Morgunblaðið - 20.03.2014, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
11
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
E
ftir að Controlant
hreppti Gulleggið árið
2009 fóru hlutirnir að
gerast hratt. Frá
þeim tíma hefur
þriggja manna sproti orðið að fjór-
tán manna fyrirtæki með umboðs-
menn og viðskiptavini í fjölda
landa. Það heyrst á Erlingi Brynj-
úlfssyni, þróunarstjóra og einum af
stofnendum Controlant, að hann er
bjartsýnn á framtíðina:
„Fyrirtækið var stofnað árið
2007 og spratt út úr samstarfs-
verkefni nememda og kennara við
verkfræðideild HÍ. Við töldum mik-
il tækifæri felast í að nota þráð-
lausa tækni til að framkvæma ým-
iskonar mælingar og eftir að hafa
unnið að fjölda hugmynda varð á
endanum til sú vara sem við seljum
í dag.“
Vörurnar vaktaðar alla leið
Controlant býr til lítil mælitæki, á
stærð við spilastokk, sem mæla
stöðugt þætti á borð við hita, raka-
stig og skrásetja staðsetningu.
Stokkinn er hægt að nota til að
vakta t.d. hitastig í vörugeymslum,
gæta þess að vara sé flutt við kjör-
aðstæður eða að lyf uppi í hillu
apóteks séu aldrei geymd við þær
aðstæður að geti stytt líftíma
lyfjanna. Mælitækin senda mæl-
ingar þráðlaust sín á milli, sem eru
svo sendar yfir gsm-kerfið í mið-
lægan gagnagrunn Controlant. Þar
eru gögnin geymd og unnið úr
þeim, og þau svo gerð aðgengileg í
gegnum notendavænt viðmót. „Á
allri lífsleið vörunnar er þannig
hægt að ganga úr skugga um að
aðstæður séu réttar. Þetta dregur
úr hættunni á skemmdum, eykur
gæði vörunnar sem kemur í hendur
neytenda, og ef eitthvað hefur
komið upp á t.d. í flutningum er
hægt að sjá mjög auðveldlega hvað
gerðist – stóð brettið kannski of
lengi úti í sólinni í verksmiðjunni,
eða stóð flutningafyrirtækið ekki
við gefin fyrirheit
um meðferð sending-
arinnar?“
Tæknin segir
Erlingur að sé þegar
í notkun hjá 150 fyr-
irtækjum í tíu lönd-
um.
Fréttist á milli
fyrirtækja
En hvernig hefur út-
rásin gengið? Er
hægur vandi að
koma svona vörum á
framfæri erlendis? Erlingur segir
að þar hafi heimamarkaðurinn
gagnast vel, bæði til að sníða alla
vankanta af kerfinu og eins til að
ná til nýrra viðskiptavina erlendis.
„Controlant-mælirinn er t.d. mikið
notaður í lyfjageiranum, sem er
heimur þar sem allir virðast þekkj-
ast. Viðskiptavinir okkar hafa góða
reynslu af vörunni og því kemur
ekki á óvart að við höfum séð
hvernig notkun á einum stað leiðir
til þess að tækið er notað á öðrum
stað og berst kannski frá framleið-
anda til flytjanda og áfram til smá-
salans. Tengslanetið nær út fyrir
landsteinana og okkar fyrstu er-
lendu viðskipti urðu til í gegnum
íslenskar tengingar.“
Erlingur segir útrásina eiga
sér stað eftir þremur leiðum.
