Morgunblaðið - 23.09.2014, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2014
8 BÍLAR
Bílar
TIL SÖLU TOYOTA PRIUS, PLUG IN
Rafmagns og hybrid bíll, árg. 2012.
Mjög vel með farið eintak.
Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863-7656.
2010 JEEP WRANGLER
Unlimited Rubicon Diesel. Sjálfskiptur.
Ekinn aðeins 61 þús. km. Nýr bíll kostar 10,8
milljónir. En þessi er á 6,9 milljónir. Þeir eru
geysivinsælir, svo ekki hika.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Smáauglýsingar
O
pel, hið fornfræga þýska
merki með alla sína
hönnunarsögu, hefur
heldur legið í láginni hér-
lendis undanfarin misseri og lítið
borið á bílum þaðan um allnokkurt
skeið. Seigfljótandi tilfærsla á um-
boðinu frá BL til Bílabúðar Benna
hefur ekki hjálpað til og þegar hér
er komið sögu þarf nánast að skóla
bílaáhugamenn og -kaupendur til
upp á nýtt í bílnum frá þessum
framleiðanda. Það sem ekki sést
dettur fólki ekki í hug þegar kemur
að því að kaupa sér nýjan bíl. Nú
hillir loks undir endurkomu Opel á
Íslandsmarkaði og er það vel því
margar spennandi tegundir eru
væntanlegar á göturnar. Undirrit-
uðum gafst nýverið færi á að prófa
nokkra af nýjustu bílum Opel og sá
sem hér blasir við var þar á meðal,
hinn skemmtilegi borgarbíll, Opel
Adam. Hann er ágætis byrjun.
Ekta borgarbíll
Adam fellur lóðbeint í flokk svo-
kallaðra borgarbíla, sem eru smáir,
liprir, neyslugrannir en vel búnir
bílar sem eru einkar lífsstílsdrifnir
og gera því eigendum sínum kleift
að sérsníða þá að sínum óskum á
ýmsa lund. Að sögn er nánast
hægt að búa til nýjar samsetningar
af Opel Adam út í það óendanlega
en sérfræðingar Opel viðurkenndu
að líklega væru samsetningarnar
ekki nema um milljón. Þar með er
eitt frumskilyrða vel heppnaðra
bíla í A-flokki uppfyllt; að þeir séu
sérlausnamiðaðir svo við liggur bil-
un. Bíll hvers og eins verður eig-
inlega framlenging á persónuleika
eigandans, eins sértækt og fingra-
far hans, því í steinsteypu-
frumskóginum gildir að skapa sér
sérstöðu og hasla sér völl með stíl.
Tími lágstemmdra og feiminna
smábíla er liðinn og það rækilega.
Adam er líka bráðlaglegur á að líta
og það er eiginlega stóra málið, áð-
ur en kemur að praktískum atrið-
um. Hann er einfaldlega hinn reffi-
legasti, það er ákveðið „attitude“ í
því að bjóða hann einungis þriggja
dyra og framendinn er mjög vel
heppnaður.
Léttur, lipur, ljúfur
En ekki verður hjá því komist að
taka praktíkina út sömuleiðis og
þar heldur Adam áfram að vinna
sér inn stig. Innandyra kemur
Adam eiginlega á óvart því mæla-
borðið er býsna veglegt á að líta, og
samlitt ytra byrði bílsins. Sá sem
var prófaður var blár sem þýddi að
innanstokks rímaði allt við aðallit-
inn. Það er hinsvegar smekklega
gert um leið og þess gætt að bíllinn
sé nógu gæjalegur til að trekkja
markhópinn til. Aðgerðaskjár af
fínni stærð og tengi fyrir snjallsím-
ann spillir ekki fyrir heldur. Sætin
voru prýðileg og tilfinningin í heild-
ina góð. Öll umgjörð ökumanns og
farþega í framsæti er til fyr-
irmyndar og fótarýmið ríflegt.
Tveir farþegar komast með fínu
mótir fyrir í aftursætinu, en þrír
munu eiga í vandræðum með það.
Borgarbílar í A-flokki eru heldur
ekkert að eltast við það heldur
gera sér far um að láta vel fara um
fjóra alls ásamt góðu farang-
ursrými, og það er til staðar í
Adam.
Þó að bíllinn sé ekki beint kraft-
mikill þá er í honum snerpa sem
vakti lukku hjá undirrituðum og
Adam er skemmtilegur í borg-
arakstri. Stýrið svarar vel og hann
tekur u-beygju á tíkalli, eins og þar
stendur.
Öryggið og útblásturinn
Helst má telja Opel Adam það til
lasts að jafn nettur bíll skuli ekki ná
í tveggja stafa tölu þegar kemur að
koltvísýringsútblæstri. Týpan sem
prófuð var, Adam Slam (hinar heita
meðal annars Jam og Glam), blæs
út 115 g á kílómetrann og svoleiðis
vaxtaverki verður Opel að laga fyrir
næsta umgang af þessum annars
fína bíl því þetta skiptir sífellt fleiri
neytendur máli. Þá hefur það vakið
nokkra athygli að Adam hlaut að-
eins fjórar stjörnur í Euro NCAP-
prófinu en fimm stjörnur eru al-
mennt venja fyrir nýja bíla nú til
dags.
Þegar allt er sett upp á strik er
Opel Adam huggulegasti bíll sem
mun pluma sig vel í borgarsnatt-
inu. Framleiðendur Opel hafa dott-
ið niður á laglega hönnun sem má
byggja á og geri þeir það ásamt því
að bæta það sem upp á vantar í ör-
yggi og útblæstri þá er hér kominn
bíll sem mun láta enn frekar að sér
kveða í sínum stærðarflokki ásamt
leiðtoganum Mini og Fiat 500.
jonagnar@mbl.is
Jón Agnar Ólason reynsluekur Opel Adam Slam
Plássið er ríflegt fyrir ökumann og farþega í framsætum en aftur á móti
er það af skornum skammti aftur í. Börnin rúmast þar aftur á móti vel.
Allt innra byrðið er þrungið lífstílstengdum smáatriðum og útlitið er töff.
Adam er hinn rennilegasti
að sjá og sómir sér prýði-
lega á götum stórborg-
anna – og Reykjavíkur.
Opel Adam Árgerð 2014
• 18 tommaálfelgur
• Eiginþyngdkg: 1.122
• Farangursrými: 170 lítrar
• 0-100km/sek: 14,9 sek.
• Hámark: 165km/klst
• Framhjóladrif
•Verð frá: 2.990.000kr.
• 5,0L/100km íbl.akstri
• Umboð:BílabúðBenna
•Mengunargildi:
118 gCO2/km
• 1,4 lítrabensínvél
• 70hestöfl/115Nm.
• 5gírabeinskipting
Aðstaða ökumanns og allt viðmót mæla-
borðsins er bæði flott og þægilegt í notkun.
Opel Adam fæst í mörgum grípandi litum, eins og venja
er orðin með borgarbíla í A-flokki. Hvern bíl má svo
sérlaga að óskum eigandans á nánast óteljandi vegu.
Smár og knár borgarbíll