Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2014 3
Viðgerðarmaður
Óskast til starfa á viðgerðum á bílum og
sláttuvélum. Gott tækifæri fyrir handlagna
einstaklinga. Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknir á www.gardlist.is
Hæfniskröfur:
• Stundvís
• Hress
• Metnaðarfullur
• Útsjónarsamur
• Sjálfstæður
• Reglusamur
• Sveigjanlegur
• Talar Íslensku
vELFERÐARRÁÐUNEYTIÐ
Embætti landlæknis auglýst laust til umsóknar
Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti landlæknis. Um embætti landlæknis fer samkvæmt
lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu og öðrum lögum
eftir því sem við á.
Landlæknir er skipaður af heilbrigðisráðherra til fimm ára í senn að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um
heilbrigðisþjónustu.
Umsækjendur um embætti landlæknis skulu hafa sérfræðimenntun í læknisfræði, þekkingu á sviði lýðheilsu
og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar. Leitað er að einstaklingi með samskipta- og
leiðtogahæfileika og góða þekkingu og reynslu af rekstri og stefnumótun. Mikilvægt er að viðkomandi hafi
reynslu af stjórnunarstörfum innan heilbrigðisþjónustu.
Embætti landlæknis er undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra og er meginmarkmið með starfrækslu þess að
stuðla að heilbrigði landsmanna.
Landlæknir ber ábyrgð á því að embættið starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Hann ber jafn-
framt ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma embættisins sé í samræmi við fjárlög og að fjár-
munir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Hlutverk landlæknis er m.a. eftirfarandi:
Að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, fagfólki og almenningi ráðgjöf og fræðslu um málefni á verk-
sviði embættisins.
Að annast forvarna- og heilsueflingarverkefni.
Að efla lýðheilsustarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa og styðja við menntun á sviði
lýðheilsu.
Að vinna að gæðaþróun.
Að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum.
Að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna.
Að veita starfsleyfi til einstaklinga sem uppfylla skilyrði laga og reglugerða til notkunar starfsheita
löggiltra heilbrigðisstétta.
Að stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á
hverjum tíma.
Að sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu.
Að bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna, sbr. sóttvarnalög.
Að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu.
Að meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera hann saman við sett markmið.
Að stuðla að rannsóknum á starfssviðum embættisins.
Að sinna öðrum verkefnum sem honum eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun
ráðherra.
Skipulag og verkaskipting stjórnsýslustofnana ráðuneytisins kann að koma til endurskoðunar á skipunar-
tímanum, m.a. í þeim tilgangi að efla heilbrigðisþjónustu og forvarnir. Það kann að leiða til þess að breyting-
ar verði gerðar á starfsemi embættisins. Lögð er áhersla á að landlæknir taki þátt í þeirri vinnu.
Skipað verður í embættið frá 1. janúar 2015. Um kjör landlæknis fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs, sbr. lög
nr. 47/2007, um kjararáð.
Ráðuneytið hvetur konur, jafnt sem karla, til að sækja um embættið.
Upplýsingar um starfið veita Anna Lilja Gunnarsdóttir ráðuneytisstjóri (postur@vel.is) og Margrét
Björnsdóttir skrifstofustjóri (margret.bjornsdottir@vel.is) í síma 545 8100.
Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2014. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur
fyrir starfið. Umsóknir skulu sendar til velferðarráðuneytisins, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 101
Reykjavík eða á netfangið postur@vel.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Atvinna
Óskum eftir blikksmið - járnsmið eða vönum
manni.
Blikksmiðja Ágústar Guðjónssonar ehf
Vesturbraut 14, 230 Reykjanesbæ.
agblikk@simnet.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is
Á dögunum var bílafloti sá
sem sölumenn heildversl-
unarinnar 1912 ehf. nota
endurnýjaður. Fyrirtækið er
móðurfélag Natan og Olsen.
Fyrir á annan tug milljóna
króna voru keyptir sex bílar
af gerðinni Hyundai i30 frá
BL ehf.
1912 ehf. er eitt af
stærstu fyrirtækjum lands-
ins í heildverslun með dag-
vöru og með um 100 starfs-
menn. Vörur eru seldar til
smásala, stóreldhúsa, iðn-
aðar og fríverslunar með
kost. Vegna þessa eru sölu-
menn fyrirtækisins mikið á
ferðinni og aka um 750 þús-
und km á ári.
sbs@mbl.is
1912 endurnýjar bílaflotann
Floti Fyrirtæki með fína bíla.
