Morgunblaðið - 23.09.2014, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2014
BÍLAR 7
Guðfinnur
bíl fyrir þig!
Bjóðum 100% lán
í allt að 84 mánuði
Þ
að er stundum góð skemmtun að
skoða myndasöfn af bílum og öðr-
um farartækjum á Fésbókinni, en
urmull er til af slíku efni hérlendis
sem erlendis. Undirritaðan rak þó í roga-
stans á dögunum þegar hann sá mynd af vél-
sleða nokkrum á Véla- og tækjasafni Vopna-
fjarðar af öllum stöðum. Það sem var
merkilegt við þessa uppgötvun að hans mati
var að stuttu áður hafði hann rekist á sams
konar sleða á stóru mótorhjólasafni í Banda-
ríkjunum. Þar skipaði hann sérstakan heið-
urssess fyrir það fyrsta að vera með Indian-
mótorhjólamótor, eins og reyndar flest
þeirra mótorhjóla sem saman voru komin á
þessu safni, og einnig fyrir þá staðreynd að
vera einn af innan við 50 sem enn eru til í
heiminum í dag.
Komu tveir til landsins
Vélsleðinn heitir Eliason Motor Toboggan
Model D og er af 1942-árgerð. Hann er einn
af um það bil þrjú hundruð eintökum sem
smíðuð voru á árum seinni heimsstyrjald-
arinnar. Tveir slíkir vélsleðar komu til lands-
ins veturinn 1945-6 og fóru sama ár á Vatna-
jökul til starfa fyrir Rannsóknarráð ríkisins.
Nafnið Toboggan er tekið úr indíánamáli og
merkir flatbotna, sem er meiðalaus sleði,
sveigður upp að framanverðu. Sleðinn
reyndist vel á hörðum snjó eins og oft er á
jöklum en síður þar sem snjór var blautur.
Einnig kom lengd hans sér vel á sprungu-
svæðum. Sleðinn kemur til Vopnafjarðar frá
vélsleðasafninu á Mývatni. Upphaflega
fannst hann úti á túni í Mosfellsbæ, frekar illa
á sig kominn, en fyrir framtak Birkis Fanndal
Haraldssonar komst hann í góðar hendur.
Grind og yfirbygging var endurbyggð í Kröflu
en Indian V45-síðuventlavélina gerði Valur
Sigurjónsson upp. Eins og í mótorhjólunum
var þriggja gíra kassi og var hámarkshraðinn
55 km á klst.
Mesta safn vélsleða á landinu
Eins og fram hefur komið er Toboggan-
vélsleðinn geymdur hjá Véla- og tækjasafn-
inu á Vopnafirði. Það var sett á laggirnar
2014 og er tilgangur safnsins að sýna, varð-
veita og skrá sögu gamalla véla og tækja. Á
safninu er að finna marga elstu vélsleða
landsins, traktora, mótorhjól, bátavélar, bíla
og einnig er safnið með ýmsa atburði og sýn-
ingar í gangi. Gripirnir eru flestir í einkaeigu,
en safnið er opið á sumrin til 1. september.
njall@mbl.is
Af spjöldum sögunnar | Eliason Motor Toboggan vélsleðinn
Fágætur safngripur á útkjálka Íslands
Samskonar vélsleði er á Motorcyclepedia-safninu í New-
burgh sem geymir stærsta safn Indian-mótorhjóla í heim-
inum en Toboggan-sleðinn er einmitt með Indian-mótor.
Morgunblaðið/Steinþór S.
Varðveist hafa tvær myndir af vélsleðanum og sýnir önnur þeirra hann í notkun uppi á Kverkjöllum.
Hin myndin sýnir Stefán Gunnarsson vélstjóra við Toboggan-vélsleðann.
Eliason Toboggan-vélsleðinn
er nú í góðri geymslu hjá Véla-
og tækjasafninu á Vopnafirði
og bíður þess nú að verða
gangsettur í fyrsta skipti.
