Fréttir - Eyjafréttir - 26.03.1986, Page 3
f
Er til fátækt í
Vest mannaeyj um
Um það hvað sé fátækt geta
menn sjálfsagt haft misjafnar
skoðanir. Hvar eru mörkin milli
fátæktar og þess að hafa ofaní
sig og á. Sú skilgreining fer
trúlega eftir hverjum og einum.
Hvern lifistandard fólk sættir sig
við. Það sem einum dugar, dugar
ekki öðrum.
Nýlega var haldinn ráðstefna
í Reykjavík, sem bar yfirskrift-
ina „Er fátækt á íslandi?“ Niður-
staða þeirrar ráðstefnu var sú,
að fátækt væri meiri á íslandi en
áður hefði verið vitað. Miðað
var við að einstaklingur hefði 22
þúsund króna mánaðarlaun og
barnlaus hjón 33 þúsund króna
mánaðarlaun. Undir þessum
mörkum eru samkvæmt skatta-
framtölum 25% landsmanna.
En hvernig skyldi þessum mál-
um vera háttað hér í Vestmann-
aeyjum. Er til fátækt í Eyjum?
í síðustu kjarasamningum var
ákvæði sem kveður á um að það
fólk, sem hefur 25 þúsund króna
mánaðarlaun eða minna skuli fá
launauppbót sem nemur 3 þús.
kr., fólk með með laun á bilinu
25-30 þús. fái 2 þús. kr. og fólk
með laun á bilinu 30-35 þús. fái
1500 kr. launauppbót. Miðað er
við brúttólaun í febrúar og mars.
Jóhanna Friðriksdóttir, for-
maður Verkakvennafélagsins
Snótar sagði, án þess að hún
hefði kannað það sérstaklega,
að einhver hluti sinna félags-
manna fengju þessar launaupp-
bætur, þó frekar fólk, sem væri i
efri þrepunum. Hér í Eyjum
hefði verið það mikil vinna í
loðnu að undanförnu að tekjur
væru allþokkalegar, en fyrir
mikla vinnu. Þessir mánuðir
væru því ekki venjulegir launa-
mánuðir.
Hjá Samfrost fengust þær upp-
lýsingar að við fyrstu sýn virtist
þeim enginn sem vinnur fulla
vinnu í frystihúsunum vera undir
þessum viðmiðunarmörkum í
febrúar og það sem af væri mars.
En tóku það fram að þetta væri
ekki fullyrðing.
Sigurður Jónsson, skrifstofu-
stjóri á bæjarskrifstofunum hef-
ur með framfærslumál að gera.
Hann sagði að miðað við önnur
bæjarfélög hefði sú upphæð, sem
fór til framfærslu á árinu 1985
verið mjög lág í Vestmannaeyj-
um, innan við 600 þúsund
krónur. Er það mun lægra en
hann vissi til að hefði verið hjá
öðrum bæjarfélögum.
Sigurður sagðist verða var við
ýmiskonar fjárhagserfiðleika
hjá fólkl. Mestmegnis stöfuðu
þeir af húsakaupum og húsbygg-
ingum fólks. Einnig væru greini-
legir erfiðleikar hjá mörgum ein-
stæðum mæðrum, sem væru með
2-3-4 börn á framfæri. Þar vissi
hann til í nokkrum tilfellum að
jaðraði við fátækt. Taldi það þó
algjört undantekningartilfelli ef
einhver liði skort. En launakjör
á íslandi væru nú þannig, að fólk
þyrfti að vinna mikið til að ná
endum saman. Jaðraði það
stundum við þrældóm. Og þeir
sem einhverra hluta vegna gætu
ekki unnið mikið, þeir ættu í
basli.
Þá taldi Sigurður að fátækt
væri mun algengari á Reykjavík-
ursvæðinu en víðast hvar úti á
landi. Þar væri oft minni vinnu
að hafa, og meira um fólk, sem
ætti við allskyns félagsleg vand-
ræði. Og áreiðanlega margirsem
hefðu undir 22 þúsund króna
mánaðarlaunum.
En fólk væri ekki á eitt sátt um
hvern skilning ætti að leggja í
orðið fátækt. Á ráðstefnunni
hefði verið miðað við tekjur
samkvæmt skattaframtali, að
fátæktarmörk væru 22 þúsund
kr. á einstakling eða lægri. Sér
hefði nú sýnst á sköttum sumra
manna, sem Fréttir birtu á sínum
tíma, að þar væru ýmsir borgarar
undir fátæktarmörkum, sem
hann áliti-nú ekki fátæka. Skatt-
aframtöl manna væru ekki mjög
ábyggilegar heimildir.
En hvernig snúa þessi mál að
sóknarprestinum okkar, séra
Kjartani Erni Sigurbjörnssyni.
„Ég verð ekki var við hina
skínandi fátækt hjá mínum sókn-
arbörnum. En ég verð var við
allskyns basl hjá fólki, sérstak-
lega í gegnum húsakaup og hús-
byggingar. Slíkt grefur auðvitað
Systrafélagið
Inga Haraldsdóttir,
Faxastíg 2A S 1439.
Elín Guðlaugsdóttir,
Bessastíg 10 S 1645.
Ásta Arnmundsdóttir,
Fjólugötu 8 S 1871.
-Það er von-
FRUMSÝNING
Leikarar og aðrir sem þátt tóku í gerð
sjónvarpskvikmyndarinnar „Það er von",
fræðslumyndar um alkahólisma, eftir erind-
um Dr. Róberts Pioor, mætið í Bæjarleikhús-
ið í kvöld kl. 20.30. til að skoða afkvæmið.
Jón Hermannsson
Sigurgeir Scheving
undan hjónaböndum og veldur
miklu angri í fjölskyldum. Það
er sú hlið sem ég verð helst vat
við. En skilgreiningin fátækt er
líka dálítið einstaklingsbundin.
Sumir komast af með tekjur sem
aðrir eru í mesta basli að lifa af“.
Aðalfundur Jötuns
Aðalfundur Sjómannafélagsins Jötuns
verður haldinn í Alþýðuhúsinu laugardag-
inn 29. mars kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
4. Veitingar.
Stjórnin.
í gærmorgun tók Sparisjóður Vestmannaeyja í notkun nýjan einkennisklæðnað á allt starfsfólk sitt.
Setur þetta óneitanlega mjög skemmtilegan svip á umhverfið.
Á myndinni má sjá starfsfólkið í nýja einkennisklæðnaðinum ásamt Sparisjóðsstjóranum Benedikt
Ragnarssyni.
KULUHUSIÐ
auglýsir
Opið á laugardag kl. 9 -12
í tileíni af 1 árs afmæli Matvöruval
Kúluhúsinu, bjóðum við
10% AFSLA TT
á matvörum fram að páskum.
Þar að auki útsala á:
Eggjum (119 kr. kg.), unghænum (123 kr. kg.), kjúklingum (243 kr.
kg.), svínakótelettum (497 kr. kg.), svínalœrisneiðum (299 kr. kg.) og
svínahamborgarahryggjum (598 kr. kg.)
Bakarí á staðnum.
Heimsendingarþjónusta
é