Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2014 7SJÁVARÚTVEGUR SCREEN- OG RÚLLUGARDÍNUR Henta vel þar sem sól er mikil en þú vilt samt geta séð út Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Meira úrval Meiri gæði Íslensk framleiðsla eftir máli Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18 Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 30 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Sólskálar -sælureitur innan seilingar „Við stefnum að því að láta vélarnar standa undir merkjum, þannig að fólk velji okkur gæðanna vegna,“ segir Elliði Hreinsson, fram- kvæmdastjóri íslenska tæknifyr- irtækisins Curio sem hannar og framleiðir háþróuð fiskvinnslutæki á borð við hausara, flökunarvélar, roð- flettivélar, brýningarvélar og pæk- ilstöðvar. Um 120 vélar frá fyrirtæk- inu eru í notkun víðsvegar um heiminn. Fyrirtækið var stofnað árið 2008 og frá þeim tíma hefur starfs- mönnum fyrirtækisins fjölgað úr fjórum í 25. Velta Curio eykst einnig hröðum skrefum. „Við erum að með- altali að tvöfalda veltuna á hverju ári,“ greinir Elliði frá. „Við vorum með nánast milljarð í heildarveltu í fyrra og við stefnum á tvo milljarða í veltu á þessu ári ef allt gengur vel.“ Curio er starfrækt í Hafnarfirði en er með útibú á Húsavík og í Aber- deen í Skotlandi. Þá er unnið að því að opna útibú í Noregi bráðlega og stefnt er að opnun útibús í Banda- ríkjunum innan tveggja ára. Tryggja rekstraröryggi Elliði kveður allt kapp lagt á að vélarnar frá Curio standi undir merkjum sem gæðavélar. „Við smíð- um góðar og stöðugar vélar með góðri nýtingu. Við reynum að tryggja rekstraröryggi viðskiptavina með því að vélarnir bili sem minnst. Við fylgjumst mjög vel með öllum bilunum og vinnum bót á þeim sem allra fyrst.“ Aðspurður hvers vegna hann telji vélarnar frá Curio góðar svarar Ell- iði: „Við leggjum mikla áherslu á gæði og leggjum mikinn metnað í það sem við gerum. Allir starfsmenn okkar geta staðfest að við erum mjög stoltir af vinnunni okkar.“ Þá telur hann lykilatriði að vera með góða starfsmenn sem eru duglegir og samviskusamir. „Ég er svo heppinn að vera með slíkan hóp.“ Bókaðir langt fram í tímann Elliði hefur mörg járn í eldinum „Við erum með vélar í rennismíði stanslaust. Við erum með pantanir fleiri mánuði fram í tímann,“ greinir hann frá. Elliði kvartar þó engan veginn undan álagi. „Það eru bara lúxusvandamál hjá okkur. Við getum ekki kvartað. Við höfum haft mjög mikið að gera frá kreppu.“ Hann tel- ur fyrirtækið mun samkeppnishæf- ara í útflutningi núna þegar krónan er lág. Aðspurður um mannauðinn á vinnustaðnum svarar Elliði: „Síðustu fimm til sex ár höfum við átt fullt í fangi með að anna eftirspurn.“ Vinna vélarnar frá grunni Curio bæði hannar og smíðar vél- ar. „Við erum að vinna vélarnar í raun alveg frá grunni, það er frá hrá- efnum og upp í vélar,“ segir Elliði. Aðspurður um aðkeypta íhluti svarar hann: „Við kaupum sáralítið tilbúið, fyrir utan hluti frá nokkrum undir- verktökum í sérhæfðum verkefnum. Við framleiðum til dæmis okkar eigin rafmagnsmótora til að ná fram gæð- um sem við fundum ekki á almennum markaði.“ Eins og álfasmiðja jólasveinsins Curio hefur ekki verið sérlega áberandi í umræðunni þrátt fyrir vel- gengni. „Við höfum lítið látið á okkur bera undanfarin ár en núna erum við orðin það stór að við verðum að láta sjá okkur,“ segir Elliði. „Við verðum til dæmis í fyrsta skipti á Sjávar- útvegssýningunni í ár á bás. Við höf- um mætt á sýningar í Boston og Brussel áður en aldrei verið á bás.“ Framvegis mun Curio vera með bás á sýningum. „Við verðum framvegis sýnilegir,“ lofar hann. Elliði rifjar upp þegar viðskiptavinur komst svo að orði: „Ég heyrði svo mikið talað um ykkur en loksins fann ég ykkur.“ Viðskiptavinurinn líkti Curio svo við álfasmiðju jólasveinsins. Curio selur talsvert af vélum til út- landa. „Útflutningurinn er að verða stærra og stærra hlutfall af fram- leiðslunni. Líklega er hann 60-70% af henni,“ greinir Elliði frá. Hann segir fyrirtækið selja mikið til Noregs, Bretlandseyja í heild sinni, Banda- ríkjanna, Kanada, Portúgals og Spánar auk fleiri landa. „Við af- greiðum um þrjár vélar frá okkur á mánuði. Það þýðir að við erum að fjölga um fjörutíu vélar á ári miðað við framleiðsluna í ár.“ Nýsköpun ræðst af veskinu Curio vinnur nú að fjórum nýjum vélum. Elliði á von á því að fyrsta vél- in fari á markað núna í haust, önnur fer í prufukeyrslu í Skotlandi fyrir jól, sú þriðja í prufukeyrslu í mars 2015 og sú fjórða haustið 2015. „Framleiðslan gengur fyrir en ný- sköpunin ræðst af þeim aukatíma sem er og veskinu,“ bætir Elliði við. „Bara lúxusvanda- mál hjá okkur“ Morgunblaðið/Þórður Elliði Hreinsson segir sífellt stærri hluta framleiðslu Curio fari í útflutning. Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Ekki hefur mikið farið fyrir tæknifyrirtækinu Curio þrátt fyrir að fyrirtækið hafi selt um 120 háþróuð fisk- vinnslutæki víða um heim. Elliði Hreinsson fram- kvæmdastjóri lofar þó að fyrirtækið verði sýnilegra framvegis. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.