Morgunblaðið - 20.03.2014, Síða 9

Morgunblaðið - 20.03.2014, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014 9 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is N ærri tíu ára gömul uppfinning Hilmis Inga Jónssonar er í dag orðin að efnilegu fyrirtæki. ReMake Electric framleiðir mælibúnað og hugbúnað sem fyrirtæki og stofn- anir geta notað til að greina í þaula og þannig minnka verulega orku- notkun sína. Fyrirtækið var stofnað árið 2009 og er nú þegar með um 25 starfsmenn á Íslandi og endur- söluaðila í fjórum löndum til við- bótar en vörurnar frá ReMake eru í notkun hjá viðskiptavinum allt frá Bretlandi til Japans. Hilmir segir það hafa verið lær- dómsríkt ferli að koma vörum Re- Make á framfæri á erlendri grundu. „Það er t.d. hægara sagt en gert að finna endursöluaðila sem hefur rétta hugarfarið og viljann til að bæta við vöruframboðið, stundum með vöru sem er fyrir utan sjálfa kjarna- starfsemina og getur kallað á krefj- andi og kostnaðarsama aðlögun.“ Verða að vanda valið Hilmir og félagar hans hjá ReMake fóru þá leið að leita uppi efnileg sam- starfsfyrirtæki með því að taka þátt í vörusýningum. Hann segir hafa verið nauðsynlegt að finna sam- starfsaðila því þegar sótt sé á nýtt markaðssvæði með nýjar tækni- lausnir sé ómetanlegt að búa að safni viðskiptavina hjá samstarfsaðil- anum. „Við þefuðum uppi vörusýn- ingar á rafmagns- og lýsing- arlausnum á hverju markaðssvæði, sýndum okkur og sáum aðra. Með góðum undirbúningi var hægt að sjá hverjir gætu passað vel við starf- semi okkar og ná persónulegum tengslum þar sem grundvöllur væri fyrir gjöfulu samstarfi.“ Af þessu segist Hilmir m.a. hafa lært að það borgi sig að kynna sér samstarfsfyrirtækið sem best, sem fyrst, og eins að spyrja beinskeyttra spurninga. „Það hefur alveg gerst að við höfum farið af stað með áhuga- verðum samstarfsaðila en komist svo að því á endanum að þetta var ekki rétta fyrirtækið. Verst af öllu er að við hefðum átt að geta séð van- kantana og spurt réttu spurning- anna strax á fyrsta degi, og þannig sparað okkur bæði dýra vinnu og mikilvægan tíma,“ útskýrir Hilmir. „Flestir heillast og sjá mikil tæki- færi með ReMake vörunum og lang- ar til að finna leiðir til að fara í sam- starf, og við, að sama skapi, erum spenntir fyrir öllum möguleikum til að stækka. En svo oft er það raunin að varan okkar færir samstarfsaðil- ann of langt út fyrir sitt þægindasvið og þá, þrátt fyrir velvilja og áhuga, gengur samstarf hreinlega ekki upp.“ Hilmir segir gagn hafa verið að þvi fyrir ReMake að fá m.a. svokall- aðan brúarstyrk frá Tækniþróun- arsjóði til að standa straum af vöru- sýningum erlendis og eins hafi sérfræðingar Íslandsstofu veitt góð ráð um hvernig koma mætti fyr- irtækinu á framfæri á erlendum mörkuðum. „Eitt af því sem ég myndi gera öðruvísi, ef ég væri að leggja upp í þessa vegferð í dag, er að leggja meira fjármagn í markaðs- málin. Framan af einbeittum við okkur að því að fullkomna tæknilegu hliðina á vörunum okkar og mikið púður sem fór í bæði hugbúnað og vélbúnað. Það er ekki fyrr en núna, tæpu ári eftir að varan var end- anlega tilbúin og alþjóðlega vottuð, að við erum að sinna markaðs- hliðinni sem skyldi. Í okkar tilviki hefði t.d. mátt taka frá fjármagn til að vera sýnilegri á vefmiðlum og kaupa auglýsingar á miðlum sem fólk úr rafmagnsgeiranum les.