin
með kostulegum og afar blóðugum
afleiðingum. Martin tekst að flýja af
sjúkrahúsinu og hafa samband við
hóp bandarískra uppvakningaveiði-
manna sem halda til Noregs til að
aðstoða hann við að útrýma upp-
vakningunum. Í ljós kemur að nas-
istarnir ætla að ljúka verkefni sem
Hitler fól þeim, að útrýma öllum íbú-
um smábæjar í Norður-Noregi og er
Eyrarbakki í hlutverki bæjarins í
myndinni. Tíminn er naumur og til
þess að útrýma nasistunum þarf
Martin að vekja til lífsins rússneska
hermenn sem Herzog og hans menn
slátruðu.
Dauður snjór 2 er skemmtileg
grínhrollvekja og eflaust skemmti-
legri fyrir Íslendinga en aðrar þjóðir
þar sem fjöldi íslenskra leikara og
statista kemur við sögu, þó stutt sé,
flestir brytjaðir niður nokkrum sek-
úndum eftir að þeir birtast. Má þar
m.a. nefna hinn ágæta Guðmund
Ólafsson sem drepinn er af nasista
þar sem hann situr á klósettinu og er
að lesa dagblað. Blóðsúthellingarnar
eru allsvakalegar og greinilegt að
leikstjórinn hefur mikið hugmynda-
flug þegar kemur að skrautlegum
slátrunum. Þá eru garnir fórnar-
lamba nýttar til ýmissa hagnýtra
verka sem ekki verður farið nánar út
í hér.
Dauður snjór 2 gefur sambæri-
legum Hollywood- myndum ekkert
eftir í gæðum, kostulegir búningar
og gervi og brellur fínar. Þá standa
leikarar sig ágætlega og fer þar
fremstur í flokki Vegar Hoel í býsna
erfiðu hlutverki Martins. Atriðin þar
sem nasistahandleggurinn tekur af
honum völdin eru t.a.m. spreng-
hlægileg. Ef ekki væri fyrir fanta-
gott grín væri Dauður snjór 2 upp-
vakningamynd í meðallagi. Blek-
svart og blóðugt spaug gerir mynd-
ina að ágætisskemmtun en hún er
ekki fyrir klígjugjarna, svo ekki sé
fastar að orði kveðið.
Hægri handleggur djöfulsins
Hroðalegir Nasistauppvakningar á íslenskri heiði. Foringinn Herzog í forgrunni. Dauður snjór 2 er sótsvört grínhrollvekja.
Háskólabíó, Smárabíó
og Borgarbíó
Dauður snjór 2/Død Snø 2 bbbnn
Leikstjóri: Tommy Virkola. Aðalhlutvek:
Vegar Hoel, Martin Starr, Derek Mears,
Amrita Acharia, Ingrid Haas, Stig Frode
Henriksen, Örjan Garnst og Jocelyn
DeBoer. Noregur, Ísland, 2014. 100 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð
stendur nú yfir í Bíó Paradís og
hefur aðsóknin verið mun meiri í ár
en að hátíðinni í fyrra. Fullt var út
úr dyrum á frumsýningum tveggja
mynda hátíðarinnar, Antboy og
Andri og Edda verða bestu vinir.
Hátíðin stendur til 30. mars og eru
ýmsir sérviðburðir á dagskrá henn-
ar, m.a. hryllingsmyndakvöld 29.
mars ætlað 15 ára og eldri en á því
verða sýndar stuttmyndin Memoria
eftir Elísabetu Ýr Atladóttur og
japanska teiknimyndin Vampire
Hunter D: Bloodlust. Einnig verða
sýndar klassískar gamanmyndir
frá þögla tímabilinu, The Kid eftir
Charles Chaplin og Safety Last! eft-
ir Harold Lloyd. Af öðrum áhuga-
verðum myndum má nefna teikni-
myndna Le jour des corneilles, eða
Dag krákanna, eftir Jean-Christ-
ophe Dessaint en einn af forsprökk-
um frönsku nýbylgjunnar, Claude
Chabrol, leiklas inn á myndina
skömmu áður en hann lést.
Aukin aðsókn að barnakvikmyndahátíð
Krakkinn Úr sígildri kvikmynd Charles
Chaplin, The Kid, frá árinu 1921.
Menningarhúsið Mengi tekur þátt í
Hönnunarmars og sýnir innsetn-
ingu á nýrri húsgagnalínu hönn-
unarteymisins Volka sem ber heitið
Viti by Volki. Í línunni eru inni- og
útihúsgögn unnin út frá formi og
hlutverki vitans, eins og segir í til-
kynningu. Volki er hugarfóstur El-
ísabetar Jónsdóttur og Olgu
Hrafnsdóttur og verður línan af-
hjúpuð kl. 17. Á föstudaginn treður
teiknarinn og grínistinn Hugleikur
Dagsson upp og fer með gamanmál
og segir í til-
kynningu að von
sé á sjóðheitum
upphiturum.
Rapparinn Cell7
skemmtir gest-
um Mengis svo á
laugardaginn,
flytur efni af
fyrstu skífu
sinni, Cellf, sem
gefin var út í
fyrra, auk annarra laga.
Hönnun, gamanmál og rapp í Mengi
Ragna Kjartans-
dóttir er Cell7
F
A
X
:
5
6
5
-2
3
6
7
N
ET
FA
N
G
:V
EI
SL
UL
IS
T@
VE
IS
LU
LIS
T.I
S
ST
O
FN
AÐ
19
75
Skútan
H Ó L S H R A U N 3
220 HAFNARJÖRÐUR
SÍMAR: 555-1810 / 565-1810
WWW.VEISLULIST. IS
PANTANIR FYRIR VEISLUR
ÞURFA AÐ BERAST TÍMALEGA.
GÓÐ FERMINGARVEISLA
GLEYMIST SEINT...
Fermingar-
veisla
Bjóðum nokkrar gerðir af fermingarborðum.
Fjölbreyttir réttir smáréttaborðanna okkar henta bæði í hádegis- og kvöldveislur.
Tertu og
Tapasborð
frá 3.640.-
Fermingar
kaffihlaðborð
frá 2.148.-
Súpa brauð og
smáréttir
frá 2.821.-
1 2 3 PÁSKABLAÐIÐ:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 7. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
SÉRBLAÐMorgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað tileinkað
páskahátíðinni
föstudaginn
11. apríl
Í blaðinu verða
girnilegar uppskriftir
að veislumat og
öðrum gómsætum
réttum ásamt
páskaskreytingum,
páskeggjum,
ferðalögum og fleira