Morgunblaðið - 10.06.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Sjálfstæðisflokkurinn og Björt fram-
tíð hafa tekið upp meirihlutasam-
starf í Hafnarfirði og Kópavogi.
Í Kópavogi verður Ármann Kr.
Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna,
áfram bæjarstjóri og Theódóra S.
Þorsteinsdóttir, oddviti Bjartrar
framtíðar, formaður bæjarráðs.
Margrét Friðriksdóttir, sem skipaði
annað sæti á lista Sjálfstæðisflokks-
ins, verður forseti bæjarstjórnar.
Auglýst eftir bæjarstjóra
Í Hafnarfirði verður Rósa Guð-
bjartsdóttir, oddviti sjálfstæðis-
manna, formaður bæjarráðs og Guð-
laug Kristjánsdóttir, oddviti
Bjartrar framtíðar, foseti bæjar-
stjórnar. Starf bæjarstjóra verður
auglýst laust til umsóknar.
Málefnasamningur hefur ekki ver-
ið kynntur í Hafnarfirði, en í yfirlýs-
ingu frá oddvitum flokkanna segir að
rík áhersla sé lögð á jafna verka-
skiptingu og virkt samstarf allrar
bæjarstjórnar.
Í Kópavogi verður mikil áhersla
lögð á skólamál í bænum með nýt-
ingu upplýsingatækni í skólum að
leiðarljósi. Segja oddvitar nýja
meirihlutans að stefnt verði að því að
skólar í Kópavogi verði í fremstu röð
skóla á landinu. Þá verður leitast við
að auka áhrif íbúanna og virkja þá í
ákvarðanatöku í bænum. Bókhald
bæjarins verður opið þannig að íbúar
munu eiga hægt um vik að fylgjast
með því hvernig peningum bæjarins
er varið. Áhersla verður lögð á lýð-
heilsumál og munu eldri borgarar og
börn tíu ára og yngri fá frítt í sund.
Vinna með L-listanum
Viðræðum um meirihlutasamstarf
L-listans, Samfylkingar og Fram-
sóknarflokks á Akureyri er lokið og
á að undirrita málefnasamning
flokkanna í dag. Samkomulag er um
að núverandi bæjarstjóri haldi áfram
störfum.
Í Fjarðabyggð hefur tekist sam-
komulag um áframhaldandi meiri-
hlutasamstarf á milli Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks. Jón
Björn Hákonarson, oddviti fram-
sóknarmanna, verður forseti bæjar-
stjórnar og Jens Garðar Helgason,
oddviti sjálfstæðismanna, formaður
bæjarráðs út kjörtímabilið. Þá verður
Páll Björgvin Guðmundsson áfram
bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Sigrún áfram bæjarstjóri
Í Sandgerðisbæ hafa Samfylkingin
og óháðir borgarar og sjálfstæðis-
menn og óháðir náð samkomulagi um
meirihlutasamstarf. Samstarfið legg-
ur áherslu á áframhaldandi ábyrga
fjármálastjórn og að bæjarbúar njóti
þess svigrúms sem skapist í rekstri
bæjarsjóðs með lækkuðum álögum og
bættri þjónustu. Samkomulag er um
að Sigrún Árnadóttir verði áfram
bæjarstjóri, Ólafur Þór Ólafsson verði
forseti bæjarstjórnar og Hólmfríður
Skarphéðinsdóttir formaður bæjar-
ráðs.
Viðræður standa enn yfir um
myndun meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur og bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar.
Ætla að opna bókhaldið í Kópavogi
Meirihlutasamstarf Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og Kópavogi
L-listinn myndar meirihluta með Samfylkingunni og Framsóknarflokknum á Akureyri
Kópavogur Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar.
Óhætt er að segja að sumarið sé
komið til höfuðborgarsvæðisins en
bongóblíða lék við íbúa þess um
helgina. Hæst mældist hitinn rúm-
lega 17 gráður á sunnudaginn en
á föstudag og laugardag var veðr-
ið einnig með besta móti og mæld-
ist hitinn hæstur um 15 gráður
báða dagana. Þrátt fyrir eina
mestu ferðahelgi landsins nýttu
margir borgarbúar tækifærið og
nutu þess að sleikja sólina. Það má
með sanni segja að strákurinn á
myndinni hér til hliðar tilheyri
þeim hópi en hann ásamt fleirum
stökk og buslaði í Elliðaánum um
helgina. Vinsælt er hjá krökkum á
heitum sumardögum að henda sér
í kalda ána en heitir geislar sól-
arinnar gera það að verkum áin
er þó hlýrri en venjulega.
Samkvæmt spám Veðurstofu Ís-
lands verður veðrið áfram milt
næstu daga á höfuðborgarsvæð-
inu. Léttskýjað verður í dag og
hiti 10-15 gráður. Á morgun verð-
ur skýjað og líkur á stöku skúrum
en hitastig með svipuðu móti.
pfe@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Bongó-
blíða í
borginni
Þungur umferðarstraumur var á
Vesturlands- og Suðurlandsvegi í
átt að höfuðborginni seinnipartinn í
gær og fram á kvöld. Fyrsta stóra
ferðahelgi ársins er afstaðin og
virðast ekki hafa orðið nein alvarleg
óhöpp. Lögregla hafði þó víðast
hvar í nógu að snúast því margir
ökumenn freistuðust til þess í veð-
urblíðunni að aka hraðar en leyfi-
legt er.
Hjá lögreglunni á Selfossi feng-
ust þær upplýsingar að umferðin
hefði gengið vel á Suðurlandi. Stöð-
ugur straumur bifreiða var í gegn-
um Selfoss allan daginn.
Vélsleðaslys varð við Sandkúluna
á Snæfellsjökli á laugardaginn.
Voru björgunarsveitir kallaðar út
ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Þyrlan flutti manninn á sjúkrahús
en á leið þangað sótti hún konu sem
hafði hlotið höfuðáverka við stein-
vegg nærri Löngufjörum. Líðan
þeirra var sögð eftir atvikum í gær.
Ekki nein alvarleg óhöpp
Morgunblaðið/Ómar
Umferð Stöðugur straumur bifreiða var á Suðurlandsvegi þegar ferðahelg-
in hófst og eins í lok hennar. Ekki er kunnugt um nein alvarleg óhöpp.
Umferðin gekk vel fyrstu stóru ferðahelgi ársins
Þyrla kölluð út vegna vélsleðaslyss á Snæfellsjökli