“ Sjálfstraustið er smitandi Annars segir Hilmir að íslenskir frumkvöðlar ættu ekki að mikla það um of fyrir sér að halda út í heim. Hann hafi komist að því að íslenska bjartsýnin og óbilandi sjálfstraustið hjálpi til þegar út sé komið. „Við höf- um fundið það vel á vörusýning- unum að það laðar að bæði almenna gesti og væntanlega samstarfsaðila hvað við höfum óbilandi trú á vör- unni. Þessu fylgir ákveðinn kraftur og það smitar út frá sér þegar sýn- andinn er þess fullviss að hann sé með alvöru lausn á alvöru vanda- málum í höndunum.“ Íslensk fyrirtæki í útrás Vandasamt að finna rétta samstarfsfyrirtækið Morgunblaðið/Kristinn Kröfur„Verst af öllu er að við hefðum átt að geta séð vankantana og spurt réttu spurninganna strax á fyrsta degi, og þannig sparað okkur bæði dýra vinnu og mikilvægan tíma,“ segir Hilmir Ingi Jónsson spurður um hvað leitin að góðum samstarfsfyrirtækjum hefur kennt stjórnedum ReMake Electric.  ReMake Electric er byrjað að ná fótfestu erlendis  Hafa notað vörusýningar til að sýna sig og mæla út vænt- anlega samstarfsaðila  Þróuðu lausn sem greinir rafmagnsnotkun og getur skilað hátt í 30% sparnaði Starfsemi ReMake Electricbyggist á nýstárlegummælibúnaði sem vaktar og greinir í þaula rafmagns- notkun fyrirtækis eða stofn- unar. Hilmir segir mælibún- aðinn byggjast á einkaleyfavernduðum lausnum sem eru ólíkar öllu því sem fyr- ir er á markaðinum og bjóði ReMake ódýrari og aðgengi- legri leið til að greina raf- magnsnotkunina. „Við erum að gera eftirlit með orkunotkun í byggingum auðveldara fyrir fólk og við- skiptavinir okkar hafa náð að minnka orkunotkun sína um hátt í 30% með ReMake- tækninni, án þess að missa þægindi, með því einu að draga úr orkusóun.“ Viðnám eykur eyðslu Sparnaðurinn segir Hilmir að komi til vegna þess að mæli- tæki og hugbúnaður ReMake sýnir hvar álag er í kerfinu og hvar eitthvað er bogið við orkunotkunina. „Mæliborðið er aðgengilegt yfir netið og getur gefið vísbendingar um t.d. ef viðnám er farið að aukast í vél- um eða síur í loftræstikerfinu orðnar mettaðar af óhrein- indum. Um leið og rafmagns- tæki finna fyrir auknu viðnámi eykst rafmagnsnotkunin en án nákvæmrar mælingar er ekki að því hlaupið að finna út hvar vandinn liggur.“ Útkoman er öruggara raf- magnskerfi og skynsamlegri notkun á orku og tækjum „Við- skiptavinurinn lækkar ekki bara rafmagnsreikninginn heldur er hann með búnaðinum okkar að auka rekstrarör- yggið, s.s. með því að minnka líkurnar á að frystikælir slái út um miðja nótt vegna of mikils álags eða færiband hætti að virka á versta tíma.“ Sýnir hvar álag og sóun er í kerfinu Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.re.is VIÐ SKUTLUM ÞÉR! Alltaf laus sæti Frí þráðlaus internet- tenging í öllum bílum Hagkvæmur kostur Alltaf ferðir Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Umhverfisvænt*Miðast við að keyptur sé miði fram og tilbaka á : 3.500 kr. 1.750 kr.* FYRIR AÐEINS Kauptu miða núna á www.flugrutan.is Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll. OR EX PO • w w w .e xp o. is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.