Morgunblaðið - 11.10.2014, Blaðsíða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2014
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður haldið á
henni sjálfri miðvikudaginn 15. október 2014, kl. 10.00:
Fossvegur 11, Siglufirði, fnr. 213-0194, þingl. eig. Sigurður Friðfinnur
Hauksson, gerðarbeiðendur Fjallabyggð og Vátryggingafélag
Íslands hf.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
9. október 2014
Ásdís Ármannsdóttir
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Leifsgata 12, 200-8805, Reykjavík, þingl. eig. Guðný Hildur Magnús-
dóttir, gerðarbeiðendur Leifsgata 12, húsfélag, Orkuveita Reykjavíkur-
vatns sf. og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 15. október 2014 kl. 11.30.
Ránargata 42, 200-0891, Reykjavík, þingl. eig. Magnús Sigurbjörns-
son, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 15. október
2014 kl. 11.00.
Skeifan 3, 222-8811, Reykjavík, þingl. eig. SIG ehf., gerðarbeiðendur
Hilda ehf., Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mið-
vikudaginn 15. október 2014 kl. 13.30.
Undraland 4, 203-8260, Reykjavík, þingl. eig. Runólfur Oddsson,
gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og Reykjavíkurborg,
miðvikudaginn 15. október 2014 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
10. október 2014.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Rafstöðvarvegur 1a, 229-8153, Reykjavík, þingl. eig. Ártúnsbrekka ehf,
gerðarbeiðandi VBS eignasafn hf., fimmtudaginn 16. október 2014 kl.
14.30.
Sóleyjarimi 39, 227-4851, Reykjavík, þingl. eig. Þórunn Selma Bjarna-
dóttir og Bjarni Sindri Bjarnason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður,
Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., fimmtudaginn 16. október 2014 kl. 11.30.
Torfufell 33, 205-2951, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Björg Péturs-
dóttir, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og
Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 16. október 2014 kl. 13.30.
Völuteigur 3, 225-7497, Mosfellsbæ, þingl. eig. Kurl ehf, gerðar-
beiðandi Íslandsbanki hf., fimmtudaginn 16. október 2014 kl. 10.30.
Þorláksgeisli 31, 226-7303, Reykjavík, þingl. eig. María Eygló Nor-
mann, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 16. október
2014 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
10. október 2014.
Hann pabbi minn er látinn, 92
ára að aldri. Hann er fyrirmyndin
mín að svo mörgu leyti. Mig
dreymdi t.d. alltaf um að syngja
vel eins og hann og að syngja í kór
var eitthvað sem ég ætlaði mér
alltaf að gera. Mikið sem mér hef-
ur alltaf hlýnað um hjartarætur
þegar fólk hrósaði honum pabba
mínum fyrir hvað hann var djúpur
og góður bassi. Sem barn og ung-
lingur var ég stolt af honum
pabba.
Þeir sem þekktu hann úr bæj-
arlífinu minnast hans sennilega
helst fyrir störf hans með Karla-
kór Selfoss, en hann er einn af
stofnendum kórsins og hefur með-
al annars fengið mikið lof og við-
urkenningu frá Árborg fyrir fram-
lag sitt í þeim efnum, hann
auðgaði bæjarlífið ásamt félögum
sínum til margra ára. Ég man eft-
ir öllum heiðursmerkjunum sem
Karlakórinn veitir félögum sínum,
þau skreyttu hillurnar hans og
boðunga á jökkunum sem hann
bar með miklu stolti.
Hann pabbi gekk alltaf mjög
mikið, á hverjum degi mátti sjá
hann á göngu um bæinn og gaman
af því að yngri kynslóðir bæjarins
þekkja hann helst sem „Ragnar
litla með stafinn“. En í mörg herr-
ans ár gekk hann fjölda kílómetra
á dag, enda í mjög góðu formi og
kvikur í hreyfingum alveg fram á
síðasta dag þrátt fyrir að á yngri
árum ætti hann við mikil og erfið
bakmeiðsli að stríða, þá var það
ekki að sjá á því silfurhærða
glæsimenni sem ég sá í honum
föður mínum síðustu áratugina.
Hvað getur maður beðið um meira
en að eiga föður á lífi við góða
heilsu á tíræðisaldri? Og kannski
hélt ég að hann yrði eilífur, það
stefndi að minnsta kosti í það um
tíma.
Og þegar tíminn minn á jörðu hér
liðinn er þá er ég burtu fer,
þá ég veit að þú munt vísa veg
og taka á móti mér.
