Morgunblaðið - 28.03.2014, Side 8

Morgunblaðið - 28.03.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2014 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is mánudaginn 31. mars, kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg Jóhannes S. Kjarval Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd í dag föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Listmunauppboð í Gallerí Fold Í frétt Mbl í gær sagði:   Héraðsdómur Suðurlandsdæmdi í dag konu til skil- orðsbundinnar fangelsisvistar fyr- ir tilraun til fjár- svika og gripdeild. Þýfið var límbands- rúlla, að verðmæti 599 kr., sem konan greip úr hillu á bensínstöð og reyndi að blekkja afgreiðslumanninn til að skipta fyrir aðra vöru.    Brotið átti sér stað að kvöldisunnudagsins 6. október 2013, í verslun Shell við Aust- urmörk í Hveragerði. Í ákæru kemur fram að konan hafi gripið límbandsrúlluna úr hillu og rak- leiðis farið að afgreiðsluborði verslunarinnar þar sem hún reyndi að blekkja afgreiðslumann- inn til að skipta límbandsrúllunni fyrir aðra vöru í versluninni.    Þegar henni var neitað umskiptin fór konan með um- rædda límbandsrúllu ógreidda út úr versluninni. Ákæruvaldið, sem var sýslumaðurinn á Selfossi, krafðist þess að konunni yrði refs- að fyrir athæfið. Konan hefur einu sinni áður sætt refsingu, því árið 2009 gerði hún sátt við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um greiðslu sektar vegna brots gegn 244. gr. almennra hegningarlaga, um þjófnað á fjármunum eða orku- forða.    Í ljósi skýlausrar játningar kon-unnar þótti hæfileg refsing vera 30 daga skilorðsbundið fang- elsi auk greiðslu alls sakarkostn- aðar, 110.000 króna.“    Þarna vafðist ekki „óljós“ kröfu-gerð fyrir íslensku réttlæti. Límbandinginn STAKSTEINAR Veður víða um heim 27.3., kl. 18.00 Reykjavík 1 snjóél Bolungarvík 3 skýjað Akureyri 4 alskýjað Nuuk -11 skafrenningur Þórshöfn 7 léttskýjað Ósló 6 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 skýjað Stokkhólmur 8 heiðskírt Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 12 heiðskírt Brussel 10 léttskýjað Dublin 6 skýjað Glasgow 7 léttskýjað London 7 léttskýjað París 11 heiðskírt Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 8 léttskýjað Berlín 12 léttskýjað Vín 15 skýjað Moskva 7 heiðskírt Algarve 12 skýjað Madríd 12 skýjað Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 11 skýjað Róm 11 skúrir Aþena 17 alskýjað Winnipeg -12 léttskýjað Montreal -7 skýjað New York 1 heiðskírt Chicago 3 skúrir Orlando 18 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:59 20:07 ÍSAFJÖRÐUR 7:02 20:15 SIGLUFJÖRÐUR 6:45 19:58 DJÚPIVOGUR 6:29 19:37 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fimm ára bekkur hefur verið starf- ræktur við Hvaleyrarskóla í Hafnar- firði í tvö ár en næsta haust er stefn- an að fjölga fimm ára nemendum í skólanum og festa starfið enn betur í sessi. „Farið var af stað með þetta verk- efni fyrir tveimur árum vegna hús- næðisvandræða í leikskólanum. Þá kom upp sú hugmynd að taka fimm ára börn inn í Hvaleyrarskóla því hér var pláss. Við erum því búin að vera með litla fimm ára deild, með ellefu til tólf nemendum, tvö skóla- ár,“ segir Helgi Arnarson, skóla- stjóri Hvaleyrarskóla. „Nú er ekki lengur jafn ríkur húsnæðisvandi í leikskólanum en fimm ára deildin hefur gefist vel þannig að við viljum halda henni áfram,“ bætir Helgi við. Áherslurnar í skólastarfinu munu þó aðeins breytast í haust og nemend- um fjölgað upp í um sextán. „Það má segja að deildin hafi verið rekin sem leikskóladeild inni í grunnskólahús- næðinu en við viljum ganga aðeins lengra og fylgja grunnskólanum. Við höfum fylgt skóladagatali leikskól- ans hingað til en það hafa verið ákveðnir árekstrar við það svo við munum í haust fylgja skóladagatali grunnskólans enda lítum við á þetta sem yngsta bekkinn í grunnskólan- um. Farið verður eftir námskrá leik- skólans í bland við námskrá yngstu bekkja grunnskólans.“ Helgi segir að þau hafi skoðað starf fimm ára bekkja í Landakots- skóla og Ísaksskóla þegar þau fóru af stað fyrir tveimur árum og að þau séu nú að fara meira í þá áttina. „Það er flott fyrir Hafnarfjörð að geta boðið upp á mismunandi valkosti fyr- ir foreldra.“ Helgi segir ekki marga almenna skóla vera með fimm ára deild en þó hafi verið nokkur gerjun undanfarin ár með mismunandi skólagerðir. Fræðsluráð Hafnarfjarðarbæjar tók málið fyrir á fundi síðasta mánu- dag og í fundargerð segir að ráðið samþykki að rekin verði fimm ára deild við Hvaleyrarskóla verði þátt- taka nægjanleg og mat verði gert á árangri. Fimm ára bekkur reynst vel  Nám fyrir 5 ára börn í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði verður fest í sessi í haust  Nemendum verður fjölgað og farið eftir aðalnámskrá grunn- og leikskóla Morgunblaðið/Þórður Hvaleyrarskóli Markmiðið með því að starfrækja 5 ára deild er að bjóða foreldrum upp á valkost sem er ólíkur öðrum valkostum í sveitarfélaginu. Héraðsdómur Suðurlands hef- ur vísað frá kröf- um landeigenda við Markarfljót á hendur Rang- árþingi eystra, Vegagerðinni og Landgræðslu ríkisins. Landeigendurnir kröfðust þess að dómurinn ógilti framkvæmda- leyfi, sem sveitarstjórn Rangár- þings eystra veitti haustið 2010 vegna viðgerða og enduruppbygg- ingar á flóðvarnargarði við Þór- ólfsfell. Þá var þess krafist að Landgræðslan og Vegagerðin yrðu dæmd til að koma varnargörðunum í það horf að Markarfljót falli í sinn forna farveg eins og hann var fyrir eldgosið í Eyjafjallajökli í apríl 2010. Einnig kröfðust landeigend- urnir viðurkenningar á bótaskyldu. Öllum þessum kröfum var vísað frá. Kröfum vegna Mark- arfljóts vísað frá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.