Sveitarstjórnarmenn á Aust-
urlandi vilja að hluti útgerðar
þyrlusveitar Landhelgisgæsl-
unnar verði á Egilsstaða-
flugvelli. Einnig vilja þeir að á
Egilsstöðum verði flugmiðstöð
vegna hugsanlegrar olíuleitar
á Drekasvæðinu. Ályktun um
þetta var samþykkt á aðal-
fundi Samtaka sveitarfélaga á
Austurlandi sem haldinn var á
dögum.
Flugmál bar mjög á góma á
fundinum eystra. Sveit-
arstjórnarmenn vilja að innan-
landsflug verði skilgreint sem
almenningssamgöngur og
jafnsett öðrum kostum í því
sambandi. Tryggja verði að
áætlunarflug til Vopnafjarðar
haldist áfram og að peningar
fáist til viðhalds á flugvellinum
þar. Þá þurfi bundið slitlag á
Norðfjarðarflugvöll, svo hann
geti þjónað sjúkraflugi sem
best. Á aðalfundi SSA voru
ítrekaðar fyrri ályktanir um
mikilvægi þess að Reykjavík-
urflugvöllur fái að halda sér.
Ætli Reykjavík að standa und-
ir nafni sem höfuðborg alls
landsins sé mikilvægt að sam-
göngur þangað séu góðar. Þá
verði flugfélög og ríkið að
beita sér fyrir endurskoðun
óhóflegra flugfargjalda í inn-
anlandsflugi, en það háa verð
hefur verið áberandi umkvört-
unarefni að undanförnu.
sbs@mbl.is
Vilja þyrlusveit
á Egilsstöðum
Miðstöð fyrir Drekasvæðið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Egilsstaðir Flugsamgöngur
skipta landsbyggðina miklu.
Vænst er allt að 600 þátttak-
enda á kaupstefnuna Vestnor-
den Travel Mart, sem haldin
verður í Reykjavík í byrjun
næstu viku. Að ferða-
kaupstefnunni, sem nú er
haldin í 29. sinn, stendur
North Atlantic Tourism Asso-
ciation (NATA) sem er ferða-
málasamband Norður-
Atlantshafsins og samstarfs-
vettvangur Íslands, Færeyja
og Grænlands.
Vestnorden Travel Mart er
mikilvægasta kaupstefnan í
ferðaþjónustu á norð-
urslóðum. Íslandsstofa hefur
framkvæmd Vestnorden Tra-
vel Mart með höndum, en
kaupstefnan er haldin annað
hvert ár á Íslandi og hin árin
til skiptis í Færeyjum eða á
Grænlandi.
Í tilkynningu er haft eftir
Ingu Hlín Pálsdóttir að kaup-
stefnan fái aukið vægi á hverju
ári, það er í takt við aukinn
fjölda ferðamanna.
„Ísland, Grænland og Fær-
eyjar eru allt áfangastaðir sem
búa yfir einstökum tækifærum
fyrir ferðamenn. Náttúran,
fólkið og menningin eru eig-
inleikar sem áfangastaðirnir
þrír deila að einhverju leyti og
við finnum mikinn styrk í því
að geta unnið saman á þessum
vettvangi að því að kynna
löndin saman. Löndin bjóða öll
spennandi og fjölbreytta
ferðaþjónustu sem fellur vel
að þörfum okkar markhópa,“
er haft eftir Ingu Hlín.
Skapa tengsl og
kynnast löndum
Kaupstefnan Vestnorden
Travel Mart er sögð ekki að-
eins gefa tækifæri til að skapa
og viðhalda viðskiptatengslum
heldur einnig til að kynnast
löndunum þremur sem að við-
burðinum standa. Í tengslum
við kaupstefnuna er boðið upp
á kynnisferðir til landanna
þriggja. Geta ferðalangar þá
kynnst vel fjölbreyttum mögu-
leikum og ferðaþjónustu á Ís-
landi, Grænlandi og í Fær-
eyjum. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Almannagjá Ferðamönnum sem til Íslands koma fjölgar jafnt
og þétt, enda er mikill kraftur í markaðsstarfi greinarinnar.
Vægið eykst með
fjölgun ferðamanna
Vestnorden Travel Mart Ísland,
Grænland og Færeyjar á kaupstefnu