Hafnarfjörður - Garðabær - 28.06.2013, Síða 10

Hafnarfjörður - Garðabær - 28.06.2013, Síða 10
10 28. júní 2013 Rakel Pálmarsdóttir sem náði þeim frábæra árangri að verða semidúx Flensborarskóla við síðustu útskrift með 9,16 í meðaleinkunn. Rakel er 18 ára og hefur nokkuð sérstök tengsl við Flensborg. Ekki aðeins það að báðir foreldrar hennar eru útskrifaðir þaðan heldur bjó föður- amma Rakelar, Gréta Pálsdóttir í Flensborg í nokkur ár. Gréta var auk þess stúdent þaðan. Foreldrar Grétu og þar með langafi og langamma Rakelar, þau Páll Þorleifsson og Ólafía Einarsdóttir bjuggu enn- fremur í Flensborg og það í tvo áratugi, 1961-1981. Ástæður þessa eru þær að Páll langafi Rakelar var húsvörður í Flensborg og á þeim tíma fylgdi því embættinu hús- varðaríbúð. Ólafía sinnti ennfremur húsvarðarstarfinu. Það verður því ekki sagt annað en semidúxinn hafi sérstakar rætur til Flensborgarskólans. Rakel verður yfirheyrð að þessu sinni. Fullt nafn? Rakel Pálmarsdóttir. Aldur? 18 ára. Foreldrar? Hildur Karlsdóttir og Pálmar Óli Magnússon. Starf og/eða menntun föður: Verkfræðingur, starfar hjá Lands- virkjun. Starf og eða menntun móður: Grunnskólakennari í Álftanesskóla. Systkini og hvar ert þú í röðinni? Smári og Þóra Gréta, ég er yngst.. Hvert liggja ættir þínar (bæði föður­ leggur og móðurleggur)? Foreldrar móður: Karl Friðrik Ingvarsson og Edda Kol- brún Þorgeirsdóttir Foreldrar föðurs: Gréta Pálsdóttir og Magnús Jón Sig- björnsson. Þegar þú varst yngri – hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Verkfræðingur eins og pabbi. Stundarðu íþróttir, spilar á hljóðfæri eða eitthvað slíkt? Ég æfi fótbolta með Stjörnunni/ Álftanes. Afhverju valdirðu Flenborg á sínum tíma? Stutt að fara og ég gat fengið metna alla þá áfanga sem ég hafði klárað í grunnskóla. Auk þess var systir mín þar, báðir foreldrar mínir, amma mín, Gréta. Einnig var langafi minn Palli lengi húsvörður við skólann og jafn- framt bjó þar. Hvernig er best að læra fyrir próf? Læra jafnt og þétt. Ertu skipulögð? Já frekar. Ertu byrjuð að lesa eitthvað af þeim fjölmörgu bókaverðlaunum sem þú fékkst? Nei því miður, er búin að hafa meira en nóg að gera eftir útskrift. Stærsti sigurinn? Er að vinna í honum. Í hvað hverfi býrðu? Ég bý á Álftanesi. Hefurðu einhvern tíma búið erlendis? já bjó í Þýskalandi þegar ég var 5 ára og ætla mér að búa einhverstaðar erlendis í náinni framtíð, allavega um stund. Hver er þinn helsti kostur? Mikill metnaður. En galli? Ég get verið ruslaskrímsli heima. Ætlar þú í Háskóla í haust og hvern þá? Já það er stefnan, á eftir að fá svör og veit því ekki hvert. Hver eru framtíðarplönin á þessum tímamótum? Fara í háskólanám. Fallegasti staðurinn á Íslandi? Þingvellir. Fallegasti staðurinn í útlöndum? Í dag er það Niagara Falls. Hvað finnst skemmtilegast að gera (fyrir utan að læra)? Spila fótbolta, ferðast og vera með vinum og fjölskyldu. Eldarðu stundum heima? Rosalega sjaldan, enda oftast á æf- ingum á matmálstímum. Uppáhaldsmatur? Nautakjöt með bernaise sósunni hennar mömmu. Uppáhaldsdrykkur? Límonaði. Áttu þér uppáhalds tónlistarmann eða tónlist? Er alæta á tónlist, en Pink floyd er svo- lítið uppáhalds. Lestu mikið (fyrir utan skóla­ bækurnar)? Já já, þegar ég dett í gírinn. Uppáhaldsbókin? Flugdrekahlauparinn og Ein til frá- sagnar. Uppáhaldsleikari? Johnny Depp. Áttu þér lífsmottó? „Gerðu það sem þú trúir á og trúðu á það sem þú gerir, allt annað er sóun á orku og tíma“. Ný kynslóð sólarkrema Lækjargötu 34 • Hafnarfirði • Opið þriðjudaga kl 14 - 18 Sími 565 0500 • 897-1923 Swiss Nature fást á vefsíðunni www.scincare.is eða í Rakel Pálmarsdóttir semidúx í Flensborg með meðaleinkunn 9,16 á sérstakar rætur til Flensborgarskólans: „Best að læra jafnt og þétt yfir hverja námsönn” Frá útskriftinni úr Flensborgarskólanum í maí ásamt skólameistara. Með vinkonunum.

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.