Morgunblaðið - 28.03.2014, Side 19

Morgunblaðið - 28.03.2014, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2014 svikinn sem leggi leið sína í Dala- búð á morgun. „Þetta verða end- urnýjuð kynni, söngur, bros og fal- legar minningar í stutta dagstund.“ Færri komust að en vildu Dagskráin í Dalabúð er þó ekki hið eina sem gert hefur verið til minningar um Jón, því að á mið- vikudagskvöldið voru haldnir glæsilegir tónleikar í Vídalíns- kirkju í Garðabæ og þóttu þeir vel- heppnaðir í alla staði. Var þétt set- ið á hverjum bekk og komust mun færri að en vildu í kirkjuna til að hlýða á dagskrána, þar sem sungin voru mörg af þekktustu lögum Jóns, þar á meðal nokkur sem MA-kvartettinn gerði fræg á sín- um tíma. Flytjendur laga voru þau Unnur Helga Möller, Una Dóra Þorbjörnsdóttir, Unnur Birna Björnsdóttir, Guðmundur Dav- íðsson, Jóhann Björn Ævarsson og Sigurður Helgi Oddsson, sem jafn- framt var kynnir. Auk þeirra sungu Háskólakvartettinn og Karlakór Reykjavíkur. Voru flytj- endurnir hver öðrum betri, og ljóst að lög Jóns eiga enn fullt erindi við Íslendinga í dag. Ljósmynd/Jón Kári Hilmarsson Syngdu mig heim Húsfyllir var á tónleikum í Vídalínskirkju á miðvikudag- inn, þar sem sungin voru lög Jóns frá Ljárskógum. Eftir Jón frá Ljárskógum liggur stórt safn kvæða og sönglaga. Mörg þeirra hafa lifað með þjóð- inni lengi, og eru sungin þar sem hist er á mannamótum og við ýmis tækifæri. Útgefnar ljóðabækur Jóns eru Syngið strengir, sem kom út árið 1941, Hörpuljóð frá árinu 1942 og Gamlar syndir og nýjar, sem kom út eftir andlát Jóns árið 1947. Ljóð hans voru tekin sam- an í einu riti sem kom út árið 1976, auk þess sem nótnaheftið Kveðja heimanað kom út árið 2003, en þar var að finna 29 af sönglögum þeim sem Jón samdi. Auk þessa þýddi Jón margar bækur, en hann var mikill tungu- málamaður. Rithönd Jóns þótti listilega góð og hefur Morgunblaðið feng- ið leyfi frá fjölskyldu hans til þess að birta hér myndir af fag- urlega skreyttu nótnasafni hans, en það er nú geymt í hand- ritasafni Landsbókasafns. Fjöldinn allur af ljóðum og sönglögum sem lifir enn ÆVISTARF JÓNS JÓNSSONAR FRÁ LJÁRSKÓGUM Fallega skreytt Utanáskrift Jóns fyrir kvæðið Söknuð. Nóturnar Syngdu mig heim er eitt af þekktari ljóðum Jóns. Rithöndin góða Hér er hluti af kvæðinu Kveðja heimanað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.