Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2014FRÉTTIR Mesta hækkun Mesta lækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) Marel hf. -3,382% 100 N1 hf. +4,482% 18,65 S&P 500 -0,191% 1.999,540 -0,269% 4.071,584 NASDAQ FTSE 100 NIKKEI 225 03. 03. ‘14 03. 09. ‘14 1.700 2.150 1.719,51 2.080,75 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. +0,789% 6.873,580 +1,969% 15.728,350 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 27. 2. ‘14 27. 8. ‘14 92 106 93,4996,57 Samtök atvinnulífsins átelja að ekki sé að finna svokallaða útgjaldareglu í nýju frumvarpi að lögum um opinber fjármál. Útgjaldaregla felur í sér að útgjöld hins opinbera, að frádregnum vaxtagjöldum, skuli ekki fara fram úr langtíma meðalhagvexti, að viðbættu verðbólgumarkmiði. Í nýrri greiningu efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins er fjallað um nauðsyn þess að lögbinda útgjalda- reglu í því augnamiði að „takmarka árlegan útgjaldavöxt og þannig þvinga stjórnvöld til að halda sig inn- an þess ramma sem settur er fram“. Samtök atvinnulífsins telja innleið- ingu nýrra fjármálareglna sem ná munu til afkomu og skulda hins op- inbera ekki duga til þess að taka á „meginvandamáli opinberra fjármála á Íslandi“, sem samtökin telja liggja á útgjaldahliðinni. Í greiningunni er bent á að stofn- anir á borð við AGS og fram- kvæmdastjórn ESB leggi áherslu á innleiðingu útgjaldareglu samfara öðrum fjármálareglum. Þá birti efna- hagssvið Samtaka atvinnulífsins út- tekt í síðustu viku þar sem fram kom að viðvarandi útgjaldavöxtur hins op- inbera umfram hagvöxt væri ekki sjálfbær til langs tíma og að „ríkisút- gjöld sem ítrekað fara út fyrir ramma fjárlaga [drægju] úr trúverðugleika fjárlagagerðar“. Samtökin telja lög- bindingu útgjaldareglu nauðsynlega til að „tryggja agaða og ábyrga fjármálastjórn hins opinbera“. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár- laganefndar, kveðst mjög hlynnt því að taka útgjaldareglu inn í lög um op- inber fjármál og undrast hvers vegna slík regla sé ekki inni í fyrirliggjandi frumvarpi. Vigdís segist ósammála því að slík regla hefti með einhverjum hætti rétt kjörinna stjórnvalda og kveðst sjá fyrir sér að taka inn slíkt ákvæði til bráðabirgða, til dæmis til tíu ára. Hún bendir á að aðkallandi sé að greiða niður erlendar skuldir ríkis- sjóðs og að lækka vaxtakostnað rík- isins. Lögfesting útgjaldareglu styðji þau markmið. Að hennar mati yrði lögfesting slíkrar reglu til þess að hið opinbera myndi minnka umsvif sín og beita aðhaldi í fjármálum. Þá muni frumvörp sem kalli á há útgjöld fyrir ríkissjóð ekki fara í gegnum þingið, verði útgjaldaregla lögfest. Vigdís er þó ekki hlynnt því að beita viðurlögum, fari ríkisstofnanir fram úr fyrirfram ákveðnum út- gjöldum. „Lögin eiga að duga til að farið sé eftir þeim,“ segir Vigdís. Þrjú stór verkefni Guðlaugur Þór Þórðarson alþingis- maður í fjárlaganefnd kveðst fagna öllum hugmyndum um aðhald í ríkis- rekstri. „Þrjú stærstu verkefni þjóð- arinnar um þessar mundir eru að greiða skuldir ríkissjóðs, lífeyris- skuldbindingar og að undirbúa okkur fyrir breytta aldurssamsetningu. Ef við tökum ekki á þeim erum við að skerða verulega lífskjör barnanna okkar.“ Hann bendir á að ríkissjóður greiði nú tvöfaldan rekstrarkostnað Landspítalans árlega í vexti. „Við þurfum að hugsa til framtíðar og framtíðin er núna,“ bætir Guðlaugur við. Hann segist vona að umræðan um ríkisfjármál snúist um hvernig leysa eigi þau þrjú vandamál sem hann segir standa þjóðinni fyrir þrif- um. Nauðsynlegt sé að ríkisstofnanir haldi sig innan ramma fjárlaga. Hann bendir á að erlendis sé meiri agi á fjármálum ríkisstofnana og að þær ríkisstofnanir sem fari út fyrir fjárheimildir taki lán sem þær þurfi að endurgreiða innan nokkurra ára. Hann segir greiningu Samtaka at- vinnulífsins gott innlegg í umræðuna og bætir við: „Ég hlakka til að fara yf- ir þessi sjónarmið.