„Fyrst má nefna endursöluaðila,
sem við eigum þegar í Danmörku,
Finnlandi, Belgíu, Hollandi og
Bretlandi. Við sáum að endursölu-
aðilar myndu verða nauðsynlegur
hlekkur í keðjunni, bæði til þess að
ná til stærri hóps, en einnig svo
notandinn geti stólað á nálægan
þjónustuaðila fyrir lausnina. Í öðru
lagi eru stór alþjóðleg fyrirtæki
sem við sækjum í með beinum
hætti. Loks er þriðji hópurinn, en
það eru samstarfsaðilar sem eru
með ákveðna vöru eða þjónustu
þar sem Controlant getur orðið að
góðri viðbót. Sem dæmi eigum við í
samvinnu við Promens um gerð
lausnar fyrir fiskiker sem nota
mælibúnaðinn okkar, svo útgerðir
geta með nákvæmum hætti séð
bæði hvar kerin eru og hvort fisk-
urinn er geymdur við rétt hita-
stig.“
Ekki gleyma vottununum
Ein hindrun sem Erlingur segir að
tæknifyrirtæki þurfi að gæta sín á
er að ólíkir markaðir geta gert
ólíkar kröfur um vottanir. „Þegar
um er að ræða rafbúnað, og hvað
þá tæki sem notar þráðlausar teng-
ingar, þarf að ganga í gegnum flók-
ið vottunarferli. Er þar m.a. gengið
úr skugga um að tækið trufli ekki
annan búnað. Þetta er ekki langt
ferli en það þarf samt sinn tíma og
peninga og nokkuð sem gott er að
gera sér grein fyrir ef ætlunin er
að selja vöru á heimsvísu.“
Út í heim á góðu umtali
Byrjuðu á að sníða af vankantana á heimamarkaði og héldu svo út í heim Fyrstu erlendu viðskiptin urðu til í gegnum íslenskar tengingar
Samkeppnin virðist hafa sofnað á verðinum Mælir sem vaktar umhverfisaðstæður vöru frá framleiðslu og yfir í hillu úti í verslun
Morgunblaðið/Þórður
Tengslanet „Viðskiptavinir okkar hafa góða reynslu af vörunni og því kemur ekki á óvart að við höfum séð hvernig
notkun á einum stað leiðir til þess að tækið er notað á öðrum stað,“ segir Erlingur Brynjúlfsson um hvernig Control-
ant hefur farið hálfgert höfrungahlaup milli ánægðra viðskiptavina innanlands og áfram út í heim.
Vakandi Það fer ekki mikið fyrir stokkinum
Controlant er ekki einatæknifyrirtækið semframleiðir mæla til að
vakta umhverfisskilyrði en
Erlingur segir að lausn
Controlant skeri sig úr sam-
keppninni með því að vera
þráðlaus, einföld í notkun og
uppsetningu, með miðlæga
vörslu gagna. „Þetta er
tækni sem hafði ekki breyst
mikið í einn eða tvo áratugi
og þau stóru fyrirtæki sem
fyrir eru á þessu sviði virð-
ast hafa sofnað örlítið á
verðinum, því tækifærin sem
þessi nýja nálgun okkar
skapar eru mörg. Er algengt
að aðrar vörur sem eiga að
þjóna sama hlutverki séu t.d.
bundnar við snúrur og
kapla, kalli á mun flóknari
uppsetningu og leyfi ekki
sama hreyfanleikann og
sjálfvirkni.“
Eignleikar Controlant-
mælisins segir Erlingur að
smellpassi við þarfir fram-
leiðenda og dreifenda í dag.
„Með Controlant geta stór-
fyrirtæki vaktað óteljandi
fjölda sendinga til allra
heimshorna og vitað hvar
hver sending er, og við ná-
kvæmlega hvaða aðstæður
vörurnar eru fluttar eða
geymdar. Öll eru gögnin að-
gengileg á einum stað og
safnast þar saman sjálfkrafa,
í stað þess að þurfi t.d. að
lesa handvirkt af mælum
eins og er raunin með eldri
lausnir.“
Tæknin
hafði
staðnað
Gagnaílát
fyrir örugga
eyðingu gagna
www.gagnaeyding.is
Bæjarflöt 4 / 112 Reykjavík / Sími: 568 9095
PDC / 32 lítra
Tekur allt að 10 kg af pappír
S-76 / 76 lítra
Tekur allt að 30 kg af pappír
Mál: 70 (h) x 28 (b) x 51 (d)
E-120 / 120 lítra
Tekur allt að 55 kg af pappír
Mál: 93 (h) x 48 (b) x 56 (d)
E-240 / 240 lítra
Tekur allt að 120 kg af pappír
Mál: 107 (h) x 58 (b) x 74 (d)