Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2014
Sjómaður úr Grímsey, grá-
sleppukarl af Skaganum, járn-
smiður úr Reykjavík, bæjarstjóri
vestan af Snæfellsnesi, flutningabíl-
stjórar af Vesturlandi, útgerð-
arkóngur frá Akureyri og þing-
menn sem kynntu sér hvernig
kaupin gerast á eyrinni. Einnig
stelpur sem seldu tryggingar, vél-
búnað, olíu eða bankaþjónustu.
Slordrottningar vestan af fjörðum
og kjarnakvendi sem verkar salt-
fisk. Já, það er óhætt að segja að
Íslenska sjávarútvegssýningin sem
haldin var í Smáranum í Kópavogi
nú í vikunni hafi verið merkilegt
mannlífstorg og áhugaverð kaup-
stefna.
Um 500 þátttakendur
Um 500 fyrirtæki og stofnanir
kynntu sig og sitt á sýningunni,
sem haldin er þriðja hvert ár. Mikið
var lagt undir í sýningarhaldinu, þó
atburður þessi sé ekki síður manna-
mót og vettvangur til að mynda
tengsl. Viðskipti leiða oft af þeim og
þá er eftir talsverðu að slægjast, því
tölur og fjárhæðir í sjávarútvegi
eru jafnan háar. Raunar má gera
ráð fyrir því að ýmsir hafi sótt sýn-
inguna til að leita hugmynda eða
jafnvel ganga frá samningum.
Eftir biðstöðu síðustu árin, í eftir-
leik hrunsins, hefur myndast tals-
verð þörf fyrir endurnýjun skipa,
véla og búnaðar í sjávarútvegi. Og
nú þegar greinin gengur vel og af-
koman er fín nota margir svigrúmið
til fjárfestinga. Að auka virði afurða
og fullnýta allt hráefni er áherslu-
mál í sjávarútveginum í dag.
Persónugallerí
Íslendingar voru áberandi meðal
sýningargesta, en þarna mátti líka
hitta Norðmenn, Færeyinga,
Bandaríkjamenn, Dani og fleiri.
Fólk gekk glaðbeitt milli sýningar-
bása, skoðaði forvitnilega hluti og
spurði spurninga. Fékk sér hress-
ingu þar sem hún var í boði og aðrir
miðluðu reynslusögum. Í eðli sínu
er sjávarútvegurinn heimur sagna
og persónugallerí litríkra ein-
staklinga og margir slíkir voru á
sýningunni í Smáranum sem lauk
síðdegis í gær.
sbs@mbl.is
Innlit í atvinnulífið Íslenska sjávarútvegssýningin
Morgunblaðið/Ómar
Fjölmenni Sýningargestir komu víða frá, enda er sjávarútvegurinn í eðli sínu alþjóðleg atvinnugrein sem einkennist af hraða og örum tækniframförum.
Sýningin var mannlífstorgs lands og sjávar
Morgunblaðið/Ómar
Spjall Jón Ólafur Halldórsson forstjóri Olís, lengst til vinstri, rabbar við góða gesti á sýningunni.
Morgunblaðið/Ómar
Rúllubretti Miklar tækniframfarir eru í sjávarútvegi, sem allar létta fólki lífið og störf sín.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þorlákshöfn Ólafur Hannesson og foreldrar hans, Þórhildur
Ólafsdóttir og Hannes Sigurðsson sem reka Hafnarnes-Ver.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Olía Þau Díana Dögg Víglundsdóttir, Halldór Harðarson og
Thelma Grétardóttir kynntu ýmsar vörur og þjónustu hjá N1.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagamaður Jóhannes Eyleifsson sjómaður frá Akranesi mætti á svæðið.
Morgunblaðið/Ómar
Kaðlakarlar Um margt var skrafað á básunum enda er sjáv-
arútvegssýningin ekki síst mannamót og vinafundur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kópavogur Sýningin var sem áður í Smáranum. Skip voru sýnd utandyra.