Morgunblaðið - 23.09.2014, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2014
BÍLAR
Reynsluakstur BMW X4 er nýr bíll á markaði.
Hann prýða kostir á borð við aðdáunarvert
grip og góða hljóðeinangrun. Að auki
stenst hann vel samanburð við
aðra bíla í sama flokki. »4
MAX er mættur!
Öflugir radarvarar frá ESCORT
Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is
S
amgönguviku lauk í gær
með bíllausum degi, þar
sem fólk var hvatt til að
nýta sér aðra samgöngu-
máta en einkabílinn og um leið
hugleiða hvernig hlúa mætti betur
að umhverfinu. Einn af viðburðum
vikunnar var ráðstefna Grænu ork-
unnar sem haldin var á Grand Hot-
el sl. miðvikudag. Yfirskrift ráð-
stefnunnar var Vistvænar
samgöngur – vegur eða vegleysa?
Fyrirlesarar voru margir, bæði
innlendir og erlendir, og er óhætt
að segja að á heildina litið hafi ráð-
stefnan verið einkar fræðandi.
Greina mátti að mikil samstaða er
á meðal þeirra sem koma að
rekstri og innflutningi á vistvænum
farartækjum, hvort heldur um er
að ræða bíla knúna raforku eða
öðrum vistvænum orkugjöfum.
Einn af áhugaverðari fyrirlestr-
um þessa dags var Electromobility
in Akershus: Achievementa and
policy towards the future, fluttur af
hinni norsku Solveigu Schytz, for-
manni skipulags-, umhverfis- og
viðskiptaþróunarnefndar Akers-
hus County.
Hún fjallaði um hvernig stjórn-
völd í Noregi hefðu frá árinu 2001
unnið markvisst að fjölgun rafbíla í
umferðinni. Það var ekki einungis
gert með því að fella niður virðis-
aukaskatt af rafbílum og með íviln-
unum við innflutning á öðrum vist-
vænum bílum, þó svo að það sé
grundvallaratriði. Í Noregi eru tæp-
lega 40.000 rafbílar og er áætlað
að í apríl á næsta ári verði þeir
orðnir 50.000.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Schytz að hinn stórgóði árangur
sem náðst hefur í Noregi sé ekki
síst stjórnvöldum að þakka. „Öðru-
vísi hefði þetta ekki verið hægt. Frá
fyrsta degi var það markmið ríkis-
stjórnarinnar að fjölga vistvænum
bílum og var markið sett á að í apríl
2015 væri fjöldinn kominn upp í
50.000 bíla,“ segir Schyltz. Eig-
endur vistvænna bíla í Noregi geta
lagt án endurgjalds í gjaldskyld
stæði, þurfa ekki að greiða vega-
tolla, geta hlaðið bíla sína endur-
gjaldslaust víða og svo mætti lengi
telja. Þegar markinu er náð í fjölda
rafbíla mun þetta eflaust breytast
smám saman eitt af öðru. Þessar
ívilnanir voru gerðar til að rafbíla-
væða Noreg upp að vissu marki og
þó að ekki sé kominn apríl má
samt segja að það hafi tekist.
Markmið til lengri tíma
Schyltz er sannfærð um að hið
sama megi gera hér á landi. „Ísland
hefur alla burði til að vera öðrum
fyrirmynd í notkun á vistvænum
bílum. Það ætti að vera hægur leik-
ur að rafbílavæða Ísland en til þess
þarf fullan stuðning stjórnvalda því
þetta er nokkurra ára verkefni sem
krefst þess að ívilnanir séu ein-
hverjar. Ég veit að hér á landi hefur
verið erfitt að ákvarða framhaldið
hvað vistvæna bíla varðar þar sem
undanþága frá lögum um virðis-
aukaskatt fellur niður nú um ára-
mótin,“ segir hún. Fleiri hafa haft af
því áhyggjur að verð á rafbílum og
öðrum vistvænum kostum rjúki
upp um áramótin og margir lýst því
yfir að rafbílavæðingin myndi líða
undir lok því verðhækkunin yrði of
mikil.
