Barnablaðið - 29.03.2014, Page 5
BARNABLAÐIÐ 5
eistari
on
freka á
on. Hún
m.a. þátt
ðustu
r mót
út í
minton?
og litli bróðir
ma spilar líka
r bara með
þróttinni
verið að
a minnir
gaman.
Hvað með búnað – hvað átt þú til dæmis marga
spaða, skó og slíkt?
Ég á svona 3-4 badmintonspaða og tvenna skó
(eina til vara, sem ég geymi niðri í TBR).
Er mikið af ungu fólki að æfa
badminton á Íslandi í dag?
Já, ég myndi segja það. [Það eru
þónokkur félög og mikið krakkastarf.
Það þurfa ekkert allir heldur að
keppa nema þeir vilji.]
Og þú ert nú þegar farin að ferðast
vegna íþróttarinnar?
Já, ég hef farið til bæði Grænlands
og Færeyja í norrænar æfingabúðir.
Æfingabúðirnar eru haldnar til skiptis
í þessum löndum og á Íslandi.
Hvernig var að fara á
þessa staði?
Það var mjög
gaman,
sérstaklega á Grænlandi. Það var svo öðruvísi
að koma þangað – var allt svo öðruvísi, bæði
maturinn, náttúran, bara lífið og fólkið. Við
fórum til dæmis í siglingu um kvöld, þar sem
sólin var öðrum megin á himninum og tunglið
hinum megin, sjórinn var spegilsléttur og mikill
ís þótt þetta væri um sumar. Allt í einu stökk
hvalur upp ekki svo langt frá okkur. Þetta
var alveg magnað. Það var mjög gaman að
kynnast þessum krökkum frá Færeyjum og
Grænlandi.
Hvað með önnur áhugamál?
Já, það eru fótbolti, að syngja, spila á píanó og
ýmislegt. Ég var reyndar að æfa svolítið margt,
en einbeiti mér núna að badmintoninu. Ég er
nýhætt í fótboltanum.
Ég heyrði af því að þú hefðir líka keppt í söng?
Já, ég tók þátt í Jólastjörnu Björgvins
Halldórssonar í fyrra. Ég komst þar í topp 10
hópinn og kom því fram en við fengum að
koma fram á báðum jólatónleikunum hans.
Hvernig var að syngja fyrir Björgvin og
dómnefndina hans?
Það var bara ótrúlega gaman.
Hefur þú sungið víðar opinberlega?
Einhvern tímann söng ég á
tónleikum í skólanum.
Síðan var ég einu sinni
valin til að syngja í Hörpu,
fyrir hönd skólans. Ég
söng þar lag sem ég samdi,
með tveimur öðrum stelpum.
Svo að þú semur líka lög?
Ég er nú eiginlega hætt því, en já... ég gerði mjög
mikið af því en hef nú minnkað það.
Hvað finnst þér annars skemmtilegast að gera
þegar þú átt frítíma?
Ég reyni nú að hitta vinkonur mínar, oft er svo
mikið að gera. Mér finnst líka mjög gaman að
horfa á Friends-þættina. Síðan spila ég stundum
á píanóið og syng og svona.
Áttu þér einhverjar fyrirmyndir, í badmintoninu
og eins í söngnum?
Já, fyrirmynd mín í badmintoninu er Ragna
Ingólfsdóttir, sem fór á síðustu Ólympíuleika. Í
söngnum veit ég það nú ekki alveg... kannski
Beyonce bara, það koma svo margir söngvarar til
greina.
Nú virðist öll fjölskyldan þín vera á kafi í
badminton, þið öll þrjú systkinin farin að keppa
og slíkt. Verður enginn rígur á milli ykkar?
Nei það held ég ekki – stundum keppum við á
æfingum, og þá viljum við auðvitað vinna. En
nei – ég held við séum bara öll einhvern veginn
alltaf í sama liði.
Áttu þér eitthvert markmið í badmintoninu?
Já, ég ætla að reyna að komast eins langt og
ég get, keppa í fullorðinsflokkunum og komast
einhvern tímann á Ólympíuleikana.
Hvað með önnur framtíðarplön?
Ég ætlaði nú alltaf að verða söng- og leikkona.
Mér finnst a.m.k. mjög gaman að syngja og leika.
En ég veit það ekki, sjáum til.
Einbeitt við spilið.