Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.09.2014, Síða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.09.2014, Síða 41
21.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 M ér finnst alltaf jafngaman að fara í almennileg tískupartí og fílaði mig því í botn innan um alla tískuelítuna sem mætti í 60 ára afmæli Lindex í Gautaborg. Hátískuhönnuðurinn Jean Paul Gaultier var stjarna partísins en með honum í för var fyrirsætan Karen Elson. Elson hefur setið fyrir hjá þekktustu tísku- húsum heims eins og Roberto Cavalli og Lanvin og verið andlit Opium frá YSL svo eitthvað sé nefnt. Þegar þau mættu saman í partíið eftir tískusýninguna, sem fram fór fyrr um kvöldið, hópuðust partígestir að þeim. Þó ekki til að ná af þeim tali heldur til að dúndra í eins og eina góða „selfie“ af sér og þeim. Í allri fótósjoppmenningunni finnst mér alltaf áhugavert að hitta fólkið í glanstímaritunum augliti til auglitis. Að sjá andlitið án þess að einhver fótósjopp-frændi sé búinn að afmá öll persónuleg einkenni er gaman. Stundum eru það von- brigði að sjá glanstímaritafólkið augliti til auglitis og átta sig á því að þetta fólk er bara eins og ég og þú. Það voru hins vegar engin vonbrigði að sjá Elson – hún var jafnvel ennþá fegurri augliti til auglitis en á mynd. Það skal tekið fram að hún var reyndar ekki ómáluð en feg- urðin og heilbrigðið leyndi sér ekki. Ég fékk svipaða tilfinningu þegar ég hitti Marc Jacobs í partíi í Lundúnum. Það kom mér á óvart hvað hann var með heilbrigða og fallega húð. Eftir að hafa ýmsa fjöruna sopið veit ég að það er bara eitt sem getur framkallað ljóm- andi húð og það er gott mataræði (með fullri virðingu fyrir öllum heimsins bestu snyrtivörum). Þá er ég ekki að tala um að lifa á próteindufti og gervisætu heldur borða hreinan mat, sleppa sykri, mjólkurvörum, hveiti og drekka nán- ast aldrei. Með þessu næst að framkalla allt sem fótósjopp getur ekki gert – búið til útgeislun og kemistrí … Í svona partíum hef ég unun af því að skoða klæðaburð partígesta. Og ég skal alveg játa að mér finnst áhugavert að sjá hverjir snobba fyrir hverju. Eftir að hafa grandskoðað klæðaburð skandinavísku tískupæj- anna kom það mér töluvert á óvart hvað það voru margar í Valentino- gaddaskónum. Mér finnst þessir gaddaskór mjög flottir en held ég myndi aldrei tíma að kaupa mér þá. Þegar ég kaupi mér eitthvert fínerí hef ég það sem óskráða reglu að góssið þurfi að endast út ævina og ég geti mætt í því á Hrafnistu. Með það fyrir augum væri aldrei hægt að taka umræðuna um Valentino-skóna. Það er hins vegar allt annað upp á teningnum þegar Chanel-töskur eru annars vegar enda fengu nokkrar slíkar að fara með í 60 ára afmæl- ið. Það er töluvert rætt um Chanel-töskur heima hjá mér og vondu frétt- irnar eru að það er alltaf sama manneskjan sem hefur máls á umræðu- efninu. Fyrirlesturinn „bættu smá Chanel í líf þitt“ er orðinn álíka þreyttur og frasinn „þetta er nú svolítið 2007“ en hann gengur út á nauð- syn þess að slíkur gripur verði keyptur inn á heimilið. Fyrir þessu er skilningur upp að vissu marki en málshefjandinn hefur þó nokkrum sinnum þurft að svara nokkrum óþægilegum spurningum sem tengjast fyrrnefndu veski. Sá sem ekki á Chanel-tösku getur nefnilega ekki svar- að því hversu mikið hamingjan myndi aukast ef gripurinn yrði keyptur. Og málshefjandinn hefur líka þurft að rökstyðja það að Chanel-taskan sé ekki leið til að fylla upp í tómarúm í hjartanu. Að þurfa að útskýra það hvers vegna undirrituð þarf nauðsynlega að eignast franskt veski er ekki hægt að rökstyðja með útreikningi í exel-skjali því þetta er tilfinninga- mál … martamaria@mbl.is Jean Paul Gaultier og Karen Elson með aðdáendum. Galdurinn að vera gordjöss Þessi er í Val- entino-skóm með YSL-veski. EIKJUVOGUR 29 - 104 RVK. - S:694-7911 www.facebook.com/spennandi www.spennandi.com OPIÐ: MÁN-FIM: 12-18 - FÖS: 12-16 GALLABUXUR Since 1921 Við höfum notað lífræna jurtaolíu í vörur okkar í meira en 90 ár. Þær hafa marga frábæra eiginleika og næra húðina m.a. með vítamínum, andoxunar- efnum og fitusýrum. Vörurnar okkar eru prófaðar af óháðum aðila* og eru vottaðar NaTrue vörur. Olíurnar veita vellíðan styrkja og vernda þurra húð - í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is Það er ekkert jafn rakagefandi og olíurnar okkar Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland *Derma Consult Concept GMBH Útsölustaðir: Apótek og Heilsuverslanir um allt land

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.