Núverandi ríkisstjórn Íslands hef-
ur frá upphafi lýst áhuga á að efla
vistvænar samgöngur, meðal ann-
ars í stjórnarsáttmálanum. Í sam-
tali við Morgunblaðið sagði Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, að útlitið væri
síður en svo svart hvað þessi mál
varðaði. „Ákvörðun hefur verið tek-
in og ívilnanirnar verða fram-
lengdar,“ sagði Ragnheiður Elín. Ef-
laust eiga margir eftir að fagna
þessari ákvörðun ef marka má
þann mikla samhljóm sem er á
meðal meðlima Grænu orkunnar.
Jón Björn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku og
verkefnastjóri Grænu orkunnar, er
einn þeirra sem fagna því að und-
anþágan verði framlengd frá og
með næstu áramótum. Hann segir
að síðustu mánuðir hafi einkennst
af óvissu um framtíð vistvænna
bíla hér á landi. „Að stofna til verk-
efna sem yfirleitt ná yfir mjög lang-
an tíma er mjög erfitt þegar ekki er
vitað lengra fram í tímann. Öll verk-
efni sem tengjast vistvænum bíl-
um eru í raun á ís þegar ekki er vit-
að hvernig framtíðin liggur fyrir,“
segir hann.
Framleiðendur vilja vita meira
Ef við lítum aftur til Noregs má
sjá að verkefnið um rafbílavæðing-
una var miðað við fjórtán ár. Árið
2001 var litið til þess árangurs sem
myndi nást árið 2015 og nú er sá
árangur vel sýnilegur. Eðli málsins
samkvæmt gerir lengri tíma stefna
verkefni á borð við þetta mun auð-
veldara í framkvæmd. „Bílafram-
leiðendur hugsa aldrei bara 12
mánuði fram í tímann heldur verða
þeir að hugsa um fjögur ár fram í
tímann. Til þess að fá verkefni á
borð við það sem Nissan kom með
inn í landið þá var það vitað eitt og
hálft ár fram í tímann,“ segir Jón
Björn og vísar þar til hraðhleðslu-
stöðva sem komið var fyrir víða.
Það er því ekki bara spurning um
hvort umboðin ráði við að selja bíl-
ana sem fluttir eru inn heldur er
stóra spurningin alltaf hvort fram-
leiðandinn úti í hinum stóra heimi
hafi áhuga á að gera áætlanir og
koma með bíla til landa þar sem
brugðið getur til beggja vona. „Þeir
hafa nefnilega verið til í að taka
þátt í kostnaði og markaðssetn-
ingu. Rétt eins og Nissan sem legg-
ur til hraðhleðslustaurana og fjár-
muni í verkefnið. Það er mjög
mikilvægt fyrir Ísland að fá slík
verkefni inn á jafnódýran máta því
bílaframleiðendur sjá það alveg
fyrir sér að Ísland geti orðið eins
konar paradís vistvænna bíla,“
segir hann. Áhugi bílaframleiðenda
er til staðar en þeir þurfa að vita
hversu langt fram í tímann hægt er
að gera áætlanir.
Mótun skynsamlegrar stefnu
Rétt eins og hin norska Schyltz
benti á þá kallar þetta allt á sam-
vinnu og segir Jón Björn að sam-
vinna við ríkisstjórnina geti orðið
heillavænleg. „Það er alveg lag fyrir
þessa ríkisstjórn að gera þetta til
lengri tíma og fylgja því þannig eft-
ir sem segir í stjórnarsáttmál-
anum. Það sem við værum til í að
gera með ríkisstjórn Íslands er að
móta skynsamlega stefnu. Við er-
um alveg á því sjálf að þetta sé ekki
ívilnun sem eigi að vara endalaust
og einhvern tíma þurfa vistvænir
bílar að borga til samfélagsins eins
og aðrir bílar,“ segir Jón Björn og
nefnir sem dæmi að ef tryggt væri
að undanþága gilti til ársins 2017
væri hægt að sækja um þátttöku í
ýmiss konar verkefnum. „Ef stjórn-
völd eru svona jákvæð í garð vist-
vænna samgangna er þetta stór-
kostlegt tækifæri núna sem við
ættum að nýta okkur,“ segir fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku og
verkefnastjóri Grænu orkunnar,
Jón Björn Þráinsson.
malin@mbl.is
Hlutverk stjórnvalda í rafbílavæðingu afar mikilvægt
Framtíð vistvænna bíla ráðin?
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Jón Björn
Skúlason
Um 40.000 vistvænir bílar eru í Noregi. Á myndinni má sjá akrein fyrir strætisvagna og vistvæna bíla.
AFP