Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.09.2014, Blaðsíða 29
21.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
H
eimilisstíllinn er góð blanda af raunsæi og
rómantík. „Ég er bæði hrifin af prakt-
ískri skandinavískri hönnun og hef gaman
af því að beygja frá henni, með nýjum
og gömlum munum sem skipta mig máli,“ útskýrir
Gunnhildur Ásta sem telur miklilvægt að manni líði
vel heima hjá sér. Hjónin hafa búið bæði á Eng-
landi og Ítalíu, auk Íslands, og segja heimilið því
bræðing áhrifa. „Innblásturinn kemur síðan líka úr
kvikmyndum, blöðum, bókum og öðru sem kryddar
tilveruna,“ segir Gunnhildur og bætir við að mikil-
vægt sé að heimilið gleðji augað og næri andann –
án þess að þrengja að honum. „Á heimilinu er það
alltaf stofan – þar líður okkur vel og við getum
slakað á við lestur, tónlist eða spjall. Við horfum lít-
ið sem ekkert á sjónvarp – geymum það því niðri í
kjallara,“ svara hjónin, aðspurð hver sé griðastaður
heimilisins.
Morgunblaðið/Þórður
Stóra antíkskápinn í eldhúsinu fengu hjónin að gjöf frá fyrri eigendum hússins.
Sjarmerandi, bjart svefnherbergi undir súð.
Gamla fiðla
Sigurðar fær
gott pláss í
borðstofunni.
Raunsæi og rómantík
Í GARÐASTRÆTI Í REYKJAVÍK HAFA HJÓNIN GUNNHILDUR ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR OG
SIGURÐUR HANNESSON KOMIÐ SÉR VEL FYRIR. HÚSIÐ ER HINN SVOKALLAÐI HRINGJARA-
BÆR SEM BYGGÐUR VAR ÁRIÐ 1908 AF BJARNA MATTHÍASSYNI, ÞÁVERANDI HRINGJARA Í
DÓMKIRKJUNNI OG KIRKJUGARÐINUM VIÐ SUÐURGÖTU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
HEIMILIÐ BRÆÐINGUR ÁHRIFA FRÁ ENGLANDI, ÍTALÍU OG ÍSLANDI
Syrusson Hönnunarhús
Síðumúla 33
Syrusson - alltaf með lausnina!
STÓLLINN STABBI
Staflanlegur
Verð í áklæði ISK 28.900,-
Verð í leðri ISK 34.900,-
Breytt úrval áklæða
og leðurs