Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 16
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidskipti@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar Sími 5691111, augl@mbl.is. Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTA VIÐSKIPTI Á MBL.IS Koma ísnum ekki í … Verðtrygging ekki … Tesla fyrir 220 þús. … ASÍ: Tími ofurlauna … Umsóknir fleiri en … Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Ekkert er því til fyrirstöðu að gjald- eyriseftirlit Seðlabanka Íslands birti ákvarðanir sínar varðandi undan- þágubeiðnir frá fjármagnshöftum. Slíkt myndi auðvelda mat aðila á því hvort þeir eigi rétt á sambærilegum undanþágum og tryggja að sam- ræmis sé gætt við afgreiðslu á und- anþágubeiðnum. Þannig mætti sömuleiðis auka traust á ferlinu og fækka umsóknum ef unnt sé að sjá hvaða beiðnum hafi þegar verið hafnað. Þetta kemur fram í bréfi sem Við- skiptaráð Íslands hefur sent efna- hags- og fjármálaráðherra og um- boðsmanni Alþingis um ábendingar um nauðsynlegar umbætur á stjórn- sýsluháttum Seðlabankans. Í bréfi Viðskiptaráðs er vakin at- hygli á því að engin kæruleið sé fyrir hendi vegna synjunar á undan- þágubeiðnum heldur þurfti fyr- irtæki að leita beint til dómstóla. „Fyrirtæki hafa hingað til ekki nýtt sér þá leið. Af samtölum við for- svarsmenn fyrirtækja má ráða að orsök þess sé ekki sú að ávallt sé sátt um ákvarðanir bankans, heldur að aðilar óttist í vissum tilfellum að missa velvild í síðari ákvörðunum sé niðurstaða bankans borin undir dómstóla,“ segir í bréfi Viðskipta- ráðs. Dæmi séu um að ráðgjafar sem sérhæfi sig í undanþágubeiðnum hafi ráðlagt fyrirtækjum að fara ekki með ákvarðanir gjaldeyriseft- irlitsins fyrir dómstóla til að forðast neikvæð viðbrögð Seðlabankans við undanþágubeiðnum síðar meir. Forsvarsmenn fyrirtækja eru einnig sagðir hafa áhyggjur af jafn- ræði milli umsækjenda. Viðskipta- ráð bendir á að eitt félag segist ávallt notast við einn tiltekinn ráð- gjafa í málum sem varða gjaldeyr- iseftirlitið þar sem hann hefði tengsl við Seðlabankann. „Telja forsvars- menn fyrirtækisins þá staðreynd hafa hjálpað fyrirtækinu við að fá skjótari og hagstæðari afgreiðslu á undanþágubeiðnum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg VI telur ekkert því til fyrirstöðu að ákvarðanir Seðlabankans séu birtar. „Óttast að missa velvild“ Hörður Ægisson hordur@mbl.is Viðskiptaráð segir að fyrir- tæki veigri sér við því að leita til dómstóla séu þau ósátt við ákvarðanir gjald- eyriseftirlits Seðlabankans. Hörður Ægisson hordur@mbl.is Seðlabanki Íslands stöðvaði fyrirskemmstu ólöleg gjaldeyris- viðskipti erlendra tryggingafélaga. Þótt bankinn hafi um árabil vitað að gjaldeyrisviðskiptin væru í trássi við lög og reglur um gjaldeyrismál þá skipti það máli – það réð samt ekki úrslitum – að útflæðið hafði aukist hröðum skrefum með tilheyrandi nei- kvæðum áhrifum á greiðslujöfnuð Ís- lands. Á þessu ári var það áætlað um 10 milljarðar króna. Þetta er ágætt að setja í samhengivið áform slitabúa föllnu bank- anna og kröfuhafa þeirra sem sækj- ast eftir því að fá undanþágu frá fjár- magnshöftum til að selja eignarhluti í Íslandsbanka og Arion banka til er- lendra fjárfesta. Slík sala myndi opna á umtalsvert gjaldeyrisútflæði úr landinu enda væru arðgreiðslur