Morgunblaðið - 01.04.2014, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2014
4 BÍLAR
Þ
ó að Volvo S60 hafi fengið
örlitla andlitslyftingu að
framanverðu þykja það
engar stórar fréttir. Hitt
er þó eftirtektarverðara þegar nýj-
ar og spennandi vélar koma á
markað eins og við sjáum nú í
þessum bíl. Sú vél þykir menga
mjög lítið miðað við afl sem þýðir
að bíllinn er á nokkuð góðu verði.
Brimborg hefur fengið nokkra
S60-bíla til landsins og við feng-
um einn slíkan til reynslu í síðustu
viku í svokallaðri R-Design útgáfu.
Sportleg en þægileg sæti
Það sem maður tekur fyrst eftir
þegar sest er inn í bílinn eru sport-
stólarnir í framsætum. Nú skyldi
maður ætla að slíkir stólar séu
eins og venjulega frekar stífir og
henti ekki öllum en því er ekki að
heilsa í þessum. Þeir eru sérlega
þægilegir um leið og þeir gefa
góðan hliðarstuðning og ekki
skemmir fyrir að þeir eru með raf-
stillingum svo að allir geta fundið
þægilega stellingu. Stýrið er þykkt
og leðurklætt svo að tilfinning fyr-
ir sportlegum akstri liggur í loft-
inu. Til að keyra hann í sportstill-
ingu er farin óvenjuleg leið því ekki
er takki í mælaborði eins og geng-
ur og gerist. Þess í stað eru með
einföldum hætti valin þrjú þemu
fyrir bílinn gegnum stefnu-
ljósastöngina. Þegar maður vill
sportlegan akstur verður mæla-
borðið rautt og stór snúnings-
hraðamælir í miðjunni, en ef velja
á sparnaðarakstur verður mæla-
borðið grængrátt með áherslu á
atriði sem hvetja til sparaksturs,
eins og eyðslumæli. Annars er
mælaborðið hefðbundið Volvo-
mælaborð, með símaborðinu í
hillulaga miðjustokk. Hanskahólf-
ið er af stærri gerðinni og rúmar
góða A4-möppu. Þótt farang-
ursrými sé aðeins 380 lítrar er
það þannig formað að það tekur
við stórum ferðatöskum eða sam-
anbrjótanlegum barnavögnum.
Kraftur en lágt kolefnisgildi
Það að 181 hestafls dísilvél með
beinskiptingu mengi aðeins 99 g/
km þykir í raun og veru fáheyrt og
er það minni mengun en hjá sam-
bærilegum bílum frá BMW, Audi
eða Mercedes-Benz. Nær hún
meira að segja að jafna mengun
tvinnbíla eins og Lexus IS300h
sem er eftirtektarvert. Vélin nýtir
það sem er kallað I-ART-tækni en
á hverri innsprautun er skynjari
sem fylgist með þrýstingi og pass-
ar upp á að hver strokkur fái ná-
kvæmlega rétt eldsneytismagn.
Þeir sem þekkja fimm strokka dís-
ilvélarnar frá Volvo kannast við að
þær eru í grófari kantinum en það
er þessi nýja fjögurra strokka vél
alls ekki. Hún er silkimjúk þegar
maður vill keyra rólega og öflug
strax og henni er gefið inn þannig
að maður fær góða tilfinningu fyr-
ir henni gegnum olíugjöfina. Hljóð
frá vélinni er nánast ekkert en veg-
hljóð er hins vegar meira en búast
mátti við í bíl í þessum gæða-
flokki, þrátt fyrir að við reyndum
bílinn á sumardekkjum. Við próf-
uðum bílinn með átta þrepa sjálf-
skiptingu sem fer þessari vél ein-
staklega vel og skiptir honum létt
og örugglega og án hiks. Eyðslan
var reyndar nokkuð langt frá upp-
gefinni eyðslu upp á rúma fjóra
lítra og náðum við best rúmum ell-
efu lítrum. Volvo S60 liggur vel og
virkar mjög stöðugur enda er R-
Design útgáfan bæði lægri og á
stífari fjöðrun. Þessi bíll er engin
léttavara og virkar þyngri að fram-
an svo að þegar tekið er á honum í
beygjum þar sem vegurinn er ekki
upp á sitt besta virkar hann jafnvel
aðeins of stífur.
Góður í verðsamanburði
Þegar S60 er borinn saman við
samkeppnisbílana frá Evrópu
kemur hann vel út úr þeim sam-
anburði. Í venjulegri Momentum-
útfærslu kostar hann 5.990.000
kr. beinskiptur og sjálfskipting
bætir hálfri milljón við verðið.
Grunnverð BMW 320d er
6.490.000 kr., Audi A4 2,0 TDI er
örlítið ódýrari á 5.760.000 kr. og
Mercedes-Benz C 200 CDI loks
dýrastur á 6.750.000 kr. Enginn
þeirra nær þó sömu tölum í afli og
CO2 innihaldi eins og Volvo S60
D4 gerir. Ennfremur er R-Design
útfærslan ekki dýr viðbót því að
hún bætir aðeins 420.000 kr. við
verðið.
njall@mbl.is
Njáll Gunnlaugsson reynsluekur Volvo S60 R-Design
Ljósmyndir/Tryggvi Þormóðsson
Sportlegur fjölskyldubíll
sem mengar á við smábíl
Kostir: Sæti, innrétting, vél
Gallar: Veghljóð, hastur að framan
Volvo S60 D4 Árgerð 2014
• 18 tommuálfelgur
• Eiginþyngdkg: 1.635bsk
• Farangursrými: 380 lítrar
• 0-100km/sek.: 7,4bsk
•Hámark.: 230km/klst.
• Framhjóladrif
•Verð frá5.990.000kr.
• 4,1 L/100km íbl.akstri
• Umboð:Brimborg
•Mengunargildi:
107 gCO2/km
•2,0 lítradísilvél
• 181hestafl/400Nm
•8þrepasjálfskipting
Volvo S60 með nýju D4-vélinni er í
senn kraftmikill og góður aksturs-
bíll sem mengar á pari við tvinnbíl.