Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.09.2014, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.9. 2014
HEIMURINN
RRASÍE
efur verið
jþrSíerra Leóne n
gðisstarfsmönnum
hafa ekki þorað a
g þvita að þeir séu
0sýkrug
r h
ÍRAN
TEHERAN Sex Íranar, þrír
karlar og þrjár konur, sem
komu fra myndskeiði fyrir
álfu uðu þar við
ag l W ams, Happy,
ir í allt að árs
húðstrýktir 91
u faraómsinssinni. Fullnustu d
, aðþekki í fangelsi nem
koðaðj ósögn ver anda f
ið Yomy iðdske
BRASIL
verður um 160 km fr
notaður til að safna g
og veðurfar í stærsta
Svipaður turn var re
FRAKKL
engjuþoturFranskar orrustu og sp-
yrstu árrðinni Rafale hafa gert sína
ns ISgar ví amanna Íslamska rá
ak, að sögn talsmanna FrancoisrÍ
rakklandsforseta. Ekki yrðu þó se
tvang til að berjast á jörðu nið
hluta Íraks. Bandaríkjamyfir tugum b
g r IS en hafa eins og F170
h til að berjast ge
Stjórn kommúnista í Kína ótt-
ast fátt meira en öflugar
hreyfingar sem almenningur
sækir í. Vaxi þeim ásmegin
gæti alræði flokksins verið
ógnað.
Nú er talið að tugmilljónir
manna séu kristnar í landinu,
meirihluti þeirra á laun. En
það sem af er þessu ári hafa
yfirvöld hert mjög tökin. Byrj-
að var að rífa fjölda
kirkna í Zhejiang-
héraði, skammt frá
Shanghai, þrátt fyr-
ir mótmæli safn-
aðarins. Og ný
kirkja með um
60 metra háum
turni í borg-
inni Sanjiang
var jöfnuð
við jörðu.
Á
Vesturlöndum snúast
deilur um kristindóm
nú aðallega um rétt-
indi kvenna og sam-
kynhneigðra eða ým-
is trúartákn á opinberum vettvangi,
samskipti ríkisvalds og kirkju.
Stundum kemur til málaferla sem
vekja mikla athygli en eiga lítið
skylt við baráttuna um trúfrelsi ut-
an heims auðugu þjóðanna. Baráttu
upp á líf og dauða.
Mikill meirihluti þeirra 2.300
milljóna manna sem nú tilheyra
kristnum söfnuðum í heiminum er
fátæklingar og býr í einræð-
islöndum og/eða á átakasvæðum.
Þeir ná sjaldan eyrum alþjóðlegra
fjölmiðla, sumir þeirra fórna þó líf-
inu fyrir trú sína. Eru píslarvottar.
Kristnir sæta nú meiri og hrika-
legri ofsóknum en þekkst hefur öld-
um saman í Mið-Austurlöndum, þar
sem kristindómurinn steig sín
fyrstu spor. Og í Kína þar sem
hann hefur nú tugmilljónir fylgj-
enda er í gangi mesta herferð gegn
kristnum í áratugi. Í Norður-Kóreu
er talið að um fjórðungur af 200-
400 þúsund kristnum íbúum sé í
þrælkunarbúðum.
En einnig hefur verið ráðist á
kirkjur í Pakistan, Indlandi og
Búrma og tugir manna látið lífið í
ofsóknum sem múslímar, hindúar
og búddistar, ofstækismenn sem
hunsa grundvallarreglur trúar sinn-
ar, hafa staðið fyrir. Í Nígeríu og
Mið-Afríkulýðveldinu hafa glæpa-
flokkar sem hampa fána íslams orð-
ið þúsundum manna að bana, að-
allega kristnum.
Erfitt er að festa hönd á áreið-
anlegum tölum en líklegt er að eng-
inn trúflokkur sæti nú jafn hrotta-
legum hótunum og ofsóknum í
heiminum og kristnir en hafa ber
þó í huga að þeir eru fjölmennastir
allra trúflokka. Verst er staðan í
Mið-Austurlöndum, eins og fram
kemur í grein Johns L. Allens í rit-
inu Spectator. Þar voru 20% allra
íbúa kristnir fyrir einni öld, nú er
hlutfallið talið vera um 4% og fer
hratt lækkandi. Sums staðar hafa
ráðamenn látið duga að þrengja
stöðugt að kristnum söfnuðum, í
Tyrklandi fá þeir ekki að halda
kirkjum sínum við.
