Morgunblaðið - 23.09.2014, Side 8

Morgunblaðið - 23.09.2014, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2014 8 BÍLAR Bílar TIL SÖLU TOYOTA PRIUS, PLUG IN Rafmagns og hybrid bíll, árg. 2012. Mjög vel með farið eintak. Verð tilboð. Upplýsingar í síma 863-7656. 2010 JEEP WRANGLER Unlimited Rubicon Diesel. Sjálfskiptur. Ekinn aðeins 61 þús. km. Nýr bíll kostar 10,8 milljónir. En þessi er á 6,9 milljónir. Þeir eru geysivinsælir, svo ekki hika. www.sparibill.is Fiskislóð 16 – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Smáauglýsingar O pel, hið fornfræga þýska merki með alla sína hönnunarsögu, hefur heldur legið í láginni hér- lendis undanfarin misseri og lítið borið á bílum þaðan um allnokkurt skeið. Seigfljótandi tilfærsla á um- boðinu frá BL til Bílabúðar Benna hefur ekki hjálpað til og þegar hér er komið sögu þarf nánast að skóla bílaáhugamenn og -kaupendur til upp á nýtt í bílnum frá þessum framleiðanda. Það sem ekki sést dettur fólki ekki í hug þegar kemur að því að kaupa sér nýjan bíl. Nú hillir loks undir endurkomu Opel á Íslandsmarkaði og er það vel því margar spennandi tegundir eru væntanlegar á göturnar. Undirrit- uðum gafst nýverið færi á að prófa nokkra af nýjustu bílum Opel og sá sem hér blasir við var þar á meðal, hinn skemmtilegi borgarbíll, Opel Adam. Hann er ágætis byrjun. Ekta borgarbíll Adam fellur lóðbeint í flokk svo- kallaðra borgarbíla, sem eru smáir, liprir, neyslugrannir en vel búnir bílar sem eru einkar lífsstílsdrifnir og gera því eigendum sínum kleift að sérsníða þá að sínum óskum á ýmsa lund. Að sögn er nánast hægt að búa til nýjar samsetningar af Opel Adam út í það óendanlega en sérfræðingar Opel viðurkenndu að líklega væru samsetningarnar ekki nema um milljón. Þar með er eitt frumskilyrða vel heppnaðra bíla í A-flokki uppfyllt; að þeir séu sérlausnamiðaðir svo við liggur bil- un. Bíll hvers og eins verður eig- inlega framlenging á persónuleika eigandans, eins sértækt og fingra- far hans, því í steinsteypu- frumskóginum gildir að skapa sér sérstöðu og hasla sér völl með stíl. Tími lágstemmdra og feiminna smábíla er liðinn og það rækilega. Adam er líka bráðlaglegur á að líta og það er eiginlega stóra málið, áð- ur en kemur að praktískum atrið- um. Hann er einfaldlega hinn reffi- legasti, það er ákveðið „attitude“ í því að bjóða hann einungis þriggja dyra og framendinn er mjög vel heppnaður. Léttur, lipur, ljúfur En ekki verður hjá því komist að taka praktíkina út sömuleiðis og þar heldur Adam áfram að vinna sér inn stig. Innandyra kemur Adam eiginlega á óvart því mæla- borðið er býsna veglegt á að líta, og samlitt ytra byrði bílsins. Sá sem var prófaður var blár sem þýddi að innanstokks rímaði allt við aðallit- inn. Það er hinsvegar smekklega gert um leið og þess gætt að bíllinn sé nógu gæjalegur til að trekkja markhópinn til. Aðgerðaskjár af fínni stærð og tengi fyrir snjallsím- ann spillir ekki fyrir heldur. Sætin voru prýðileg og tilfinningin í heild- ina góð. Öll umgjörð ökumanns og farþega í framsæti er til fyr- irmyndar og fótarýmið ríflegt. Tveir farþegar komast með fínu mótir fyrir í aftursætinu, en þrír munu eiga í vandræðum með það. Borgarbílar í A-flokki eru heldur ekkert að eltast við það heldur gera sér far um að láta vel fara um fjóra alls ásamt góðu farang- ursrými, og það er til staðar í Adam. Þó að bíllinn sé ekki beint kraft- mikill þá er í honum snerpa sem vakti lukku hjá undirrituðum og Adam er skemmtilegur í borg- arakstri. Stýrið svarar vel og hann tekur u-beygju á tíkalli, eins og þar stendur. Öryggið og útblásturinn Helst má telja Opel Adam það til lasts að jafn nettur bíll skuli ekki ná í tveggja stafa tölu þegar kemur að koltvísýringsútblæstri. Týpan sem prófuð var, Adam Slam (hinar heita meðal annars Jam og Glam), blæs út 115 g á kílómetrann og svoleiðis vaxtaverki verður Opel að laga fyrir næsta umgang af þessum annars fína bíl því þetta skiptir sífellt fleiri neytendur máli. Þá hefur það vakið nokkra athygli að Adam hlaut að- eins fjórar stjörnur í Euro NCAP- prófinu en fimm stjörnur eru al- mennt venja fyrir nýja bíla nú til dags. Þegar allt er sett upp á strik er Opel Adam huggulegasti bíll sem mun pluma sig vel í borgarsnatt- inu. Framleiðendur Opel hafa dott- ið niður á laglega hönnun sem má byggja á og geri þeir það ásamt því að bæta það sem upp á vantar í ör- yggi og útblæstri þá er hér kominn bíll sem mun láta enn frekar að sér kveða í sínum stærðarflokki ásamt leiðtoganum Mini og Fiat 500. jonagnar@mbl.is Jón Agnar Ólason reynsluekur Opel Adam Slam Plássið er ríflegt fyrir ökumann og farþega í framsætum en aftur á móti er það af skornum skammti aftur í. Börnin rúmast þar aftur á móti vel. Allt innra byrðið er þrungið lífstílstengdum smáatriðum og útlitið er töff. Adam er hinn rennilegasti að sjá og sómir sér prýði- lega á götum stórborg- anna – og Reykjavíkur. Opel Adam Árgerð 2014 • 18 tommaálfelgur • Eiginþyngdkg: 1.122 • Farangursrými: 170 lítrar • 0-100km/sek: 14,9 sek. • Hámark: 165km/klst • Framhjóladrif •Verð frá: 2.990.000kr. • 5,0L/100km íbl.akstri • Umboð:BílabúðBenna •Mengunargildi: 118 gCO2/km • 1,4 lítrabensínvél • 70hestöfl/115Nm. • 5gírabeinskipting Aðstaða ökumanns og allt viðmót mæla- borðsins er bæði flott og þægilegt í notkun. Opel Adam fæst í mörgum grípandi litum, eins og venja er orðin með borgarbíla í A-flokki. Hvern bíl má svo sérlaga að óskum eigandans á nánast óteljandi vegu. Smár og knár borgarbíll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.