“ SA vilja binda útgjaldareglu í lög Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Samtök atvinnulífsins telja nauðsynlegt að lögbinda svokallaða útgjaldareglu til að tryggja aðhald í ríkisfjár- málum. Slík regla nýtur hljómgrunns þingmanna í fjárlaganefnd. Morgunblaðið/Kristinn Samtök atvinnulífsins kalla eftir að útgjaldaregla verði bundin í lög. Vigdís Hauksdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson BÍLAR Tap varð á rekstri bílaumboðsins Heklu að fjárhæð 105 milljónir króna á síðasta ári samanborið við hagnað upp á 203 milljónir 2012. Í ársreikningi félagsins, sem var nýlega skilað til ársreikningaskráar, kemur fram að tekjur Heklu hafi numið samtals 9,76 milljörðum króna á árinu 2013 og drógust þær saman um 275 milljónir á milli ára. Rekstrarhagnaður Heklu fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var tæplega 104 milljónir króna borið saman við 353 milljónir króna árið áð- ur. Heildareignir fyrirtækisins voru 2,83 milljarðar króna í árslok 2013 og eigið fé liðlega 821 milljón króna. Nemur eiginfjárhlutfall Heklu því um 29%. Eigendur Heklu eru félögin Riftún og Semler Group A/S með 50% hlut hvort. Riftún er í eigu Friðberts Frið- bertssonar, forstjóra félagsins, en Semler er danskt hlutafélag sem á og rekur umboð fyrir Wolkswagen bif- reiðar í Danmörku. Keypti danska fé- lagið helmingshlut í Heklu í júlí 2013. Hekla tapaði 105 milljónum á síðasta ári Morgunblaðið/Sigurgeir S. Friðbert Friðbertsson er forstjóri Heklu og á hann 50% hlut í félaginu. GJALDEYRISÚTBOÐ Munurinn á útboðsgengi í gjaldeyr- isútboðum Seðlabankans og gengi krónunnar gagnvart evru hefur minnkað um helming frá áramótum. Hefur krónan aldrei verið sterkari en raunin var í gjaldeyrisútboði Seðlabankans í fyrradag. Þetta kemur fram í greiningu Ís- landsbanka en bent er á að útboðin hafi fækkað aflandskrónum um 146 milljarða frá því að þau hófust 2011. Svo virðist sem þrýstingur vegna aflandskróna sé talsvert minni og líkur því aukist á að stjórnvöld hugi að næstu skrefum í losun hafta. Það sem af er ári hefur útboðs- gengið lækkað stöðugt og krónan því að styrkjast gagnvart evru. Nemur lækkunin 29 krónum á hverja evru frá febrúarmánuði sem jafngildir 16% styrkingu. Greining Íslandsbanka segir að athyglisvert verði að heyra hvernig Seðlabankinn túlkar þróunina í þessum efnum. Hefur bankinn áður sagt að minnkandi munur á útboðs- genginu og almennu gengi krón- unnar væri til marks um minnkandi þrýsting vegna aflandskróna. Í kjöl- farið mætti því fara að huga að næstu skrefum í losun hafta. Útboðin að renna sitt skeið? Morgunblaðið/Ernir Gjaldeyrisútboðin hafa fækkað aflandskrónum um 146 milljarða. VIÐ KOMUM VÍÐA VIÐ! Prentgripur 511 1234 gudjono@gudjono.is SLITABÚ Aðkeyptur innlendur ráðgjafarkostn- aður slitabús Glitnis nam 340 millj- ónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tíma árið 2013 var hann aðeins 159 milljónir. Hefur kostnaðurinn aukist um ríflega 210% á milli ára en inni í þessari tölu er ekki aðkeypt lögfræðiráðgjöf. Samtals nam aðkeyptur ráðgjafar- og lögfræðikostnaður Glitnis 1.644 milljónum á fyrri árshelmingi og jókst um 171 milljón frá árinu 2013. Yfir tveir þriðju er aðkeyptur kostn- aður erlendra ráð- gjafa. Fram hefur komið á við- skiptasíðum Morg- unblaðsins að Glitnir hafi fyrr á þessu ári ráðið til sín KOM almanna- tengsl, Straum fjárfestingabanka og MP banka sem ráðgjafa vegna vinnu við áform um að ljúka uppgjöri bank- ans með nauðasamningi. Innlendur ráðgjafarkostn- aður Glitnis tvöfaldast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.