Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MAÍ 2014
Til leigu
Tilboð/útboð
Gagnaveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
www.or.is/utbod
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum í verkið:
Jarðvinna og lagnakerfi,
FTTH Hveragerði 2. áfangi
Verk þetta nær til jarðvinnu og fullnaðarfrágangs lagnakerfis
gagnaveitu frá tengistöðvum að inntakskassa ásamt
frágangi yfirborðs lagnaleiða í Hveragerði. Svæðið afmarkast
af Suðurlandsvegi (þjóðvegi 1) að sunnanverðu og
sveitarfélagsmörkum Ölfuss að norðanverðu.
Verkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum GRV 2014/04.
Verklok eru 10. september 2014.
Útboðsgögnin er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu OR
http://www.or.is/um-or/utbod frá og með mánudeginum
26. maí 2014.
Tilboð verða opnuð hjá Gagnaveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi
1, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 10. júní 2014, kl. 11:00.
GRV 2014/04 24.05.2014
!"!#$"# %"&
Orkuveita Reykjavíkur - Veitur,
óskar eftir tilboðum í verkið:
Aðveitustöð A20 Akranesi
Verkið er fólgið í fullnaðarfrágangi húss og lóðar þ.e.
jarðvinnu, burðarvirki húss með uppsteypu og stálvirki,
utan- og innanhússfrágangi húss og fullnaðarfrágangi
fráveitu-, hita, vatns- og raflagna ásamt frágangi á lóð.
Húsinu og öllum verkum, sem tilheyra því, skal skila
fullgerðu til notkunar, þannig að uppsetning tækja geti
hafist að loknu verki verktaka.
Tilboð skal miða við að verktaki leggi til, útvegi og kosti
allt efni og vinnu til framkvæmdanna, nema annars sé
getið.
Verklok eru áætluð 02.07.2015
Verkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum ORV-2014-06.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með
þriðjudeginum 27. maí 2014
á vefsíðu Orkuveitunnar https://www.or.is/um-or/utbod
Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi
1, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 10. maí 2014 kl. 10:00.
ORV 2014-06 24.05.2014
Reykjavíkurborg
Innkaupadeild
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
Steinahlíð færanlegt húsnæði, endurgerð 2014•
Útboð nr. 13258
Úrbætur í umferðaröryggismálum 2014•
Útboð nr. 13250
Betri hverfi 2014 - Vestur•
Útboð nr. 13230
ÚTBOÐ
ÚTBOÐ
Ísafjarðarbær – Suðureyri
Þekja og lagnir
Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í
ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
Bygging veituhúss.
Leggja og tengja vatnlagnir með tilheyr-
andi úttaksbrunnum.
Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn með til-
heyrandi úttaksbrunn.
Steypa þekju .......1.200 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. ágúst
2014.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni,
Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku), og á
skrifstofu Ísafjarðarbæjar frá og með þriðju-
deginum 27. maí 2014. Verð útboðsgagna er
5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þriðjudaginn 10. júní 2014 og verða
þau opnuð þar kl. 14.15 þann dag.
*Nýtt í auglýsingu
*15658 Stofnmæling botnfiska að haustlagi
2014, „haustrall”. Ríkiskaup, fyrir hönd Haf-
rannsóknastofnunar, óska eftir tilboðum í leigu á
togara til verkefnisins „Stofnmæling botnfiska að
haustlagi” árið 2014. Um er að ræða leigu á
togara með áhöfn í stuttan tíma til að stunda
togveiðar í rannsóknaskyni. Óskað eftir leigu á
sínum hvorum togaranum, á grunnslóð annars
vegar og á djúpslóð hins vegar. Nánari upplýs-
ingar er að finna í útboðsgögnum sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is,
þriðjudaginn 27. maí nk.Tilboð verða opnuð 19.
júní 2014 kl. 14.00 hjá Ríkiskaupum.
*15641 Ýmis lyf – 29. Ríkiskaup fyrir hönd
Landspítala óska eftir tilboðum í storkuþátt VIII úr
mönnum framleiddan með raðbrigða DNA-tækni
í ATC flokki B02BD02. Nánari upplýsingar er að
finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á
vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.Tilboð verða
opnuð 3. júlí 2014 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum.