Hafnarfjörður - Garðabær - 28.06.2013, Page 12
28. júní 201312
Úða garða gegn
maðki og lús
Eyði köngulóm af húsum
Eitra fyrir starrafló og
skorkvikindum í húsum
Einnig öll almenn
meindýraþjónusta
Garðúðun
Meindýraeyðir ehf.
Sigurður I Sveinbjörnsson
s: 5676090 - 8975206
Veltusundi 1 • Sími 564 3248
www.gull.is
Gullsmiðja Óla
20 ára
Í tilefni 20 ára afmælis Gullsmiðju Óla
verður veittur 20% afsláttur af öllum vörum
verslunarinnar frá 19. – 30. júní 2013.
Þar að auki fær fólk sem verslar tækifæri á
að auka afsláttinn enn frekar með því að
kasta tening og getur þá fengið auka afslátt
af afsláttarverði.
1-2= 10% af afsláttarverði
3-4= 20% af afsláttarverði
5-6= 30% af afsláttarverði
Þannig að afslátturinn getur orðið allt að 44%.
Nú verður
gullteningnum kastað.
Yfirlitssýning á verkum
Eiríks Smith opnar í
Hafnarborg á morgun
Tilvist – Eiríkur Smith 1968-1982 er yfirlitssýning á verkum Eiríks frá nefndu
tímabili sem verður opnuð í Hafnar-
firði laugardaginn 29. júní kl. 15 .
mörg af þekktustu verkum listmál-
arans verða á sýningunni.
Laugardaginn 29. júní kl. 15
verður opnuð í Hafnarborg sýning
á verkum listmálarans Eiríks Smith
með verkum frá árunum 1968 - 1982.
Yfirskrift sýningarinnar er Tilvist og
er í titlinum vísað til tilvistarlegra
spurninga sem sóttu á listamanninn á
þessum tíma. Á sýningunni eru mörg
af þekktustu verkum Eiríks, en á síðari
hluta þessa tímabils náðu málverk
hans mikilli hylli á meðal almennings.
Upp úr 1968 má greina hjá Eiríki
áður óþekktan áhuga á fígúratífu
málverki, einkum fyrir tilstuðlan
áhrifa frá popplist. Í upphafi þessa
tímabils teflir hann saman tjáningar-
ríkri abstraktlist áranna á undan og
hinni fígúratífu popplist, þar mætast
varnarlausar manneskjur og ómann-
eskjulegir kraftar óræðra forma. Með
tímanum urðu verk Eiríks raunsærri í
stíl en efnislega leitaði listamaðurinn
æ meira inn á við með hugleiðingum
um tilvist mannsins í alheiminum.
Fígúrur í náttúrunni andspænis
hrörnandi mannanna verkum eru
áberandi og endurspegla togstreitu
á milli hins líkamlega og hins and-
lega. Þannig eru á sýningunni verk
frá ólíkum tímabilum á ferli lista-
mannsins sem þó endurspegla öll
tilvistarspurningar, ýmist spurningar
um tilvist mannsins í samfélaginu eða
tilvist mannsins á mörkum hins and-
lega og líkamlega.
Sú þróun í átt til raunsærrar mynd-
gerðar sem einkenndi verk Eiríks upp
úr 1975 varð til þess að hann náði
almannahylli og varð einn dáðasti
listmálari þjóðarinnar. Í kringum
1980 tóku verk hans að seljast geysi-
vel og má segja að þau hafi orðið
almenningseign í þeim skilningi
að fjölmargir sáu sér fært að festa
kaup á verkum eftir hann, einkum
vatnslitamyndum. Fá verk frá þessu
tímabili eru þó í eigu opinberra safna
og á það einnig við um Hafnarborg
sem þó varðveitir yfir 300 verk eftir
listamanninn. Sýningin er fjórða í
röð sýninga sem Hafnarborg heldur
og kynna ólík tímabil á löngum ferli
Eiríks. Til að gefa heillega mynd,
einkum af síðari hluta þess tímabils
sem tekið er fyrir á sýningunni, er
stór hluti verkanna fenginn að láni.
Sýningarstjórar eru Ólöf K. Sig-
urðardóttir forstöðumaður Hafnar-
borgar og Heiðar Kári Rannversson.
Blómskreytt box og bakpoki
Hæ, hó, jibbí jei. . . . . . já húsmóð-irin var í sannkölluðu þjóðhá-
tíðarskapi þann 17. júní. Dagurinn var
tekinn snemma með bakstri því hin
fyrirhyggjusama húsmóðir hefur vaðið
fyrir neðan sig. Þó heitar pylsurnar og
volgar pizzusneiðarnar séu girnilegar
í sölubásunum á hátíðarhöldunum,
er það ekki fullnægjandi fyrir stóra
fjölskyldu. Því dugar ekkert annað
en að baka eitthvað girnilegt. Ný-
bakaða nestið var sett í nýju litríku
blómaskreyttu boxin sem húsmóðirin
hafði keypt stuttu áður.
