Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2014
Embætti hæstaréttardómara laust til setningar
Innanríkisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands, til setningar meðan á
leyfi skipaðs dómara stendur, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. Meðan á setningu stendur
nýtur sá sem hana hefur fengið sömu stöðu og skipaður dómari nema að því leyti sem leiðir af því að starfi
hans er markaður ákveðinn tími, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. Miðað er við að sett verði
í embættið frá og með 1. janúar 2015 til og með 15. september 2017, eða hið fyrsta eftir að nefnd um hæfni
dómara hefur lokið starfi sínu í samræmi við 4. gr. a laga um dómstóla nr. 15/1998 og reglur um störf
dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti nr. 620/2010. Laun eru samkvæmt
ákvörðun kjararáðs.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 4. gr., sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Í samræmi
við 4. gr. reglna nr. 620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) núverandi starf,
2) menntun og framhaldsmenntun, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af
stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum, og upplýsingar
um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af
öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 9)
upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í
vinnubrögðum, 11) upplýsingar um tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt
dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5.
gr. reglna nr. 620/2010 og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni
umsækjanda sem máli skipta fyrir störf hæstaréttardómara.
Umsóknir óskast sendar til innanríkisráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík og á netfangið
postur@irr.is. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munn-
legum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og
greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af
úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af
tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði
auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem hæstaréttardómari.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem
notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
setningu liggur fyrir.
Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu eigi síðar en 13. október nk.
Innanríkisráðuneytinu,
25. september 2014
Embætti héraðsdómara laust til setningar
Innanríkisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við héraðsdóm Reykjavíkur til setningar
frá og með 1. janúar 2015 til og með 30. júní 2015, vegna leyfis skipaðs dómara. Dómsmálaráðherra setur í
embættið að fenginni ábendingu dómstólaráðs, sbr. 2. mgr. 20. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998.
Laun eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 12. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Áskilið er að í
umsókn komi fram upplýsingar um 1) núverandi starf, 2)menntun og framhaldsmenntun, 3) reynslu af
dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum,
s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur,
fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni,
s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni,
10) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 11) upplýsingar um tvo fyrr-
verandi/núverandi yfirmenn/samstarfsmenn sem geta veitt bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf
og samstarfshæfni umsækjanda og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni
umsækjanda sem máli skipta fyrir störf héraðsdómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlega fluttum
málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum
sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem
umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda.
Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa
ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum, er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem
notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
setningu liggur fyrir.
Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík og í pósthólfið postur@irr.is,
eigi síðar en 13. október 2014.
Innanríkisráðuneytinu,
25. september 2014.
Lögð hefur verið fram á Al-
þingi tillaga til þingsályktunar
um að félagsmálaráðherra efli
valkosti atvinnuleitenda til
virkrar
þátttöku í
samfélag-
inu. Ás-
mundur
Frið-
riksson er
fyrsti
flutnings-
maður til-
lögunnar.
Er lagt til
að leitað
verði til Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Bandalags há-
skólamanna, Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnu-
lífsins um samvinnu. Tillögur
ráðherra ættu að liggja fyrir
að ári liðnu.
Stuðningur til eðlilegs lífs
Í greinargerð segir að eftir
atvinnuleysi í kjölfar efna-
hagshrunsins séu jákvæð
teikn á lofti. Reynslan sýni þó
að alltaf verði hluti vinnufærs
fólks án starfs. Tryggja verði
því fólki stuðning til eðlilegs
lífs með þátttöku í samfélag-
inu. Endurhæfing og virkniúr-
ræði eru nefnd í því sambandi.
„Það leiðir til sterkara sjálfs-
trausts og eflds sjálfsmats sem
hjálpar fólki að takast á við
nýjar áskoranir í lífinu,“ segir í
tillögunni. Er þar lagt til að
starf sem fyrir er verði eflt og
nýjum úrræðum komið á fót.
Á undanförnum árum hafa
stjórnvöld, að því er segir í
þingsályktunartillögunni,
staðið fyrir ýmsum verkefnum
fyrir atvinnuleitendur. Ungt
fólk hafi verið hvatt til dáða og
því boðin störf, námstækifæri,
starfsþjálfun eða þátttaka í
ýmsum verkefnum. Nú horfir
tillögufólk hins vegar til þess
að atvinnuleitendum verði
einnig boðið upp á að sinna
störfum sem unnin eru sam-
félaginu öllu til góða, eins og
komist er að orði. Verkefni á
vegum sveitarfélaga eru þar
nefnd, svo sem aðstoð við aldr-
aða á dvalarheimilum, störf á
söfnum, skólum og í umhverf-
ismálum. Einnig eru nefnd
verkefni á vegum frjálsra fé-
lagasamtaka, svo sem störf
fyrir íþróttafélög og kirkjuna.
Í því skyni sé nauðsynlegt að
nýttar verði lagaheimildir sem
skylda atvinnuleitendur til
þátttöku í virkniúrræðum.
Huga þarf að réttindum
Eðlilegt sé að horfa til sam-
félagslega mikilvægra verk-
efna fyrir þá atvinnuleitendur
sem kjósa að fara ekki í nám.
Þá þurfi að huga að réttindum
þeirra meðan á starfi stendur,
svo sem tryggingum og laun-
um. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Höfnin Það skiptir alla máli að hafa vinnu við sitt hæfi.
Atvinnuleitendur
taki þátt í sam-
félagsverkefnum
Hjálp til nýrra áskorana í lífinu
Endurhæfing og virkniúrræði
Ásmundur
Friðriksson
Á dögunum voru afhentir ell-
efu styrkir úr Starfsmennt-
unarsjóði ungra kvenna að
heildarupphæð rúmlega 1,2
milljónir króna. Tilgangur
sjóðsins hefur frá upphafi
verið að hvetja og styðja við
bakið á konum, sem ekki eiga
kost á námslánum, til þess að
afla sér aukinnar mennt-
unar.
Aukin samkeppni í at-
vinnulífinu hefur leitt af sér
kröfu um meiri menntun.
Bandalag kvenna í Reykja-
vík, sem að sjóðnum stendur,
hefur reynt að styðja við bak-
ið á ungum konum sem hafa
hug á að skapa sér og fjöl-
skyldu sinni betri framtíð og
styrkja stöðu sína á atvinnu-
markaði.
Stuðningur í 17 ár
Á 17 starfsárum hefur
sjóðurinn úthlutað 130
styrkjum að fjárhæð samtals
14,7 milljónir króna. Starf-
andi er fjáröflunarnefnd
starfsmenntunarsjóðsins,
einnig gefa aðildarfélög BKR
til sjóðsins en mest munar
um velvild og styrki fyr-
irtækja, m.a. Sorpu og Góða
hirðisins, að því er fram kem-
ur í tilkynningu. sbs@mbl.is
Styrkur Frá athöfn á dögunum þegar var úthlutað úr starfs-
menntasjóðnum, sem er stuðningur sem kemur sér vel.
Samkeppnin kallar
á meiri menntun
Ungar konur fá stuðning til náms