Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.09.2014, Blaðsíða 41
21.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
M
ér finnst alltaf jafngaman að fara í almennileg tískupartí og
fílaði mig því í botn innan um alla tískuelítuna sem mætti í
60 ára afmæli Lindex í Gautaborg. Hátískuhönnuðurinn
Jean Paul Gaultier var stjarna partísins en með honum í för
var fyrirsætan Karen Elson. Elson hefur setið fyrir hjá þekktustu tísku-
húsum heims eins og Roberto Cavalli og Lanvin og verið andlit Opium
frá YSL svo eitthvað sé nefnt. Þegar þau mættu saman í partíið eftir
tískusýninguna, sem fram fór fyrr um kvöldið, hópuðust partígestir að
þeim. Þó ekki til að ná af þeim tali heldur til að dúndra í eins og eina
góða „selfie“ af sér og þeim.
Í allri fótósjoppmenningunni
finnst mér alltaf áhugavert að hitta
fólkið í glanstímaritunum augliti til
auglitis. Að sjá andlitið án þess að
einhver fótósjopp-frændi sé búinn
að afmá öll persónuleg einkenni er
gaman. Stundum eru það von-
brigði að sjá glanstímaritafólkið
augliti til auglitis og átta sig á því að
þetta fólk er bara eins og ég og þú.
Það voru hins vegar engin vonbrigði
að sjá Elson – hún var jafnvel
ennþá fegurri augliti til auglitis en á
mynd. Það skal tekið fram að hún
var reyndar ekki ómáluð en feg-
urðin og heilbrigðið leyndi sér ekki.
Ég fékk svipaða tilfinningu þegar ég
hitti Marc Jacobs í partíi í Lundúnum.
Það kom mér á óvart hvað hann var með
heilbrigða og fallega húð. Eftir að hafa
ýmsa fjöruna sopið veit ég að það er
bara eitt sem getur framkallað ljóm-
andi húð og það er gott mataræði (með
fullri virðingu fyrir öllum heimsins
bestu snyrtivörum). Þá er ég ekki að tala um
að lifa á próteindufti og gervisætu heldur
borða hreinan mat, sleppa sykri, mjólkurvörum, hveiti og drekka nán-
ast aldrei. Með þessu næst að framkalla allt sem fótósjopp getur ekki
gert – búið til útgeislun og kemistrí …
Í svona partíum hef ég unun af því að skoða klæðaburð partígesta. Og
ég skal alveg játa að mér finnst áhugavert að sjá hverjir snobba fyrir
hverju. Eftir að hafa grandskoðað klæðaburð skandinavísku tískupæj-
anna kom það mér töluvert á óvart hvað það voru margar í Valentino-
gaddaskónum. Mér finnst þessir gaddaskór mjög flottir en held ég
myndi aldrei tíma að kaupa mér þá. Þegar ég kaupi mér eitthvert fínerí
hef ég það sem óskráða reglu að góssið þurfi að endast út ævina og ég
geti mætt í því á Hrafnistu. Með það fyrir augum væri aldrei hægt að
taka umræðuna um Valentino-skóna.
Það er hins vegar allt annað upp á teningnum þegar Chanel-töskur
eru annars vegar enda fengu nokkrar slíkar að fara með í 60 ára afmæl-
ið. Það er töluvert rætt um Chanel-töskur heima hjá mér og vondu frétt-
irnar eru að það er alltaf sama manneskjan sem hefur máls á umræðu-
efninu. Fyrirlesturinn „bættu smá Chanel í líf þitt“ er orðinn álíka
þreyttur og frasinn „þetta er nú svolítið 2007“ en hann gengur út á nauð-
syn þess að slíkur gripur verði keyptur inn á heimilið. Fyrir þessu er
skilningur upp að vissu marki en málshefjandinn hefur þó nokkrum
sinnum þurft að svara nokkrum óþægilegum spurningum sem tengjast
fyrrnefndu veski. Sá sem ekki á Chanel-tösku getur nefnilega ekki svar-
að því hversu mikið hamingjan myndi aukast ef gripurinn yrði keyptur.
Og málshefjandinn hefur líka þurft að rökstyðja það að Chanel-taskan
sé ekki leið til að fylla upp í tómarúm í hjartanu. Að þurfa að útskýra það
hvers vegna undirrituð þarf nauðsynlega að eignast franskt veski er ekki
hægt að rökstyðja með útreikningi í exel-skjali því þetta er tilfinninga-
mál … martamaria@mbl.is
Jean Paul Gaultier og Karen Elson með aðdáendum.
Galdurinn að
vera gordjöss
Þessi er í Val-
entino-skóm
með YSL-veski.
EIKJUVOGUR 29 - 104 RVK. - S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
www.spennandi.com
OPIÐ: MÁN-FIM: 12-18 - FÖS: 12-16
GALLABUXUR
Since 1921
Við höfum notað lífræna jurtaolíu í vörur okkar í meira en 90 ár. Þær hafa
marga frábæra eiginleika og næra húðina m.a. með vítamínum, andoxunar-
efnum og fitusýrum. Vörurnar okkar eru prófaðar af óháðum aðila* og eru
vottaðar NaTrue vörur. Olíurnar veita vellíðan styrkja og vernda þurra húð
- í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
Það er ekkert jafn
rakagefandi og olíurnar okkar
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
*Derma Consult Concept GMBH
Útsölustaðir:
Apótek og Heilsuverslanir um allt land