Morgunblaðið - 23.09.2014, Síða 1

Morgunblaðið - 23.09.2014, Síða 1
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2014 BÍLAR Reynsluakstur BMW X4 er nýr bíll á markaði. Hann prýða kostir á borð við aðdáunarvert grip og góða hljóðeinangrun. Að auki stenst hann vel samanburð við aðra bíla í sama flokki. »4 MAX er mættur! Öflugir radarvarar frá ESCORT Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is S amgönguviku lauk í gær með bíllausum degi, þar sem fólk var hvatt til að nýta sér aðra samgöngu- máta en einkabílinn og um leið hugleiða hvernig hlúa mætti betur að umhverfinu. Einn af viðburðum vikunnar var ráðstefna Grænu ork- unnar sem haldin var á Grand Hot- el sl. miðvikudag. Yfirskrift ráð- stefnunnar var Vistvænar samgöngur – vegur eða vegleysa? Fyrirlesarar voru margir, bæði innlendir og erlendir, og er óhætt að segja að á heildina litið hafi ráð- stefnan verið einkar fræðandi. Greina mátti að mikil samstaða er á meðal þeirra sem koma að rekstri og innflutningi á vistvænum farartækjum, hvort heldur um er að ræða bíla knúna raforku eða öðrum vistvænum orkugjöfum. Einn af áhugaverðari fyrirlestr- um þessa dags var Electromobility in Akershus: Achievementa and policy towards the future, fluttur af hinni norsku Solveigu Schytz, for- manni skipulags-, umhverfis- og viðskiptaþróunarnefndar Akers- hus County. Hún fjallaði um hvernig stjórn- völd í Noregi hefðu frá árinu 2001 unnið markvisst að fjölgun rafbíla í umferðinni. Það var ekki einungis gert með því að fella niður virðis- aukaskatt af rafbílum og með íviln- unum við innflutning á öðrum vist- vænum bílum, þó svo að það sé grundvallaratriði. Í Noregi eru tæp- lega 40.000 rafbílar og er áætlað að í apríl á næsta ári verði þeir orðnir 50.000. Í samtali við Morgunblaðið sagði Schytz að hinn stórgóði árangur sem náðst hefur í Noregi sé ekki síst stjórnvöldum að þakka. „Öðru- vísi hefði þetta ekki verið hægt. Frá fyrsta degi var það markmið ríkis- stjórnarinnar að fjölga vistvænum bílum og var markið sett á að í apríl 2015 væri fjöldinn kominn upp í 50.000 bíla,“ segir Schyltz. Eig- endur vistvænna bíla í Noregi geta lagt án endurgjalds í gjaldskyld stæði, þurfa ekki að greiða vega- tolla, geta hlaðið bíla sína endur- gjaldslaust víða og svo mætti lengi telja. Þegar markinu er náð í fjölda rafbíla mun þetta eflaust breytast smám saman eitt af öðru. Þessar ívilnanir voru gerðar til að rafbíla- væða Noreg upp að vissu marki og þó að ekki sé kominn apríl má samt segja að það hafi tekist. Markmið til lengri tíma Schyltz er sannfærð um að hið sama megi gera hér á landi. „Ísland hefur alla burði til að vera öðrum fyrirmynd í notkun á vistvænum bílum. Það ætti að vera hægur leik- ur að rafbílavæða Ísland en til þess þarf fullan stuðning stjórnvalda því þetta er nokkurra ára verkefni sem krefst þess að ívilnanir séu ein- hverjar. Ég veit að hér á landi hefur verið erfitt að ákvarða framhaldið hvað vistvæna bíla varðar þar sem undanþága frá lögum um virðis- aukaskatt fellur niður nú um ára- mótin,“ segir hún. Fleiri hafa haft af því áhyggjur að verð á rafbílum og öðrum vistvænum kostum rjúki upp um áramótin og margir lýst því yfir að rafbílavæðingin myndi líða undir lok því verðhækkunin yrði of mikil. Núverandi ríkisstjórn Íslands hef- ur frá upphafi lýst áhuga á að efla vistvænar samgöngur, meðal ann- ars í stjórnarsáttmálanum. Í sam- tali við Morgunblaðið sagði Ragn- heiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, að útlitið væri síður