Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2014
Í Kökugerð HP á Selfossi hefst vinnudag-
urinn á miðnætti. Þjóðin þarf daglegt brauð
og starfsfólksins er að sjá fyrir því að glæ-
nýjar afurðir séu komnar í hillur verslana
sem eru opnaðar um miðjan morgun. Uppi-
staðan í framleiðslu fyrirtækisins er flatkök-
ur, rúgbrauð, kanilsnúðar og kleinur en í
það heila eru vörunúmerin um fimmtíu. „Við
byrjum á flatkökunum og svo er farið í rúg-
brauðið. Svona rúllar framleiðslan yfir nótt-
ina og héðan fara tveir bílar fullfermdir af
vörum til Reykjavíkur klukkan sex á morgn-
ana,“ segir Grímur Arnarson fram-
kvæmdastjóri.
Við fengum hillupláss
„Mér er nær að halda að við seljum vörur í
flestar matvöruverslanir á höfuðborg-
arsvæðinu. Þá seljum við mikið til stóreld-
húsa, til dæmis veitingastaða, skóla og fyr-
irtækja með mötuneyti. Sendum sömuleiðis
mikið til viðskiptavina úti á landi, vörur sem
eru settar á flutningatrukkana sem fara frá
Reykjavík síðdegis,“ segir Grímur sem er
með alls fimmtán manns í vinnu.
Starfsemi Kökugerðar HP hófst árið 1991
en Grímur kom inn í reksturinn árið eftir.
„Matvörumarkaðurinn í núverandi mynd
var að mótast á þeim tíma þegar við vorum
að byrja. Þannig var ákveðið svigrúm til
staðar og við náðum inn í verslanirnar og
fengum hillupláss. Í dag hugsa ég að þyngra
væri fyrir fæti. Meginmálið er samt þetta að
fólki líkaði framleiðslan og þannig komumst
við á flug,“ segir Grímur.
„Þessi misserin bý ég í Reykjavík og í
næturferðum yfir heiðina mæti ég oft flutn-
ingabílum sem eru á leiðinni til Reykjavíkur
með matvörur; þetta eru bílar með fisk, kjöt,
grænmeti og undir morguninn koma bílarnir
frá Mjólkursamsölunni. Allt segir þetta okk-
ur að Suðurland er matarkista Íslands,“ seg-
ir Grímur.
Viðhorfin vinna með
litlum fyrirtækjum
Fyrirtækinu telur Grímur vera vel fyrir
komið á Selfossi. Hann sé jafnframt heppinn
með starfsfólk og margir sem vinna hjá fyr-
irtækinu hafi staðið þar vaktina í áraraðir.
Viðskiptavinirnir séu margir líka fyrirtæk-
inu ákaflega trúir. Þannig hefur faðir Gríms,
Örn Vigfússon, síðastliðin 24 ár verið með
sölubás í Kolportinu og stendur þar vaktina
allar helgar og selur bakkelsi.
„Í gegnum Kolaportið og fólkið sem þang-
að kemur finnum við hvernig viðskiptavin-
um líkar varan. Prófum þar einnig ýmsar
nýjungar. Þá tókum við þátt í markaði Búrs-
ins sem haldinn var í Hörpu nú í mars, þar
sem bændur og ýmsir smáframleiðendur
kynntu framleiðslu sína. Aðsóknin var mikil
og það var gaman að kynnast viðhorfum
fólksins sem kaupir af okkur – sem helst í
hendur við vaxandi áhuga á því að þekkja
uppruna matvara og vita hver framleiðand-
inn sé. Það viðhorf tel ég vinna mjög með
litlu fyrirtæki eins og þessu,“ segir Grímur.
sbs@mbl.is
Innlit í atvinnulífið HP kökugerð á Selfossi
Kleinur, rúgbrauð og fullt af flatkökum
Ljósmynd/Christine Gísladóttir
Samvinna Systkinin Guðrún Bergljót og Grímur Arnarson. HP kökugerð er fjölskyldufyrirtæki þar sem margar hendur vinna létt verk.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flatkökufjall Linda Ozola við pökkun. Hún er einn fimmtán
starfsmanna fyrirtækisins, sem hefur haldist vel á fólki.
Pítstur Flatbökugerð er list. Deig Hann lætur ekki deigan síga.
Markaður Örn Vigfússon, faðir eigandans, hefur í meira en tuttugu ár verið á vaktinni í Kolaportinu og selt bakkelsi. Afurðir Fjölbreytt framleiðsla. Vörur HP eru í flestum matvöruverslunum.
Kleinur Framleiðslan er mikil og kleinuskammtur dagsins er stór.