Morgunblaðið - 28.03.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2014
AÐAL-
FUNDUR
VM 4 . a p r í l 2 0 1 4a ð G r a n d H ó t e lí R e y k j a v í k
DAGSKRÁ:
■ Kl. 17.00. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra
■ Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins
■ Reikningar félagsins og sjóða
■ Umræður um skýrslu og reikninga
■ Kjör endurskoðenda
■ Reglugerða- og lagabreytingar
■ Ákvörðun stjórnarlauna
■ Lýst kjöri stjórnar og varastjórnar VM í stjórnarkjöri 2014
■ Kjör í nefndir og stjórnir sjóða
■ Kjör í fulltrúaráð
■ Önnur mál
Boðið verður upp á léttar
veitingar að fundi loknum
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
flottir í flísum
Spurð hvort sýningarnar níu á
Ragnheiði skili Íslensku óperunni
hagnaði bendir Steinunn á að afar
kostnaðarsamt sé að setja upp svo
metnaðarfulla sýningu.
„Það er engin ópera sem greiðir
alveg niður eigin stofnkostnað,
vegna þess hversu kostnaðarsamt
það er að setja upp óperu, það eru
til að mynda á annað hundrað
manns sem koma að uppsetning-
unni á Ragnheiði og æfingatíma-
bilið er 7-8 vikur. Svo til allar sýn-
ingar í Eldborg standa undir
kvöldkostnaði, sem í Gamla Bíói
var aldrei möguleiki, vegna sæta-
fjöldans. En í Eldborg, sem er með
þrefalt fleiri sætum en Gamla bíó
var, þegar sýningar eru seldar upp
í rjáfur, eins og hefur verið tilfellið
með Ragnheiði, þá verður til smá-
vegis framlegð sem fer upp í að
greiða niður stofnkostnaðinn.“
Til gamans setti blaðamaður
upp Eldborgarsalinn í reiknitöflu,
miðað við miðaframboð og verð á
óperusýninguna Ragnheiði.
Greiði allir gestir, alls 1.405,
fullt verð eru hámarkstekjur af
hverri sýningu 10,6 milljónir, alls
95,6 milljónir af níu sýningum.
Steinunn bendir á að eldri borg-
arar og ungt fólk fái afslátt, auk
þess sem stærri hópar fái afslátt.
Smáhagnaður er af sýningum
HÁMARKSTEKJUR VÆRU 96 MILLJÓNIR
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íslenska óperan Ragnheiður er orð-
in sjöunda vinsælasta ópera í þrjátíu
ára sögu Íslensku óperunnar, sé
miðað við miðasölu í einni sýningar-
lotu. Þrátt fyrir mikla aðsókn er ekki
unnt að fjölga sýningum í bili. Ragn-
heiður er þegar orðin vinsælasta ís-
lenska óperan en hún er 79. verkefni
Íslensku óperunnar.
Alls höfðu tæplega tólf þúsund
miðar selst á Ragnheiði í gær,
fimmtudag, en til samanburðar seld-
ust um 12.300 miðar á Töfraflautu
Mozarts haustið 2011, fyrstu óperu-
sýninguna í Hörpu. Er Ragnheiður
þar með orðin önnur vinsælasta
óperusýningin í Hörpu og verður
hún líklega orðin sú sjötta vinsæl-
asta í sögu Íslensku óperunnar þeg-
ar dagurinn í dag er á enda.
Sígaunabaróninn vinsælastur
Flestir miðar á eina óperusýningu
seldust á Sígaunabaróninn, óperu
Johann Strauss, eða 22.952, en það
var fyrsta verk Íslensku óperunnar
sem sýnt var í Gamla Bíói þegar það
var vígt sem óperuhús í janúar 1982.
Eru vinsælustu sýningar Íslensku
óperunnar tilgreindar hér til hliðar.
Höfundar Ragnheiðar eru þeir
Gunnar Þórðarson og Friðrik Erl-
ingsson.
Steinunn Þórhallsdóttir,
kynningarstjóri Íslensku óperunnar,
segir ekki gerlegt að fjölga sýn-
ingum á Ragnheiði. Upphaflega hafi
þrjár sýningar verið skipulagðar en
þær eru nú orðnar níu.
„Það er ekki svo hægt um vik að
setja á sýningar í Eldborg vegna að-
stæðna í húsinu. Það eru að koma
páskar og svo er Eldborg bókuð dag
eftir dag. Þess utan koma yfir
hundrað listamenn að sýningunni
frá mörgum löndum og þeir eru bók-
aðir langt fram í tímann. Við skipu-
lögðum upphaflega þrjár til fjórar
sýningar á Ragnheiði. Með velvilja
fjölmargra aðila í íslensku tónlistar-
lífi náðum við að búa svo um hnútana
að hægt var að bæta við öllum þess-
um aukasýningum.
Það hafa allir verið boðnir og bún-
ir að hliðra til tímasetningum á öðr-
um tónleikum og slíku. Hljómsveit-
arstjórinn Petri Sakari flýgur frá
Finnlandi til að geta stjórnað hjá
okkur þessa aukadaga. Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir starfar á Spáni og
hún þurfti að semja við hljóm-
sveitarstjóra í verkefni þar til að
geta verið með í viðbótarsýning-
unum. Það lítur því út fyrir að 6. apr-
íl verði síðasta sýningin á Ragn-
heiði.“
Rúmlega 1.400 sæti á sýningu
Hámarkssætafjöldi á óperusýn-
ingu í Eldborgarsal Hörpu er 1.404,
en til samanburðar voru 473 sæti í
Gamla bíói. Miðasalan á Ragnheiði
samsvarar því ef selst hefði upp á 25
sýningar í Gamla bíói. Harpan var
opnuð 4. maí 2011 og hófust óperu-
sýningar þá um haustið, sem áður
segir. Til samanburðar tekur
Eldborgarsalurinn um 1.800 manns í
sæti að hámarki
Dómar um óperuna Ragnheiði
hafa verið einkar lofsamlegir og
kæmi ekki á óvart ef hún sneri aftur
á fjalirnar.
Ljósmynd/Gísli Egill Hrafnsson/Birt með leyfi Íslensku óperunnar
Örlagasaga lifnar við Elmar Gilbertsson og Þóra Einarsdóttir fara með aðalhlutverkin í sýningunni.
Sú sjöunda
vinsælasta
frá upphafi
Góð aðsókn á óperuna Ragnheiði
Vinsælustu óperurnar í sögu Íslensku óperunnar
ÁrSæti Áhorfendur Í Gamla bíói
Fjöldi sýninga*
Í EldborgÓpera
*Gamla bíó tók 473 áhorfendur í sæti á óperusýningar.
Hámarkssætafjöldi á óperusýningu í Eldborg er 1.404 sæti
Hér er áhorfendafjöldinn umreiknaður í sætafjöldann á hvorum stað.
Sýningarnar 2011 og 2014 fóru fram í Hörpu. ** Klukkan 14 í gær.
1982
1982
1991
1987
1984
2011
2014
1986
49
41
35
32
32
27
27
30
16,3
13,7
11,7
10,7
10,7
9
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
22.952
17.582
14.660
14.038
13.257
12.304
11.970**
11.358
Heimild: Kynningardeild Íslensku óperunnar
Sígaunabaróninn
Töfraflautan
Töfraflautan
Aida
Carmen
Töfraflautan
Ragnheiður
Il Trovatore