Morgunblaðið - 17.07.2014, Page 3
svarsmanna liðs í deildinni við Morgunblaðið og
taldi að þrennt lægi til grundvallar fækkun hjá
sínu liði. Í fyrsta lagi HM, í öðru lagi leiðinlegt
veður og í þriðja lagi væri gengi liðsins ekki nógu
gott.
Á meðfylgjandi töflu má sjá hve dræm aðsóknin
var á leikina í „HM-umferðunum“ þremur, átt-
undu, níundu og tíundu umferð. Stuðningsmenn
liðanna tóku við sér á ný í elleftu umferðinni þegar
995 manns mættu að meðaltali á leik.
Hrun í Vestmannaeyjum
Þegar aðsóknin til þessa í sumar er borin saman
við síðasta ár kemur í ljós að tíu af tólf liðum deild-
arinnar hafa tapað áhorfendum á milli ára. Stærsta
sveiflan er í Vestmannaeyjum en þar liggur við að
segja að aðsóknin hafi hrunið. Í fyrra mætti 981 að
meðaltali á heimaleiki ÍBV en í ár eru þeir aðeins
570 á leik. David James hafði mikið aðdráttarafl í
fyrra ásamt Hermanni Hreiðarssyni og brotthvarf
þeirra hefur eflaust sitt að segja ásamt slæmu
gengi ÍBV lengi vel í sumar.
Uppsveifla í Keflavík
Það eru hinsvegar Keflvíkingar sem hafa bætt
mestu við sig en hjá þeim hefur meðalaðsókn auk-
ist um 247 manns á leik frá því í fyrra.
Annars er það bara Stjarnan sem hefur bætt lít-
illega við aðsóknina frá síðasta tímabili.
FH-ingar hafa tapað rúmlega 200 manns á leik
miðað við síðasta ár, þrátt fyrir að þeir séu ósigr-
aðir á toppi deildarinnar, Valsmenn hafa tapað 240
manns á leik og Íslandsmeistarar KR rúmlega 300
manns á leik. Hjá Val og KR spilar væntanlega að
einhverju leyti inní að liðin léku fyrstu heimaleiki
sína á Þróttarvellinum í Laugardal.
Tveir undir fimm hundruð
Aðsókn á tvo leiki í ár hefur farið niður fyrir
fimm hundruð manns. Á leik Fjölnis og Fram
sunnudaginn 15. júní mættu 468 áhorfendur og að-
eins 404 sáu leik Breiðabliks og Þórs miðvikudag-
inn 2. júlí. Síðarnefndi leikurinn fór fram á frídegi
á HM og stuðningsmenn liðanna hafa því ekki
sjónvarpsfótboltann sem afsökun í því tilviki.
Á tveimur leikjum í sumar hefur aðsóknin farið
yfir tvö þúsund manns. Á leik KR og Vals í fyrstu
umferðinni mættu 2.128 áhorfendur og á leik KR
og FH mættu 2.055 en báðir leikirnir fóru fram á
Þróttarvellinum. Í fyrra sáu 2.975 manns heimaleik
KR gegn FH í Vesturbænum.
á íslensku liðunum
eðaltali
2014
2007:
1.329
6:
89 2009:
1.029
2010:
1.205
2012:
1.034 972
Áhorfendafjöldi á leikjum í hverri umferð fyrir sig árið 2014
heildarfjöldi og meðaltal:
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
1Umferð:
8.
14
2
1.
35
7
85
3
1.
0
0
8
1.
23
6
89
5
1.
11
0
96
8
73
1
77
1
76
5
99
5
5.
12
0 6.
0
47
7.
41
3
5.
36
7 6
.6
57
5.
80
9
4.
38
4
4.
62
5
4.
59
2 5
.9
68
2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
Heildarfjöldi Meðaltal
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 2014
Við höfum ekkihaldið neina
fundi um áfeng-
isnotkun eða neitt
slíkt og umræða
um að við séum
eitthvert fyll-
irísfélag er ekki
rétt,“ sagði Indr-
iði Sigurðsson,
fyrirliði norska knattspyrnuliðsins
Viking, í samtali við mbl.is í gær um
fréttaflutning norskra fjölmiðla um
meinta óreglu innan liðsins.
Sænski knattspyrnumaðurinnIsak Nylén gengur til liðs við
ÍBV á næstu dögum, en hann hefur
æft með liðinu undanfarnar vikur.
Nylén er 19 ára framherji og kemur
á lánssamningi til eyjamanna frá
Brommapojkarna. Nylén verður
annar leikmaðurinn sem ÍBV fær til
sín í júlí, en Þórarinn Ingi Valdi-
marsson hafði áður samið við ÍBV.
Massmiliano Allegri er tekinnvið Ítalíumeisturum Juventus
í knattspyrnu, en það var staðfest í
gær. Allegri tekur við liðinu af Ant-
onio Conte sem hætti störfum á dög-
unum.
Ekvadorskiknatt-
spyrnumaðurinn
Enner Valencia
gekk í gær í raðir
enska úrvals-
deildarfélagsins
West Ham, en
hann kemur til
liðsins frá Pac-
huca í Mexíkó. Hamararnir borga
fimmtán milljónir punda fyrir fram-
herjann sem er jöfnun á félagsmeti,
því liðið greiddi sömu upphæð fyrir
Andy Carroll frá Liverpool.