Annars staðar ganga ofstæk-
ismenn og hryðju-
verkasamtök
lengra þar sem
þeir ná völdum
eins og í hluta Sýr-
lands og Íraks. Þar fá
kristnir, með rætur á svæðinu í
nær tvö þúsund ár, að velja milli
þess að skipta um trú eða flýja með
litlum fyrirvara. Ella verði þeir
drepnir. Eigur þeirra hrifsa glæpa-
mennirnir að sjálfsögðu til sín.
Hryllilegt framferði IS-
hryðjuverkasamtakanna hefur á síð-
ustu vikum vakið athygli umheims-
ins á hlutskipti kristinna og ann-
arra minnihlutahópa.
Mannréttindabrotin eiga sé fáar
hliðstæður í nútímanum. En John
L. Allen segir að eitt af því sem
valdi því að örlögum kristinna utan
Vesturlanda sé lítið sinnt sé stað-
alhugmyndir margra vestrænna
manna um kristna sem kúgi aðra.
Einblínt sé á krossferðir miðalda og
spænska Rannsóknarréttinn.
Óttast áróður íslamista
Vestræn ríki og margar al-
þjóðastofnanir, jafnvel Amnesty
Internationl og Mannréttindavaktin,
hafa lítið fjallað um árásirnar á
kristna. Danskur prófessor í stjórn-
málafræði, Ole Wæver, bendir á
eina ástæðu fyrir áhugaleysinu. Um
sé að ræða „vanheilagt bandalag“
ólíkra hagsmuna. „Annars vegar
eru alþjóðleg samtök og vinstri-
flokkar hrædd við að ýta undir hat-
ur á íslam á Vesturlöndum, hins
vegar eru vestrænar þjóðir, sem
eiga aðild að stríðum í Afganistan
og Írak, ekki áfjáðar í að minna á
kristna trú sína vegna þess að ísl-
amistar reyna að gera þessi stríð að
trúarbragðastyrjöldum þar sem hin
kristnu Vesturlönd séu í krossferð
gegn múslímum.“
Ekki ætti að vera svo erfitt að
benda á vandamálin án þess að
birtast sem sérstakur verjandi
kristinna hagsmuna. Um sé að
ræða trúfrelsi og vernd minni-
hlutahópa. Óneitanlega er það kald-
hæðnislegt ef meint tillitssemi við
íslam og sektarkennd vegna brota
krossferðariddara fyrir nær þúsund
árum eru farin að hamla vestræn-
um þjóðum í baráttu fyrir mann-
réttindum kristinna.
Kristnir líða
píslarvætti
fyrir trúna
SÍÐUSTU ÁR OG ÁRATUGI HAFA MÖRG HUNDRUÐ ÞÚS-
UND KRISTINNA FLÚIÐ HEIMKYNNI SÍN Í MIÐ-AUST-
URLÖNDUM VEGNA OFSÓKNA OG ÁTAKA. MARGIR HAFA
FALLIÐ. Í KÍNA GERIR STJÓRNIN HARÐA HRÍÐ AÐ KRISTN-
UM SÖFNUÐUM OG BRÝTUR NIÐUR KIRKJUR.
ÓGNAR EINRÆÐINU
Kínverskur lögreglumaður þjarmar að konu sem tók þátt í mótmælum vegna aðgerða stjórnvalda gegn kristnum. Í sum-
ar voru margar kirkjur brotnar niður, að sögn vegna „skipulagsbreytinga“, rýma yrði svæðið vegna annarra mannvirkja.
*Hugsið til Mið-Austurlanda, þar sem kristnir verðaað flýja vegna ofsókna, þar sem kristnir eru drepnir. Hans heilagleiki Frans páfi.
Alþjóðamál
KRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is