Hvíl í friði, elsku pabbi, nú veit
ég að söngurinn á himnum mun
batna til muna.
Jóhanna Ragnarsdóttir.
Í dag sit ég hér og hugsa til-
baka til æskunnar, þegar við ól-
umst upp sem börn hjá mömmu
og pabba á Heiðarveginum, við
vorum mörg systkinin og ekki
mikið pláss og það kom fyrir að
hurðum yrði skellt og hrópað og
grátið og það var líka hlegið og
mikið fjör og alltaf var pláss fyrir
vini okkar.
Fyrir rúmum þremur vikum
veiktist hann faðir minn og var
lagður inn á spítala en hann náði
sér nokkurn veginn aftur svo hann
kom heim og náði að vera heima í
þrjá daga, svo veiktist hann aftur
og var lagður inn.
Þriðjudaginn 30. september
síðastliðinn hringdi hún Jóhanna
systir til mín til Danmerkur og
sagði að pabbi okkar væri orðinn
mjög veikur og hrakaði hratt og
hún væri á leiðinni til hans á
sjúkrahúsið og við myndum tala
saman seinna, sem og við gerðum
og það var engin spurning, ef ég
vildi kveðja hann á lífi yrði ég að
koma sem fyrst, sem ég gerði.
Það var ekki auðvelt að sjá föð-
ur sinn liggjandi svona hjálpar-
lausan og ósjálfbjarga í rúminu,
þennan sterka mann sem var ekki
vanur að gefa sig.
Ég er svo þakklát fyrir það að
við náðum að kveðjast áður en
hann fór sína löngu leið.
Ég á margar góðar minningar
frá barnæsku um nálægð föður
míns þegar maður þurfti á að
halda. Hann var raunsær maður
og kenndi mér margt. Ein af stóru
minningum mínum var þegar
hann var að æfa sönginn heima
þegar við vorum lítil börn og hann
gekk um gólf með hendur fyrir
aftan bak og söng fullum hálsi og
við Jóhanna fylgdum á eftir og
hermdum eftir honum og hvað
hann skemmti sér yfir því.
Að við höfum fengið leyfi til að
taka þátt í því sem var hans stóra
áhugamál, er mér mikils virði í
dag. Hann kenndi mér að strauja,
því gleymi ég aldrei og nefni það
oft, hann kenndi mér að við erum
jöfn, og það er enginn æðri en ég
er, hann kenndi mér að ef maður
gæfi sér tíma til að fara á ball og
skemmta sér væri ekki nein afsök-
un fyrir að geta ekki mætt í vinnu
daginn eftir, hann kenndi mér
stundvísi.
Þegar ég eignaðist Sævar son
minn ung að aldri var hann þar
líka og studdi mig og hjálpaði mér
með hann.
Hann kenndi mér líka að gera
við bílinn minn, ég minnist þess að
ég var að skipta um hljóðkút
heima í innkeyrslunni, og reim og
olíu, og allt sem á þurfti að halda.
Mér fannst faðir minn vera
mikill jafnréttismaður og ég er
svo þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast honum og vera hluti af
honum.
Takk fyrir allt, ég gleymi þér
aldrei, elsku pabbi minn.
Kær kveðja,
Heiðveig Ragnarsdóttir.
Ekki var hann fyrirferðarmikill
á velli, bassinn og ljúflingurinn
Ragnar Þórðarson. En hann var
góður söngmaður og traustur fé-
lagi. Kórarnir á Selfossi nutu þess
og við nutum þess austur í Flóa-
kirkjunum. Kvaddur skal hann
með ljóðum annars Rangæings,
Þorsteinn Erlingsson sagði:
En ef létt er lundin þín
loftið bjart og næði:
sestu þar sem sólin skín
og syngdu lítið kvæði.
Það er líkt og ylur í
ómi sumra braga,
mér hefur hlýnað mest á því
marga kalda daga.
Ingi Heiðmar Jónsson.
Hann Ragnar hennar ömmu er
dáinn 92 ára að aldri. Ragnar
hennar ömmu kallaði ég hann allt-
af, hann var fóstri hennar mömmu
minnar og hún kallaði hann alltaf
Ragnar og því gerði ég það líka.