úr nýju bönkunum til erlendra eigenda undanþegnar höftum. Þannig gætu þeir, sé miðað við hófsamar 12% arð- semisforsendur, greitt sér út arð í er- lendum gjaldeyri fyrir um 35 millj- arða á ári. Til samanburðar er spáð 15 milljarða viðskiptaafgangi á þessu ári. Gjaldeyrisstaða þjóðarbúsins stendur því ekki undir slíku útflæði – og niðurstaðan yrði gengislækkun krónunnar eða að gengið yrði á forða Seðlabankans. Því er ítrekað haldið fram að sala ábönkunum til erlendra fjárfesta auðveldi losun hafta. Sú fullyrðing stenst augljóslega enga skoðun. Að óbreyttu getur Seðlabankinn því aldrei fallist á undanþágubeiðnir slitabúanna á meðan ekki liggur fyrir hvernig arðgreiðslur til mögulegra- nýrra erlendra eigenda eiga að geta samrýmst áformum stjórnvalda um afléttingu fjármagnshafta. Leysir eng- an vandaMikilvægi þess að skipa fyr-irtæki góða stjórn verður seint ofmetið. Fagmennska í vinnu- brögðum og stjórnarháttum getur skipt sköpum fyrir framtíð hvers fyrirtækis. Stjórnir gegna mik- ilvægu hlutverki við eftirlit og sem milliliður í samskiptum eigenda fyr- irtækisins og þeirra sem falið er að stjórna því. Eftirlit stjórna nær allt frá vanhæfni við stjórnun fyrirtæk- isins til hugsanlegra svika, auk þess sem ýmiskonar ráðgjöf og stuðningur stjórnarmanna getur verið mikilvægur, til dæmis við að laða að framúrskarandi starfsfólk eða við kaup á öðrum fyrirtækjum. Áhugaverð umræða hefur skap-ast vestanhafs um bylting- arkennda hugmynd tveggja banda- rískra prófessora, sem birt var í grein í Stanford Law Review í vor, um skipan í stjórnir. Þar velta þeir því fyrir sér hvort ekki væri hag- felldast að stjórnarmenn væru ráðnir til starfa frá sérhæfðum fyr- irtækjum atvinnustjórnarmanna. Til yrði ný stétt fólks sem starfaði við stjórnarstörf, líkt og ráðgjafar hjá ráðgjafarfyrirtækjum. Með því myndi ekki einungis fást hlutlaust fagfólk í stjórn, heldur myndu stjórnarmennirnir njóta þess að starfa sem hluti af fyrirtæki sem byggi yfir mikilli uppsafnaðri sér- fræðikunnáttu um þau verkefni sem stjórnir þurfa að sinna. Þetta myndi meðal annars auka sjálfs- öryggi og sjálfstæði stjórnarmanna, bæði gagnvart stjórnendum og eig- endum, sem fyrst og fremst væri byggt á traustri þekkingu. Ýmsar leiðir eru mögulegar viðval á stjórnarmönnum og allar hafa þær sína kosti og galla. Ein- hvers konar blönduð leið kann að vera farsælust þegar upp er staðið. Það er hins vegar mikilvægt að í stjórnir veljist einstaklingar sem skapa stjórninni breidd. Í því sam- bandi hafa meðal annars verið sett á lög um kynjakvóta í stjórnum hér á landi. Hins vegar má velta því fyrir sér hvort hugsunin að baki þeirri reglu sé ekki röng í grund- vallaratriðum. Sjálfstæði, færni og kunnátta hefur ekkert með kyn að gera. Líklegt er að ef stjórnar- mannafyrirtæki verða hluti af framtíðinni muni af sjálfu sér skap- ast eðlilegt jafnvægi kynja í stjórn- um. Góðir stjórnarmenn hf. Tvö þúsund mótmælendur vopnaðir tíu tonnum af tómöt- um munu setja á svið matar- slag í Amsterdam til að mót- mæla viðskiptabanni Rússa. Mótmæla viðskipta- banni með tómötum 1 2 3 4 5 Vantar þig dælu? Við höfum úrvalið Stórar dælur - Litlar dælur Góðar dælur - Öruggar dælur Gæði - Öryggi - Þjónusta Danfoss hf • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.