Með troðfullan bakpoka
Yngsti fjölskyldumeðlimurinn fékk
það hlutverk að troða boxunum ofan
í bakpoka meðan húsmóðirin leitaði
að íslenska fánanum. Með fánann í
fararbroddi og troðfullan bakpoka
arkaði stórfjölskyldan af stað. Fyrsti
viðkomustaður var Ásvellir og fylgdust
allir spenntir með viðureign Hauka og
FH í handbolta. Eitthvað heyrðist kallað
í hátalarakerfinu en húsmóðirin átti
erfitt með að greina það sem sagt er en
heyrði orðið „skrúðganga‘‘ inn á milli.
- Leiknum lauk og húsmóðirin
teymdi afkvæmin í áttina að skrúð-
göngunni. En hvar var skrúðgangan?
? ? Í fjarska heyrði húsmóðirin
lúðrasveitaróminn og sá aftan á langa
halarófu af fólki. Skrúðgangan var sem
sagt farin af stað! Líklega var þulurinn
á handboltaleiknum að segja það sama.
En jæja, það var ekki um annað að
ræða en að grípa í afkvæmin og hlaupa
af stað á eftir skrúðgöngunni með
þunga, stóra bakpokann á bakinu. Laf-
móð eftir hlaupin komst húsmóðirin
inn í skrúðgönguna sem þrammaði
eftir lúðrasveitarleik. Mikil stemning
var í miðbænum þennan fagra sum-
ardag og allir í hátíðarskapi. Þrestirnir
og fjallkonan voru á sínum stað og
tilkynningar afkvæmanna um svengd
bárust fljótt.
Snuddusleikjó
og candyfloss
Húsmóðirin tók bakpokann hróðug af
baki og opnaði kökuboxin. Innihald
boxanna var samt ekki alveg það sama
og húsmóðirin bjóst við því þau voru
full af legókubbum og vaxlitum!!! Litla
skottið hafði sem sagt sturtað bakkels-
inu á borðið og sett dótið sitt í þessi
fallegu box í staðinn, enda frábært að
geyma dótið sitt á slíkum stað.
Endurteknar yfirlýsingar um vænt-
anlega hungursneyð bárust óðum til
húsmóðurinnar. Þar sem henni þótti
hvorki æskilegt að snæða liti né kubba
fór hún að næsta sölubás þar sem
pylsur og pizzur voru keyptar. Snudd-
usleikjóar og candy floss heilluðu
einnig svanga maga og alsæl gæddu
börnin sér á þessu meðan fyrrum
erkifjendur og núverandi vinir úr
Hálsaskógi skemmtu mannskapnum.
Húsmóðirin sem hnussaði sjálf yfir
þessari sykurleðju nartaði hins vegar
í gulrót sem hún fann í veskinu sínu.
Glæstir víkingar börðust
Austurgatan var gengin meðan kröfur
um andlitsmálningu og hoppukastala
urðu smám saman háværari. Reyndar
voru afkvæmin komin með ágætis
andlitsmálningu því klístruð voru
þau eftir sleikjóinn og leifar af candy
flossi voru fastar á kinnunum og upp
á enni. Félagarnir úr Latabæ glöddu
alla viðstadda og hoppukastalinn
sló í gegn. Ógnvænlegur bardagi fór
fram milli nokkurra víkinga og fylgd-
ist húsmóðirin með honum. Glæstir
menn í sterklegum brynjum börðust
eins og þeir áttu lífið að leysa.
Meðan húsmóðirin horfði aðdá-
unaraugum á þessar hetjur náði litla
skottið að hlaupa þvert yfir bardaga-
völlinn. Í viðleitni sinni til að bjarga
barninu frá bráðum háska og öflugum
sverðum, hljóp húsmóðirin á eftir
barninu. Það vildi svo óheppilega til
að einn víkingurinn sem var í miðri
orustu hljóp aftur á bak til að verja
sig og lenti beint á húsmóðurinni. Sú
síðarnefnda datt og fellti þannig um
leið ofurhetjuna sem hlammaðist ofan
á vesæla húsmóðurina.
„Hluti af sýningunni„
Þar sem víkingurinn var í þungri
brynju tók það hann dágóðan tíma
að klöngrast af baki húsmóðurinnar
sem lá á bakinu með kjólinn yfir and-
litinu. Bardaginn hafði stöðvast og
húsmóðirin dró að sér óskipta athygli
fjölmargra viðstaddra. Haltrandi gekk
húsmóðirin, fangaði sykurklístraða
barnið og uppskar mikið lófaklapp
fyrir uppátækið. Þar sem húsmóðirin
er einstaklega jákvæð að upplagi kink-
aði hún kolli til viðstaddra og sagði
háum rómi; „þetta var bara hluti af
sýningunni. ‘‘
Þegar næsti bardagi víglegu víking-
anna fór fram stóð húsmóðirin við
einn sölubásinn og pantaði sér stóran
skammt af candy floss og átti það að
eigin mati skilið.
Húsmóðirin er ein af þeim
seinheppnari í bransanum og
deilir ævintýrum hversdagsins
með lesendum blaðsins.
RAUNIR HÚSMÓÐURINNAR