Morgunblaðið - 01.04.2014, Síða 6

Morgunblaðið - 01.04.2014, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2014 6 BÍLAR F yrsti fjöldaframleiddi fólks- bíllinn í þáverandi Tékkó- slóvakíu er hálfrar aldar gamall um þessar mundir. Raðsmíði hans hófst vorið 1964 og af rúmlega 443.000 framleiddum eintökum var rúmur helmingur fluttur út – meðal annars til Ís- lands. Hér er um að ræða hinn goð- sagnakennda Skoda 1000 MB en nýstárlegum aðferðum var beitt við smíði hans, meðal annars hvernig vélarblokkin var steypt úr áli. Nú er bíllinn vinsæll forngripur, ekki síst tvennra dyra MBX- útgáfan. Fyrsta raðsmíðiseintakið af Skoda 1000 MB kom á götuna 21. mars 1964 og var bíllinn arftaki þá- verandi Skoda Octavia. Hann var fyrsti bíllinn með drif á afturhjólum frá tékkneska bílsmiðnum og eig- inlega bautasteinn í 119 ára sögu fyrirtækisins. Hann var og óvenju- legur sakir þess að vélin var aftur í bílnum. Þegar frægðarsól hans skein sem skærast var fernra dyra útgáf- an einhver besta bifreiðin í sínum vélarstærðarflokki hvað varðaði þægindi, afkastagetu og tækni. Markaði Skoda 1000 MB eins- konar byltingu í bílsmíði Skoda vorið 1964. Bíllinn var framleiddur á tímabilinu frá apríl 1964 til ágúst 1969. Sú dirfska Skoda, eins elsta bíla- framleiðanda heims, að skipta rækilega um kúrs með nýja bílnum átti eftir að gefa vel af sér. Skoda 1000 MB rauk út eins og heitar lummur í Tékkóslóvakíu og erlend- is. Var hann seldur víða um heim, meðal annars til Ástralíu og Nýja- Sjálands. Styrktist Skoda mjög í sessi sem evrópskur bílaframleið- andi. Í nafni bílsins stendur MB fyrir Mlada Boleslav, bæinn þar sem var að finna höfuðstöðvar Skoda. Og talan 1000 stendur fyrir rúmtak vélarinnar. 1000 MB var fáanlegur í mörgum útgáfum, meðal annars með auknu vélarafli og í glæsi- útgáfunni 1000 MBX sem safnarar sækjast mjög eftir nú til dags. Til framleiðslu bílsins reisti Skoda alveg nýja bílsmiðju í Mlada Boleslav og var hún búin allri nýj- ustu tækni til bílsmíði. Þar varð Skoda fyrstur evrópskra bílsmiða til að steypa vélarblokkir úr áli. Fjögurra þrepa gírkassinn var einnig steyptur með sama hætti. Hin vatnskælda fjögurra strokka vél skilaði 37 hestöflum til aft- urhjólanna, en 43 eftir að hún var uppfærð að afli 1968. Hún var óvenjulega sparneytin fyrir sinn tíma, brúkaði 7-8 lítra á hundraðið. Topphraði bílsins var 120 km/klst. Áður en raðsmíði Skoda MB 1000 hófst fór fram ítarlegur þróunarakstur til að undirbyggja góða endingu. Alls voru 50 eintök smíðuð í því skyni og lögðu þau alls 1,6 milljónir kílómetra að baki við reynsluaksturinn árið 1962. Meðal annars var bíllinn prófaður í hörkufrosti í Rússlandi og gríð- arlegum lofthita annars staðar. Þá var færni hans á malarvegum könnuð og þróuð á fjallvegum í Kákasusfjöllum. agas@mbl.is Goðsagna- kenndur Skoda fimmtugur Skoda 1000 MB naut vinsælda um jarðir allar. R íkisstjórnin á Ítalíu hefur undanfarin misseri leitað í öllum krókum og kim- um hinnar opinberu stjórnsýslu að leiðum til að spara í ríkisrekstrinum. Vegna kreppu hefur ekki veitt af og nýjasta til- raunin til að létta á byrðum rík- iskassans er af óvenjulegra tagi. Í vikunni sem leið ákvað stjórn hins nýja og unga forsætisráð- herra, Matteo Renzi, sem er jafn- aldri íslensks starfsbróður síns, Sigmundar Gunnlaugssonar, að segja bruðlinu hjá hinu opinbera stríð á hendur og losa það við óheyrilega