Ásdís Hjálmsdóttir, Íslands-methafi í spjótkasti, hafnaði í
sjötta sæti í greininni á alþjóðlegu
frjálsíþróttamóti í Luzern í Sviss á
mánudag. Ásdís kastaði spjótinu
lengst 58,32 metra.
Kvennalið Hauka í handknattleikhefur náð samkomulagi við
ungverska markvörðinn Madalinu
Puscas og mun hún leika með Hauk-
um í Olís-deild kvenna á næsta
keppnistímabili. Puscas sem er 22
ára kemur til Hauka frá H.C.M. Ba-
ia Mare í Rúmeníu.
Pálmi RafnPálmason,
knattspyrnumað-
ur hjá Lillestörm,
telur að framtíð
sín hjá norska fé-
laginu sé mjög
óviss vegna mik-
illa fjárhagsörð-
ugleika þar á bæ.
Lilleström hefur þegar misst nokkra
lykilmenn í sumar og reiknað er með
að fleiri hætti hjá félaginu eftir þetta
tímabil. Pálmi er einn þeirra sem
eru á síðasta ári á sínum samningi,
en hann er á sínu þriðja ári hjá félag-
inu.
Ögmundur Kristinsson, fyrirliðiknattspyrnuliðs Fram, gekk í
gær formlega í raðir danska félags-
ins Randers. Hjá Randers hittir Ög-
mundur fyrir annan Íslending, því
þar er fyrir Theódór Elmar Bjarna-
son.
Spænska stórliðið Barcelona stað-festi í gær að úrúgvæski fram-
herjinn Luis Suárez hefði skrifað
undir fimm ára samning við félagið.
Félagaskiptin voru í raun frágengin
fyrir helgi, en nú hefur loks verið
gengið frá öllum pappírum og Suá-
rez orðinn formlegur leikmaður
Barcelona.
Fólk sport@mbl.is
inu að verjast ofan á það að skora
mörk. Aron gerir það mjög vel að
mínu mati. Hann hefur átt nokkra al-
veg frábæra leiki og það er magnað að
þjálfari andstæðinga hrósi honum og
það segir mikið um það hversu mik-
ilvægur hann er fyrir liðið,“ sagði
Ingvar, en eftir 3:1-sigur Víkinga á
Keflavík á mánudag hrósaði Kristján
Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga,
Aroni í hástert.
Aðspurður hvort Aron væri nokkuð
gallalaus hló Ingvar við. „Hann á það
til að tuða svolítið í samherjunum á
æfingu, en það er bara skemmtilegt,“
sagði Ingvar og nefndi dæmi:
Vill alltaf vinna
„Hann vill alltaf vinna á æfingu og
um daginn vorum við að spila og við
vorum saman í liði. Ég fékk á mig eitt-
hvert skítamark og þrátt fyrir að vera
ellefu árum eldri þá spáði Aron ekkert
í það heldur lét mig alveg heyra það,
hvað ég væri eiginlega að gera þarna í
markinu. En það er fínt þegar menn
hafa sjálfstraust í það.“
Sem fyrr segir er Aron mikið orð-
aður við önnur lið og hann hefur heill-
að erlend félagslið jafnt sem íslenska
áhorfendur í sumar. Ingvar sér fyrir
sér að hann muni ná langt. „Hann er
fylginn sér og hefur markmið liðsins
að leiðarljósi frekar en sín eigin eins
og hefur komið fram. Ég sé hann al-
veg fyrir mér sem fyrirliða einhvers
stórs liðs í framtíðinni,“ sagði Ingvar.
Morgunblaðið/Eggert
Marksækinn Aron Elís
Þrándarson er búinn að
skora fimm mörk fyrir
Víking í deildinni og tvö í
bikarkeppninni á þessu
keppnistímabili.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Aron Elís Þrándarson úr Víkingi er besti leikmaðurinn
í fyrri umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu að
mati Morgunblaðsins.
Aron er efstur í einkunnagjöf blaðsins en hann hefur
fengið samtals 9 M fyrir frammistöðu sína, þrátt fyrir
að hafa aðeins verið í byrjunarliði Víkings í síðustu
fimm leikjum liðsins. Hann hefur fengið 7 M fyrir þessa
fimm leiki og hafði áður tvívegis fengið M eftir að hafa
komið inná sem varamaður.
Aron missti af fyrstu tveimur leikjunum vegna
meiðsla og kom síðan inná sem varamaður í fjórum
leikjum áður en hann hóf sinn fyrsta leik gegn Þór í
sjöundu umferð deildarinnar mánudaginn 9. júní.
Hann er nú í hópi markahæstu leikmanna deildarinnar
með 5 mörk.
Gunnar Már Guðmundsson, miðjumaður Fjölnis, hef-
ur líka fengið 9 M fyrir sína frammistöðu í sumar en
hann hefur leikið alla ellefu leiki nýliðanna og er því
annar á listanum yfir bestu leikmennina í fyrri umferð
Íslandsmótsins.
Úrvalslið Morgunblaðsins úr fyrri umferðinni má sjá
hér til hliðar en það er byggt á einkunnagjöf blaðsins.
Þar eru þrír leikmenn toppliðs FH, og sá fjórði á vara-
mannabekknum, og Keflvíkingar eiga líka tvo menn í
byrjunarliðinu og einn á bekknum.
Aron bestur í fyrri umferðinni