En börnin mín kölluðu hann alltaf
langafa og langalangafi varð hann
sl. vetur þegar sonur minn varð
faðir. Ragnari þótti langalangafa-
titillinn flottur og bar hann með
stolti. Hann vildi eignast ljósmynd
af litla drengnum, fannst ekki nóg
að sjá myndir af honum í tölvu,
það var ekki alvöru. Ég er aðeins
miður mín að ég skyldi ekki
bregðast fyrr við þeirri bón en
raun ber vitni, hann fékk þá mynd
ekki fyrr en hann var komin á
sjúkrahúsið. Við systkinin bárum
mikla virðingu fyrir Ragnari,
hann var ekki hár vexti og hafði
ekki hátt en þegar hann talaði við
okkur var talað af festu og við tók-
um mark á honum og hlýddum í
einu og öllu. Þegar ég var barn
tengdi ég ákveðna lykt við Ragn-
ar, málið er nefnilega að hann átti
Moscowitch bifreið og þeir sem
þekkja þá bíla vita að það var sér-
stök lykt í þeim. Þetta hélt ég að
væri ilmurinn hans Ragnars,
komst ekki að því fyrr en löngu
seinna að lyktin tengdist bílnum.
Ragnar hugsaði alltaf vel um bíl-
ana sína og lagði áherslu á að þeir
væru alltaf hreinir og bónaðir því
hann var mikið snyrtimenni.
Hann tók líka virkan þátt í heim-
ilishaldinu, vaskaði upp, þreif,
þvoði þvott og straujaði, það eru
örugglega ekki margir af hans
kynslóð sem kunna að strauja.
Ragnar söng í fjöldamörg ár með
Karlakór Selfoss, hann var annar
bassi og fannst mér flott að heyra
röddina hans, eins og áður sagði
var hann ekki stór maður en að
það kæmu þessir djúpu tónar úr
þessum pena skrokki fannst mér
stórkostlegt.
Ég á einn hljómdisk sem þeir
sungu inn á hann og Hjalti bróðir
hans og finnst mér gaman að
hlusta á hann, báðir flottir söng-
menn. Ragnar bar ekki tilfinning-
ar sínar á torg og fáir vissu hvað
hann hugsaði en hann var fastur
fyrir væri hann búinn að taka
ákvarðanir og þeim varð ekki
haggað, það vissu allir sem hann
þekktu. Það er með hlýju sem ég
minnist hans, bið honum Guðs
blessunar.
I. Eva Arnardóttir
Kveðja frá Karlakór Selfoss
Ragnar starfaði í Karlakór Sel-
foss í 42 ár og söng alla tíð 2.
bassa. Hann hætti að syngja með
okkur að staðaldri fyrir 6 árum, þá
84 ára, og söng eftir það með kór
eldri borgara. En Ragnar kom og
söng með okkur við jarðarfarir og
nú síðast sl. vor. Hann var gerður
að heiðursfélaga kórsins eftir 40
ára starf.
Ragnar hafði djúpa og fallega
bassarödd og fannst gaman að
syngja sterk karlakóralög en þótti
ekki mikið til koma að syngja
dægurlög.
Við félagar í Karlakór Selfoss
þökkum Ragnari samfylgdina og
framlag hans til kórsins. Við send-
um Rögnu og fjölskyldunni okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Gísli Á. Jónsson formaður.
HINSTA KVEÐJA
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín dóttir,
Eyrún Ragnarsdóttir.
ar og þjónar fyrir altari. Organisti Eyþór
Franzson Wechner. Kór kirkjunnar leiðir
almennan safnaðarsöng. Meðhjálpari
er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Gídeon-
félagið kemur í heimsókn. Á sama tíma
er sunnudagaskólinn. Boðið er upp á
fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
Umsjón hafa Hreinn Pálsson og Pétur
Ragnhildarson ásamt brúðunni vin-
sælu Viktori. Boðið upp á kaffisopa eft-
ir messu.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13
og kaffisala kvenfélags kirkjunnar í
safnaðarheimilinu á eftir. Kór og hljóm-
sveit kirkjunnar leiða sönginn undir
stjórn Arnar Arnarsonar. Kvenfélag Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði veitir safn-
aðarstarfinu dýrmætan stuðning og er
kaffisala þess ævinlega mikilvægur
hluti fjáröflunar félagskvenna.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudaga-
skóli kl. 11 með góðri fræðslu, söng og
tónlist, brúðuleikriti og fleiru. Hressing
í lokin fyrir háa sem lága.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Kvöld-
messa kl. 20. Stundin er í umsjón sr.
Hjartar Magna Jóhannssonar. Söng-
hópur Fríkirkjunnar leiðir sönginn
ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista
kirkjunnar, og valinkunnum tónlist-
armönnum.
GAULVERJABÆJARKIRKJA |
Messa kl. 14.
GLERÁRKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Sameiginlegt upphaf í
messu. Prestur: sr. Jón Ómar Gunn-
arsson. Kór Glerárkirkju leiðir almenn-
an söng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Séra Arna Ýrr Sigurð-
ardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur. Organisti er Há-
kon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11.
Séra Sigurður Grétar Helgason. Um-
sjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl.
10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf
kl. 11. í umsjón Lellu o.fl. Messa kl.
11. Altarisganga. Samskot til Gideon-
félagsins. Messuhópur þjónar. Kórar
frá Domus vox syngja, skólastjóri Mar-
grét J. Pálmadóttir. Organisti Ásta Har-
aldsdóttir. Prestur sr. Ólafur Jóhanns-
son. Molasopi eftir messu.
Hversdagsmessa með Þorvaldi Hall-
dórssyni á fimmtudag kl. 18.10.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11.
Prestur sr. Karl V. Matthíasson, org-
anisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð-
arkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Al-
dísar R. Gísladóttur og Valbjörns S.
Lilliendahl. Meðhjálpari Kristbjörn
Árnason. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir. Kaffisopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Yngri
barnakórarnir syngja. Stjórnandi er
Helga Loftsdóttir. Meðleikari Anna
Magnúsdóttir. Anna Elísa Gunn-
arsdóttir og aðstoðarstúlka hennar
Margrét Heba tala. Prestur er sr. Þór-
hildur Ólafs. Kaffi, kex og djús í Ljós-
broti Strandbergs safnaðarheimilis
Hafnarfjarðarkirkju. Þriðjudag 14. októ-
ber kl. 20 kynning á Helgistaðir við
Hafnarfjörð – ritverki sem gefið verður
út í tilefni af eitt hundrað ára afmæli
Hafnarfjarðarkirkju. Miðvikudagur kl.
8.15 morgunmessa.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. sr. María Ágústs-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Messuþjónar aðstoða, félagar úr Mót-
ettukórnum syngja ásamt Taulof Kirkes
börne- og ungdomskor, organisti er
Hörður Áskelsson. Eftir messuna býður
Taulof Kirkes börne- og umgdomskor
upp á stutta tónleika í kirkjunni. Stjórn-
andi er Dorthe Gade.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Prestur Eiríkur Jóhanns-
son. Organistar Steinar Logi Helgason
og Sólveig Anna Aradóttir. Kór Tónlist-
ardeildar Listaháskóla Íslands syngur.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd |
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Dalla Þórð-
ardóttir prófastur setur séra Bryndísi
Valbjarnardóttur inn í embætti. Kristín
Árnadóttir djákni les ritningarlestra.
Laufey Lind Ingibergsdóttir leikur á
flautu, Arna Rún Arnarsdóttir syngur.
Kór Hólaneskirkju leiðir söng undir
stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur
organista. Eftir guðsþjónustu er boðið
upp á kaffi og meðlæti. Sunnudaga-
skólinn er kl. 11.
HVALSNESSÓKN | Kvöldmessa í
Safnaðarheimilinu í Sandgerði kl. 20.
Áttundirnar leiða almennan söng.
Prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson.
HVERAGERÐISKIRKJA | Sunnu-
dagaskóli kl. 11.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Há-
tíðarguðsþjónusta kl. 14 í Västra Fröl-
unda-kirkju í Gautaborg í tilefni af 20
ára afmæli Íslensku kirkjunnar í Sví-
þjóð. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson pre-
díkar. Sr. Arna Grétarsdóttir skírir Elínu
Örnu Ágústsdóttur. Altarisganga. Ís-
lenski kórinn í Gautaborg syngur undir
stjórn Þorsteins Sigurðssonar. Org-
elleik annast Lisa Fröberg. Einsöngur
Herbjörn Þórðarson. Hátíðarkirkjukaffi.
Sr. Ágúst Einarsson
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma
kl. 13.30 með mikilli lofgjörð og heil-
agri kvöldmáltíð. Halldóra Ólafsdóttir
predikar. Barnastarf á sama tíma. Kaffi
og samfélag eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Harmónikku-
félag Suðurnesja leikur kl. 11 undir í
guðsþjónustunni og má því gera ráð fyr-
ir hressilegum polkatakti við sálma-
sönginn. Barnastarfið er á sínum stað í
umsjón sr. Erlu, Systu, Önnu Huldu og
Estherar. Messuþjónar lesa texta og
okkar frábæru súpuþjónar bjóða til
veislu. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Kirkja heyrnarlausra | Messa kl. 14.
Táknmálskórinn leiðir söng. Prestur sr.
Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir. Molasopi
eftir messu.
