Morgunblaðið - 01.04.2014, Síða 5

Morgunblaðið - 01.04.2014, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2014 BÍLAR 5 Á Performance-stillingu verður mælaborðið rautt og sýnir stóran snún- ingshraðamælir, enda fer hann þannig ofar á snúning í hverjum gír. D4 vélin er þýðgeng og hljóðlát enda er skynjari fyrir hvern strokk sem stjórnar eldneytisflæðinu. Flottar 18 tommu felgurnar eru meðhöndlaðar þannig að það loði síður við þær skítur og bremsuryk. Munar um minna þegar um flottan bíl ræðir. Bæði er R-Design innréttingin flott og sportleg en um leið þægileg enda sætin fyrsta flokks. Um öryggið þarf ekki að fjölyrða hjá Volvo. Í ECO stillingunni verður mælaborðið grænleitt og vinstra megin er þá kominn sparakstursmælir. Sannarlega grænn akstur það! Venjulega er mælaborðið blátt í svokölluðu Elegance þema og sýnir þá helstu upplýsingar ásamt hitamæli vinstra megin. F ranskar konur sem aðhyllast háhælaða skó verða að hafa með sér annað skópar og það sem næst flatbotna ætli þær að bregða sér hvort heldur sem er spölkorn eða bæjarleið á bíl sínum. Jú, það eru eiginlega fyrirmæli frá hæsta- rétti Frakklands að þær hætti að brúka „óheppilegt“ skótau undir stýri. Rétturinn hefur dæmt, að það sé brot á umferð- arlögunum að klæðast háhæluðum skóm undir stýri. Fari það í bága við það ákvæði laganna sem kveður á um að ökumenn verði að geta óhindrað, hiklaust og þægilega framkvæmt allar nauðsynlegar aðgerðir sem aksturinn útheimtir. Kona nokkur í bænum Bastia á Korsíku hafði höfð- að mál á hendur tryggingarfélagi ökumannsins sem hún lenti í árekstri við og krafist 250.000 evra skaða- bóta vegna áverka sem hún hlaut í bílslysi árið 2002. Rétturinn hafnaði kröfum hennar vegna skótausins sem hún hafði valið til akstursins. Í bifreiðinni voru sjö farþegar, þar af fimm börn, er konan missti vald á henni á hálum vegi með þeim af- leiðingum að hún skall á annarri bifreið. Börnin, á aldrinum 4-15 ára, voru í aftursætunum með óspennt belti og í bílnum var enginn barnastóll. Í árekstrinum beið sjö ára stúlka bana, þrír til viðbótar slösuðust al- varlega og sjö hlutu minniháttar meiðsl. Að sögn dagblaðsins Le Figaro vann konan málið fyrir héraðsdómi en áfrýjunarréttur í Bastia sneri þeirri niðurstöðu við og hana hefur nú hæstiréttur Frakklands staðfest. Í rökstuðningi sínum vísaði rétt- urinn til rannsóknarskýrslu lögreglunnar sem hefði sagt, að það hefði gert illt verra og aukið á alvarleika árekstursins að skór konunnar festust undir pedul- unum. Þá sagði rétturinn það ekki hafa verið í þágu góðrar ökumennsku, að við aksturinn rétt fyrir óhappið hefði konan allt í senn verið að hlusta á út- varpið, tala við farþega og reykja sígarettu. Chantal Perrichon, formaður samtaka sem berjast fyrir bættri umferðarmenningu, gagnrýndi lögregl- una og sakaði hana um „kvenfyrirlitningu“ vegna rannsóknarniðurstöðunnar. „Hvað ætli hún hefði sagt ef maður hefði verið undir stýri?“ spurði hún í samtali í blaðinu Le Monde. Talsmaður tryggingafyrirtækisins segir að með dómnum sé kveðið á að nota beri viðhlítandi skótau undir stýri. Með öðrum orðum þýði það að setja megi ábyrgðina á menn sem aka í töfflum. agas@mbl.is Skórnir skipta máli í umferðinni Háir hælar í bann Það þykir ekki boðlegt lengur í Frakklandi að aka á bíl með slíkan fótabúnað. Fimmfaldi Dakar-vinningshafinn Cyril Despres hefur ákveðið að færa sig frá tveimur hjólum upp í fjögur fyrir næsta Dakar-rall sem fram fer í Suður-Ameríku. Þrátt fyrir að hafa skrifað undir samning við mótorhjólaframleið- andann Yamaha um að keppa einnig á næsta ári er nú orðið ljóst að hann mun keppa fyrir Peugeot í næsta ralli. Peugeot hefur ekki tekið þátt í Dakar- rallinu í aldarfjórðung en það aftrar fyrirtækinu ekki frá því að setja markið hátt. „Peugeot bauð mér sæti sem ökumaður í keppnisliði þeirra en þannig til- boð koma aðeins einu sinni á ævinni. Þar sem ég var enn með samning við Yamaha sættumst við á að ég yrði áfram ráðgjafi Yamaha-liðsins og Peugeot mun leyfa mér að taka þátt í tveimur til þremur keppnum á ári fyrir Yamaha,“ sagði Despres í við- tali. Eric de Seynes, stjórnandi Yamaha í Evrópu, segist skilja áhuga Peugeot á Despres. „Auð- vitað höfðum við háleit markmið með þátttöku Despres sem er mikill keppnismaður. Vegna þessa verðum við að laga okkur að aðstæðum en við erum samt með sterkt lið og mjög sam- keppnishæft mótorhjól. Cylir mun halda áfram sem sendi- herra Yamaha-mótorhjóla og vera ráðgefandi fyrir okkur í keppni okkar í Dakar-rallinu,“ sagði de Seynes ennfremur. njall@mbl.is Cyril Despres vendir kvæði sínu í kross Peugeot aftur í Dakar með Despres innanborðs Cyril Despres við Peugeot bíl Ari Vatanen sem vann París-Dakar 1990.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.