glæsilega bíla úr flota ráðuneytanna og stofnana rík- isins. Þar á meðal er að finna rán- dýra sportbíla, fjölda Jagúara og enn fleiri Maserati. Alls ætlar stjórn Renzi að selja 151 bifreið og til að fá sem best verð fyrir þær geta áhugasamir boðið í bílana á uppboðsvefnum eBay. Í þessu bílasafni eru meðal annars 40 BMW-lúxusbílar af ýmsum stærðum, aðallega þó af 5-línunni. Þótt gott verð fáist fyrir bílana munu tekjurnar vart til mik- ils duga sakir stærðar fjárhags- vanda ríkisins. Alls eru um 60.000 bílar í eigu ítalska ríkisins og mun það kosta ríkissjóð rúman milljarð evra að reka hann á ári. Því eru lúxusbíl- arnir sem fá að fjúka úr flotanum ekki nema agnarlítil ögn af hon- um. En með ákvörðuninni að selja Óvenjuleg tiltekt í ríkisfjármálunum Ítalska ríkið selur sport- og lúxusbíla sína AFP Lúxusbílar á borð við Maserati Alfieri munu ekki líðast lengur með ítalskra embættismanna. S érfræðingar um málefni bílafram- leiðslu spá mikilli uppstokkun í greininni á næstu 20 árum. Þar á meðal að bílsmiðum muni stór- fækka, jafnvel ofan í það að einungis sex fyr- irtæki framleiði alla bíla upp úr 2030. Adam Jonas, sérfræðingur á sviði bílsmíði hjá bankanum Morgan Stanley, segir í sam- tali í The Detroit News, að bílamarkaðurinn beri einfaldlega ekki til frambúðar þann fjölda bílaframleiðenda sem nú er þar að finna. „Við erum á því að verulegar breytingar á bílakaupum og bílalandslaginu kalli á breytta hugsun hjá bílaframleiðendum ætli þeir sér að halda velli að 15 til 20 árum liðnum. Það eru alltof margir bílaframleiðendur í heim- inum. Þar er að finna tæpa 30 alþjóðlega bíl- smiði. Að okkar mati mun efnahagslegur, samkeppnislegur og tæknilegur þrýstingur stuðla að því að þeir renni saman eða hverfi þannig að eftir standi fimm til sex,“ segir Jo- nas. Hann er ekki eini sérfræðingurinn til að spá miklum samruna bílafyrirtækja. Sergio Marc- hionne, stjórnarformaður Fiat-samsteyp- unnar, hefur um nokkurra ára skeið haldið því fram – við litlar undirtektir þó – að í fram- tíðinni verði bílsmíði að mestu ef ekki öllu leyti í höndum fimm eða sex risafyrirtækja. Hann sagði að til þess að lifa af þyrfti bíla- framleiðandi að smíða á sjöttu milljón bíla á ári. Sem með öðrum orðum þýddi að fyr- irtæki á borð við BMW, sem framleiðir tvær milljónir bíla á ári og er staðfast í að standa á eigin fótum, yrðu berskjölduð til lengri tíma. Frá því Marchionne hélt þessu fyrst fram hefur hann stýrt yfirtöku Fiat á bandaríska bílafyrirtækinu Chrysler Group. Jonas nefnir rafbílasmiðinn Tesla sem gott dæmi um hvernig bílsmiður framtíðarinnar gæti orðið. Þótt fyrirtækið smíði sem stend- ur aðeins eitt módel hafi Tesla tekist að sýna hinum hefðbundnu bílafyrirtækjum, að með því að nýta sér nýtækni í þaula geti nýir bíl- smiðir þrifist fljótar og fyrr en ella. „Tesla gæti átt annaðhvort eftir að reynast helsti óvinur hefðbundnu bandarísku bílr- isanna eða bjargvættur þeirra. Að okkar mati á sú röskun sem Tesla hefur valdið sér stað nógu snemma til að gefa bílrisunum tíma og svigrúm til að bregðast við og aðlagast breyttum aðstæðum,“ segir Adam Jonas. agas@mbl.is Sérfræðingar segja að jafnvel bílsmiður á borð við BMW sé e.t.v. ekki nógu stór til að lifa af einn og sér. Stórfelldar sameiningar eru að margra mati á teikniborðinu hjá framleiðendum. Bílsmiðum mun stórfækka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.