en svo svart hvað þessi mál varðaði. „Ákvörðun hefur verið tek- in og ívilnanirnar verða fram- lengdar,“ sagði Ragnheiður Elín. Ef- laust eiga margir eftir að fagna þessari ákvörðun ef marka má þann mikla samhljóm sem er á meðal meðlima Grænu orkunnar. Jón Björn Skúlason, fram- kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku og verkefnastjóri Grænu orkunnar, er einn þeirra sem fagna því að und- anþágan verði framlengd frá og með næstu áramótum. Hann segir að síðustu mánuðir hafi einkennst af óvissu um framtíð vistvænna bíla hér á landi. „Að stofna til verk- efna sem yfirleitt ná yfir mjög lang- an tíma er mjög erfitt þegar ekki er vitað lengra fram í tímann. Öll verk- efni sem tengjast vistvænum bíl- um eru í raun á ís þegar ekki er vit- að hvernig framtíðin liggur fyrir,“ segir hann. Framleiðendur vilja vita meira Ef við lítum aftur til Noregs má sjá að verkefnið um rafbílavæðing- una var miðað við fjórtán ár. Árið 2001 var litið til þess árangurs sem myndi nást árið 2015 og nú er sá árangur vel sýnilegur. Eðli málsins samkvæmt gerir lengri tíma stefna verkefni á borð við þetta mun auð- veldara í framkvæmd. „Bílafram- leiðendur hugsa aldrei bara 12 mánuði fram í tímann heldur verða þeir að hugsa um fjögur ár fram í tímann. Til þess að fá verkefni á borð við það sem Nissan kom með inn í landið þá var það vitað eitt og hálft ár fram í tímann,“ segir Jón Björn og vísar þar til hraðhleðslu- stöðva sem komið var fyrir víða. Það er því ekki bara spurning um hvort umboðin ráði við að selja bíl- ana sem fluttir eru inn heldur er stóra spurningin alltaf hvort fram- leiðandinn úti í hinum stóra heimi hafi áhuga á að gera áætlanir og koma með bíla til landa þar sem brugðið getur til beggja vona. „Þeir hafa nefnilega verið til í að taka þátt í kostnaði og markaðssetn- ingu. Rétt eins og Nissan sem legg- ur til hraðhleðslustaurana og fjár- muni í verkefnið. Það er mjög mikilvægt fyrir Ísland að fá slík verkefni inn á jafnódýran máta því bílaframleiðendur sjá það alveg fyrir sér að Ísland geti orðið eins konar paradís vistvænna bíla,“ segir hann. Áhugi bílaframleiðenda er til staðar en þeir þurfa að vita hversu langt fram í tímann hægt er að gera áætlanir. Mótun skynsamlegrar stefnu Rétt eins og hin norska Schyltz benti á þá kallar þetta allt á sam- vinnu og segir Jón Björn að sam- vinna við ríkisstjórnina geti orðið heillavænleg. „Það er alveg lag fyrir þessa ríkisstjórn að gera þetta til lengri tíma og fylgja því þannig eft- ir sem segir í stjórnarsáttmál- anum. Það sem við værum til í að gera með ríkisstjórn Íslands er að móta skynsamlega stefnu. Við er- um alveg á því sjálf að þetta sé ekki ívilnun sem eigi að vara endalaust og einhvern tíma þurfa vistvænir bílar að borga til samfélagsins eins og aðrir bílar,“ segir Jón Björn og nefnir sem dæmi að ef tryggt væri að undanþága gilti til ársins 2017 væri hægt að sækja um þátttöku í ýmiss konar verkefnum. „Ef stjórn- völd eru svona jákvæð í garð vist- vænna samgangna er þetta stór- kostlegt tækifæri núna sem við ættum að nýta okkur,“ segir fram- kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku og verkefnastjóri Grænu orkunnar, Jón Björn Þráinsson. malin@mbl.is Hlutverk stjórnvalda í rafbílavæðingu afar mikilvægt Framtíð vistvænna bíla ráðin? Ragnheiður Elín Árnadóttir Jón Björn Skúlason Um 40.000 vistvænir bílar eru í Noregi. Á myndinni má sjá akrein fyrir strætisvagna og vistvæna bíla. AFP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.