Peugeot ætlar að mæta til leiks á
bílasýningunni í París eftir 10
daga með nýjan smájeppa í formi
hugmyndabíls. Hann hefur fengið
nafnið Quartz og er hönnunin ein-
staklega hnitmiðuð og grípandi.
Sjálfur segir bílsmiðurinn
franski, að Quartz opni nýjar
víddir í smíði smájeppa en hann
verður með tvíorkuaflrás.
Eins og þar segir er innanrým-
inu ætlað að vera nokkurs konar
sýningarbás fyrir nýstárleg bygg-
ingarefni fyrir bíla, eins og basalt,
en svo vill til, að það er helsta
bergtegundin á Íslandi. Tilgang-
inn með þessari grjótvæðingu út-
skýrir Peugeot ekki frekar að
sinni.
Í innanrými hugmyndabíls Peu-
geot verður einnig textílefni með
ívöfnum gerviefnaþræði sem
unninn er úr endurunnum plast-
flöskum.
Til að draga betur fram hið
sportlega viðmót bílsins er svart
leður fellt inn í innréttinguna.
Svonefnd i-Cockpit-hönnun, sem
þegar sést í núverandi bílum Peu-
geot, sér svo fyrir því að öll
stjórntæki ökumanns eru nánast
við fingurgóma hans. Leður-
klædd körfusæti eru í Quartz til
að nýta innanrýmið sem skilvirk-
ast.
Quartz verður tengiltvinnbíll en
auk tveggja rafmótara – síns á
hvorum öxlinum – verður í aflrás-
inni 1,6 lítra THP 270 bensínvél
sem sportbíladeild Peugeot hefur
hannað. Heildarafköst drifrás-
arinnar verða 483 hestöfl en við
hana verður tengd sex hraða
sjálfskipting.
Að framan verður MacPherson-
fjöðrun en fjölarma fjöðrun að
aftan.
Hægt verður að velja um
þrenns konar akstursham. Í
fyrsta lagi ZEV-ham sem býður
upp á 50 km akstur á einfaldri
rafhleðslu. Í öðru lagi Road-ham
sem styðst við vélina og rafmót-
orinn að framan. Og í þriðja lagi
Race-ham þar sem afl er tekið út
úr vélinni og rafmótorunum báð-
um með tregðutengdu mis-
munadrifi.
agas@mbl.is
Peugeot með nýjan smájeppa
Ferðalangar sitja allir í körfusæt-
um til að nýta plássið í Peugeot
Quartz betur.
Hugmyndabíllinn Peugeot Quatz. Spurningin er hvort
hann eigi eftir að fara í framleiðslu og þá hvenær.
ökumanna á vegunum en komu
við sögu í 23% banaslysa í um-
ferðinni. „Þeir hugsa rétt með
því að játa á sig hættulegt
framferði. Þeir gera sér grein
fyrir því að bílstjórum getur
gramist það, ekki síst í umferð-
arteppum.“
Meira en helmingur gekkst
við því að aka langt yfir há-
markshraða í bæjum og borgum
og drjúgur hluti þeirra játaði að
hafa ekið langt umfram há-
markshraða á hraðbrautum. Þá
játtu 13% mótorhjólamanna og
21% ökumanna skellinaðra því
Tveimur þriðju allra ökumanna
mótorhjóla og skellinaðra finnst
þeir vera berskjaldaðri á vegum
úti nú en fyrir áratug. Helm-
ingur þessara hjólamanna játar
einnig að þeir séu sjálfir hættu-
legustu notendur veganna.
Þetta eru niðurstöður rann-
sóknar í Frakklandi sem könn-
unarfyrirtækið TNS Sofres
gerði fyrir tryggingafélagið
AXA. Forstjóri þess segir knapa
mótorfákanna sýna raunsæi
þegar hættur í umferðinni eru
annars vegar.
Árið 2013 voru þeir 2,5%
að hafa ekið undir áhrifum
áfengis og ögn færri eftir að
hafa reykt kannabis.
agas@mbl.is
Misjafn sauður er í mörgu fé. Það á
líka við um ökumenn mótorhjóla
Knapar viðurkenna áhættureiðar