Kirkjuselið í Spöng | Guðsþjónusta
kl. 13. Séra Sigurður Grétar Helgason
prédikar og þjónar fyrir altari. Karlakór
Grafarvogs syngur. Stjórnandi: Íris Er-
lingsdóttir. Organisti: Jane Desutarjo.
Sunnudagaskóli á sama tíma. Umsjón
hefur Ástríður Guðmundsdóttir. Undir-
leikari: Stefán Birkisson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Dr. Karl Sigurbjörnsson biskup
prédikar. Sr. Sigurður Arnarson sókn-
arprestur og Ásta Ágústsdóttir djákni
þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju
syngur undir stjórn Lenku Mátéová
kantors. Sunnudagaskólinn hefst í
kirkjunni kl. 11 en flyst eftir guðsþjón-
ustuupphaf í safnaðarheimilið Borgir.
Umsjón með skólanum hafa Bjarmi
Hreinsson, Oddur Örn Ólafsson og
Ágústa Tryggvadóttir. Eftir guðsþjón-
ustu verður sýning Leifs Breiðfjörð opn-
uð í Borgum.
LAUGARNESKIRKJA | Geðveik
messa í tengslum við Alþjóðlega geð-
heilbrigðisdaginn í Laugarneskirkju kl.
11. Ávarp flytur Bergþór G. Böðv-
arsson, formaður undirbúningsnefndar
Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins, og
hugleiðing dagsins er í höndum Kára
Auðar Svanssonar. Yfirskrift dagsins í
ár er Lifað með geðklofa, en Kári hefur
reynslu af því. Sr. Kristín Þórunn Tóm-
asdóttir þjónar ásamt messuþjónum
Laugarneskirkju. Tónlist og safn-
aðarsöng leiðir kórinn Veirurnar. Öflugt
barnastarf á sama tíma í kirkjunni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Dagur kærleiksþjónustunnar.
Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir.
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Um-
sjón hafa djáknarnir Ásdís Blöndal og
Fjóla Haraldsdóttir. Sunnudagaskólinn
er byrjaður aftur eftir sumarfrí og er alla
sunnudaga kl. 13.
Maríukirkja við Raufarsel | Messu-
tímar: Alla virka daga kl. 18.30.
Laugardaga (sunnudagsmessa) kl.
18.30 á ensku. Sunnudaga kl. 11.
Barnamessa (september-maí) kl.
12.15.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr
Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Org-
anisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn
Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og
gleði í barnastarfinu. Umsjón með
sunnudagaskólanum hafa Sigurvin Lár-
us æskulýðsprestur, Ari tónlist-
armaður, Katrín Helga og Andrea Ösp.
Samfélag og kaffisopi á Torginu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Kirkjudag-
urinn, fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.
Fjölskylduguðsþjónusta þar sem séra
Pétur þjónar fyrir altari og sér einnig um
töfrabrögðin. Kór safnaðarins leiðir
sönginn undir stjórn Árna Heiðars
Karlssonar. Ólafur M. Magnússon ten-
ór syngur í messunni. Að lokinni messu
er kórinn með kaffisölu í safn-
aðarheimilinu. Sjá nánar á www.oha-
disofnudurinn.is
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 14 í Kristniboðssalnum Háaleit-
isbraut 58-60, 3. hæð. Um orð Guðs.
Ræðumaður Neil Cole. Sunnudaga-
skóli fyrir börnin.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjudag-
ur Rangæinga. Sr. Ólafur Jóhann Borg-
þórsson prédikar. Kór Seljakirkju leiðir
safnaðarsöng. Organisti: Tómas Guðni
Eggertsson. Kirkjukaffi í boði Rang-
æingafélagsins að lokinni guðsþjón-
ustu.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir
Stefánsson leikur á orgelið. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða
almennan safnaðarsöng. Kaffiveit-
ingar.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sókn-
arprestur annast prestsþjónustuna.
Organisti Jón Bjarnason. Kvennakórinn
Vox Feminae syngur. Stjórnandi Mar-
grét J. Pálmadóttir.
STOKKSEYRARKIRKJA | Messa kl.
14.
STRANDARKIRKJA | Messa, svo-
nefnd Veiðimannamessa, kl. 14. Jörg
Sonderman og kór Þorlákskirkju.
TORFASTAÐAKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Egill Hallgrímsson sókn-
arprestur annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Fjölskyldumessa
kl. 11. Barn borið til skírnar. Almennur
söngur. Prestur sr. Sigurður Grétar Sig-
urðsson.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sjávarborgarkirkja í Skagafirði.